Morgunn


Morgunn - 01.12.1929, Page 68

Morgunn - 01.12.1929, Page 68
194 M 0 R G U N N voru og þjáðir af öndum, og allur bærinn var saman kominn við dyrnar. Og hann læknaði marga, þá er veikir voru af ýmsum sjúkdómum, og rak út marga anda, og hann leyfði ekki öndunum að mæla, af því að þeir þektu hann.“ Það er eins og einhverju óhemju flóði af lífskrafti hafi verið veitt gegnum þennan farveg. Og þessi kraftur er ekki eingöngu fyrir líkamann. Hann er líka fyrir sál- ina. „Þér eru þínar syndir fyrirgefnar," segir hann síðar við suma mennina. Það verður naumast skilið annan veg en þann, að hann hafi fundið að andlegur heilsustraumur hafi gengið frá sér til mannanna, er gæfi þeim styrk til þess að standast freistingarnar. Og þegar mennirnir hættu að syndga, þá væri fyrirgefningin fengin, alveg eins og kemur fram í dæmisögunni um týnda soninn. Og nú er það eftirtektarvert, sem gerist nóttina eftir þennan merkilega dag, sem eg hefi verið að segja frá: „Árla, löngu fyrir dögun“, segir guðspjailamaður- inn, „fór hann á fætur og gekk út, og fór til eyðistaðar, og baðst þar fyrir.“ Ný stórmerki eru í vændum. Læri- sveinarnir veita honum eftirför, og finna hann og segja honum, að allir leiti hans. En áður en hann leggur út í nýja úthelling kraftarins, verður hann að sækja sér kraftinn af hæðum. Það leynir sér svo sem ekki, að það er mystíkarans leið, sem hann fer. Mér hefir ávalt fundist ]>að furðu kynlegt, ]>egar lærðir guðfræðingar hafa verið að halda því að mönnum, að litlu eða engu máli skifti um þessi máttarverk, sem sagt er að Jesús hafi unnið. Kenningin og eftirdæmið sé oss nægilegt. Áreiðanlegt er ]>að, að í fyrstu kristni var ekki litið svo á, og ef engu öðru hefði verið til að dreifa, ]>á hefði enginn kristindómur orðið til. Þá eru engin líkindi til ])ess, að vér hefðum vitað neitt um Jesú frá Nazaret. Sambandið við guðdóminn var þungamiðjan, aðalatriðið, eins og eg hefi þegar tekið fram. Máttar- verkin voru tákn og sönnun þess sambands, eftir því sem á var litið. Og eftir frásögn guðspjallanna er það
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.