Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 10
10 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Greiðslur sjúkra-
dagpeninga úr sjúkrasjóði VR
lækkuðu um tæplega 140 milljón-
ir króna milli ára. Námu þær 365
milljónum fyrstu tíu mánuði ársins
en 505 milljónum á sama tímabili í
fyrra. Er munurinn 28 prósent.
Kristinn Örn Jóhannesson, for-
maður VR, segir mynstrið klass-
ískt. Þekkt sé að ásókn í sjúkra-
sjóði aukist í kjölfar kreppu og
annarra áfalla á vinnumarkaði
og því hafi ekki komið á óvart að
greiðslurnar hafi stórhækkað á
síðasta ári frá því sem var áður.
Lækkunin nú sé til marks um að
ástandið hafi batnað en framhald-
ið sé vissulega óljóst vegna óvissu
í efnahags- og atvinnumálum.
Önnur saga er sögð á Akranesi. Í
frétt frá Verkalýðsfélagi Akraness
segir að greiðslur sjúkradagpen-
inga hafi hækkað um 123 prósent á
milli ára. Það sem af er árinu hefur
sjúkrasjóður félagsins greitt út 23
milljónir króna í dagpeninga en á
sama tíma í fyrra nam fjárhæðin
tíu milljónum. „Ugglaust skýrir
ástandið á vinnumarkaðnum þessa
miklu aukningu og bendir margt
til þess að heilsufar félagsmanna
hafi í kjölfar kreppunnar versnað
þónokkuð ef tekið er tillit til þess-
arar miklu aukningar á greiðslum
úr sjúkrasjóði félagsins,“ segir í
fréttinni. - bþs
Sjúkradagpeningagreiðslur VR hafa lækkað aftur eftir stórhækkun í kjölfar hruns:
Lækka hjá VR en hækka á Akranesi
VILHJÁLMUR
BIRGISSON
KRISTINN ÖRN
JÓHANNESSON
...vegna þess að hann hefur
einstaka hæfileika til að sjá
hlutina í víðu samhengi.“
Helga Barðadóttir, stjórnsýslufræðingur
...til stjórnlagaþings. Einmitt
maðurinn sem við þurfum þar."
Björn Karlsson, brunamálastjóri
„Ég styð Þorkel Helgason ...
www.thorkellhelgason.is
1. val
2. val
2 8 5 3
0,20% 0,25%
3,45%
S
24
E
R
Í
EI
G
U
B
Y
R
S
Samanburður debetreikninga*
KALKÚNN SEM LIFIR Dagar þessa
kalkúns eru ekki taldir þrátt fyrir þakk-
argjörðardag í Bandríkjunum í dag,
þegar kalkúnakjöt er haft á borðum.
Bandaríkjaforseti náðar jafnan einn
kalkún ár hvert. NORDICPHOTOS/AFP
NÝJA-SJÁLAND, AP Engin von er nú
talin til þess að 29 námuverka-
menn, sem lokuðust inni við
sprengingu í námugöngum á föstu-
dag, finnist á lífi. Önnur sprenging
varð í göngunum í gær.
„Þetta er þjóðarharmleikur,“
sagði John Key, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands. Fánar verða dregn-
ir í hálfa stöng í dag og þingfund-
ir falla niður vegna atburðanna í
Pike River-námunni, sem þjóðin
hefur fylgst grannt með undan-
farna daga.
Báðar sprengingarnar voru
mjög öflugar. Talið er að eldfimt
eiturgas í göngunum hafi vald-
ið sprengingunum, en sama gasið
varð einnig til þess að björgunar-
menn komust ekki inn í göngin til
að bjarga þeim námuverkamönn-
um sem hugsanlega voru á lífi
eftir fyrri sprenginguna.
Peter Whittal, framkvæmda-
stjóri námunnar, segir aðstæðurn-
ar í göngunum hafa verið þannig
að seinni sprengingin hefði getað
orðið hvenær sem var. Aðgerð-
ir sem gripið var til í von um að
bjarga mönnum út úr námunni
hafi ekki orðið til þess að hrinda
af stað sprengingu.
„Þetta var náttúruleg atburða-
rás. Þetta hefði getað gerst á
öðrum degi eða þriðja degi,“ sagði
hann.
Aðstandendur námumannanna
höfðu safnast saman á dagleg-
an upplýsingafund og voru bjart-
sýnir á aðgerðir til að bjarga þeim
þegar fréttir bárust af seinni
sprengingunni.
Whittal fékk það hlutverk að
segja fólkinu tíðindin en þegar
hann byrjaði á að segja að björg-
unarmenn hefðu verið í þann
veginn að búa sig undir að fara
inn í námuna brutust út mikil
fagnaðarlæti.
„Ég þurfti að bíða þangað til
fólkið var búið að klappa til að
segja þeim að seinni sprengingin
hefði orðið,“ sagði hann.
Sumir ættingjanna féllu þá
saman en aðrir reiddust lögregl-
unni. „Þetta er okkar versti dagur,“
sagði Tony Kokshoorn, bæjarstjóri
í Greymouth, sem er skammt frá
námunni.
Slysið er eitt versta námuslys í
sögu Nýja-Sjálands. Námuvinnsla
hefur verið stunduð þar í 114 ár og
hefur hún kostað 210 manns lífið
allan þann tíma, að meðtöldum
þeim sem nú fórust í Pike River-
námunni. gudsteinn@frettabladid.is
Námumenn
allir taldir af
Eftir að önnur sprenging varð í námugöngunum á
Nýja-Sjálandi þykja engar líkur til þess að nokkur
finnist á lífi. Þjóðarsorg er á Nýja-Sjálandi í dag.
ÆTTINGJAR SYRGJA Við tíðindin af seinni sprengingunni féllu sumir aðstandenda
námumannanna saman. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ALÞINGI Bolungarvíkurkaupstaður
hefur óskað eftir að 81 milljón-
ar króna skuld við Íbúðalánasjóð
verði afskrifuð.
Í byrjun síðasta árs felldi sjóður-
inn niður 73 milljónir af 146 millj-
óna króna skuld sveitarfélagsins.
Afangurinn var frystur í eitt ár.
Nú vill Bolungarvíkurkaupstað-
ur að það sem eftir er verði líka
afskrifað. Ekki hefur verið tekin
afstaða til þess.
Þetta kemur fram í svari félags-
og tryggingamálaráðherra við
fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur
Framsóknarflokki.
Fyrirspurnin lýtur að skuldum
sveitarfélaga hjá Íbúðalánasjóði
vegna kaupa þeirra á félagslegu
húsnæði.
Fram kemur að sveitarfélögin
skuldi sjóðnum 44 milljarða og
að um sjö og hálf milljón sé í van-
skilum.
Vigdís spyr sérstaklega um
afskriftir skulda sveitarfélaga. Í
svarinu segir að skuldir sveitar-
félaga við sjóðinn séu afskrifaðar
eftir að eftirlitsnefnd um fjármál
sveitarfélaganna hefur óskað eftir
því vegna erfiðrar fjárhagsstöðu
viðkomandi sveitarfélags.
Árið 2002 hafi verið afskrifaðar
84 milljónir hjá Vesturbyggð, árin
2003 og 2006 hafi samtals 38 millj-
ónir hjá Ísafjarðarbæ verið afskrif-
aðar og 2005 hafi verið afskrifað-
ar 37 milljónir hjá Hríseyjarhreppi
þegar hann sameinaðist Akureyri.
- bþs
ÍLS hefur afskrifað skuldir fjögurra sveitarfélaga:
Bolvíkingar vilja
fá skuld afskrifaða
PÓLLAND, AP Stjórnlagadómstóll Pól-
lands hefur komist að þeirri niður-
stöðu að Lissabonsáttmáli Evrópu-
sambandsins brjóti ekki í bága við
stjórnarskrá Póllands.
Nokkrir þingmenn úr íhalds-
flokknum Lög og réttlæti, sem er
næststærsti stjórnmálaflokkur
landsins, vísuðu því til stjórnlaga-
dómstóls hvort það teldist brot á
fullveldi landsins að lög Evrópu-
sambandsins gætu verið æðri
landslögum. Þrátt fyrir áhyggjur
íhaldsmanna á þingi er stuðning-
ur við Evrópusambandið mikill í
Póllandi. - gb
Stjórnlagadómstóll Póllands:
Fullveldi ekki
rofið með ESB