Fréttablaðið - 25.11.2010, Page 8
8 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR Sex skoskir skip-
stjórar, þar af tveir úr samtök-
um skoskra uppsjávarveiði-
manna, hafa viðurkennt fyrir
hæstarétti í Edinborg að hafa
veitt og landað ólöglega tugum
þúsunda tonna af makríl og síld.
Samtök uppsjávarveiðimanna
hafa gengið fremst í flokki
þeirra sem gagnrýna makríl-
veiðar Íslendinga.
Ólöglegu landanirnar áttu sér
stað á Hjaltlandseyjum á árun-
um 2002 til 2005. Alls reynd-
ist um 200 brotatilvik að ræða.
Aflaverðmætið nemur hátt í
þremur milljörðum íslenskra
króna eða fimmtán milljónum
sterlingspunda.
Fram kom við réttinn að brot-
in voru þaulhugsað frá hendi
útgerðarmanna og vinnsluaðila í
landi. - shá
Ólögleg veiði viðurkennd:
Stórfelld rán-
yrkja í Skotlandi
Allar verslanir eru sneisafullar af jólavörum, næg
bílastæði, góðir veitingastaðir og allir í jólaskapi.
Sjáumst - Smáralind
JÓLIN ERU KOMIN
Í SMÁRALIND
Í gjafahandbókinni finnur
þú góðar gjafir handa öllum
sem þú vilt gleðja um jólin.
Skoða má gjafahandbókina
á smaralind.is
JÓLAGJAFA-
HANDBÓK
SMÁRALINDAR
Einstaklega flott gjöf sem gaman
er að gefa og þiggja um jólin.
Hægt er að kaupa gjafakort á
smaralind.is og fá það
sent heim.
GJAFAKORT
SMÁRALINDAR
SAMGÖNGUR Í Bretlandi bíða þús-
undir manna enn eftir endurgreiðsl-
um og bótum frá flugfélögum sem
felldu niður ferðir í vor vegna ösk-
unnar frá Eyjafjallajökli.
Breska flugmálaeftirlitið hefur
sent viðvaranir til flugfélaganna,
enda ber þeim bæði að endurgreiða
fargjöld og greiða sanngjarnar
bætur vegna viðbótarkostnaðar.
Breska dagblaðið Daily Mail segir
að flugfélög hafi gert viðskipta-
vinum eins erfitt fyrir og mögu-
legt er. Til að mynda hafi þau ein-
hliða og án heimildar sett hámark
á greiðslur og margir fái einungis
greitt fyrir brot af því fjárhags-
tjóni sem þeir urðu fyrir. Einnig sé
tölvupóstum ekki svarað, þannig að
viðskiptavinir þurfi að hringja í dýr
símanúmer til að útskýra mál sitt.
Blaðið segir þetta stinga í augu,
ekki síst þegar flugfélög á borð
við Ryanair og EasyJet hafi nýlega
skýrt frá umtalsverðum rekstr-
arhagnaði. Þannig hafi hagnaður
Ryanair aukist um 17 prósent og
verið 452 milljónir punda, sem er
tíföld sú fjárhæð sem fyrirtækið
segir það hafa kostað sig að fella
niður tíu þúsund flugferðir vegna
öskunnar. Hagnaður EasyJet reynd-
ist þegar upp var staðið 152 millj-
ónir punda, þrátt fyrir 65 milljóna
kostnað vegna gossins. - gb
Bresk flugfélög draga á langinn bótagreiðslur vegna eldgossins í Eyjafjallajökli:
Þúsundir bíða enn bótanna
SKILA HAGNAÐI Þrátt fyrir tap vegna
niðurfellingar flugs skila bresku flugfé-
lögin góðum hagnaði. NORDICPHOTOS/AFP
UPPLÝSINGATÆKNI Ísland væri eitt
mesta ferðamannaland heims ef
taldir væru með rafrænir ferða-
langar eftir að gagnaver Opera
Mini farsímavafrans var tekið í
notkun í byrjun þessa mánaðar.
Þessu er haldið fram í tilkynningu
sem norska hugbúnaðarfyrirtækið
Opera Software sendi nýverið frá
sér þegar tekin var í notkun þjón-
usta Thor Data Center á Íslandi.
„Með því að smella á rofa ferð-
ast yfir 20 milljónir notenda Opera
Mini vafrans í Evrópu, Afríku og
Asíu, um Ísland þegar þeir nota
farsíma sína til þess að rápa um
netið,“ segir í tilkynningu fyrir-
tækisins.
Opera Mini er sagður vinsælasti
farsímavafri í heimi, en yfir 71
milljón manns er sögð nota hann
í hverjum mánuði. Vafranum er
hægt að hlaða niður af vef Opera
án endurgjalds og mun hann gagn-
ast yfir 3.000 mismunandi gerðum
farsíma, allt frá einföldum símum
til hátæknilegra.
Slíkan fjölda notenda segja tals-
menn Opera kalla á mjög öflugan
bakendabúnað. „Risastór gagnaver
kalla á mikið umfang vegna orku-
notkunar og kælingar. Stöðugt
framboð orku og kæling á Íslandi
gera staðinn að kjörlendi fyrir
gagnaver,“ segir í tilkynningu
fyrirtækisins.
„Flutningurinn hefur í för með
sér margþættan ávinning,“ er
haft eftir Jóni S. von Tetzchner,
íslenskum stofnanda Opera Soft-
ware. Hann bendir á umhverfis-
ávinning vegna þess að orkan og
kæliaðferðir séu „grænar“, hér á
landi sé öll tækni til staðar og fjár-
hagssvið Opera gleðjist yfir sparn-
aði sem náðst hafi fram. - óká
Í LAUGARDAL Rafrænir ferðalangar hafa viðkomu í íslenskum gagnaverum án þess að
hafa hugmynd um það. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fólk með símavafra frá Opera Software fer um gagnaver Thor Data Center:
20 milljónir notenda hafa viðkomu hér
UTANRÍKISMÁL Félagið Ísland-Pal-
estína efnir til samstöðufundar
með palestínsku þjóðinni í Nor-
ræna húsinu 29. nóvember. Fram
koma Árni Þór Sigurðsson þing-
maður, Sveinn Rúnar Hauksson
læknir, Kristín Sveinsdóttir og
Hjálmtýr Heiðdal.
Að frumkvæði Sameinuðu þjóð-
anna er alþjóðlegur samstöðu-
dagur með palestínsku þjóðinni
haldinn þennan dag ár hvert,
en félagið Ísland-Palestína var
stofnað á þessum degi árið 1987.
- gb
Efnt til fundar á mánudag:
Samstaða með
Palestínuþjóð
1. Hver er ríkisendurskoðandi?
2. Mynd af hverju málaði mynd-
listarkonan Bjargey Ólafsdóttir á
Langjökul í gær?
3. Hvað heitir bók Árna Mathiesen
um bankahrunið?
SVÖR
1. Sveinn Arason 2. Ísbirni 3. Árni Matt
– Frá bankahruni til byltingar
VEISTU SVARIÐ?