Fréttablaðið - 25.11.2010, Síða 18
18 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR18
hagur heimilanna
„Bestu kaupin eru tvímælalaust þau þegar við hjónin
keyptum húsið í Kópavogi,“ segir Margrét Frímannsdóttir,
fangelsisstjóri á Litla-Hrauni. Hún segir allt hafa verið keypt
í einum pakka, gott hús og stóra lóð, sem nú sé orðin að
fallegum garði, og góða nágranna.
„Garðurinn er mitt helsta áhugamál. Ég er nánast
eingöngu með fjölærar plöntur, auk trjáa og runna. Ég
var svo heppin þegar við keyptum þá var lóðin í
algjörri niðurníðslu þannig að ég gat byrjað frá
grunni.“
Eiginmaður Margrétar, Jón Gunnar Ottósson,
ræktar með henni garðinn og er auk þess mjög
lagtækur við allt er varðar viðhald hússins og
endurbætur.
Auk skrautjurta ræktar Margrét epli í garð-
inum, tómata, gúrkur, kirsuber og plómur.
Uppskeran varð ríkuleg síðastliðið sumar,
að sögn Margrétar, sem kveður auðvelt að
nýta allt það sem tré, runnar og mold gefi
af sér. Plómurnar sem ekki séu borðaðar ferskar fari í sultu
og svo megi áfram telja.
„Það er ekki til neitt betra, sé maður þreyttur eða jafnvel
veikur en að fara út í garð og vinna þar. Það hreinsar
algjörlega hugann og endurnærir bæði sál og líkama,“
segir hún.
Það vefst ekki fyrir Margréti að nefna verstu kaupin,
enda passar hún að hafa ávöxt þeirra fyrir augunum til
áminningar um að gera ekki slíka skyssu oftar.
„Þetta er kápa sem ég keypti á „verslunarflippi“ í New
York og hef aldrei getað notað. Hún hvorki fór mér né
passaði almennilega. Ég hef heldur aldrei getað skýrt
hvers vegna í ósköpunum ég keypti hana. Hún er víti til
varnaðar því ég læt hana ekki frá mér, heldur hef ég
látið hana hanga uppi í skáp síðastliðin fimm ár
eða frá því að hún var keypt. Hún á að minna
mig á að maður skuli gefa sér tíma áður en
eitthvað er keypt. Enda hef ég ekki gert
svona galin kaup síðastliðin fimm ár.“
NEYTANDINN: Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni
New York-kápan er víti til varnaðar
6,93
Sala á jólabjór hefur aukist um
130 prósent miðað við sama tíma
í fyrra. ÁTVR hóf sölu á jólabjór
á fimmtudaginn í síðustu viku og
seldust um 75 þúsund lítrar fyrstu
þrjá dagana. Um 32 þúsund lítrar
seldust fyrstu þrjá dagana eftir að
bjórinn kom í sölu á síðasta ári.
Tekjur ÁTVR af jólabjór þessa
þrjá daga voru um 15 milljónir
króna með virðisaukaskatti.
Tuborg Julebryg stendur hæst
í sölu, en þó segir Sigrún Ósk
Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri
ÁTVR, margar af íslensku teg-
undunum seljast mjög vel. „Mér
finnst vera mun meiri umfjöllun
um þetta nú í ár heldur en áður,“
segir Sigrún Ósk. „Margir af
íslensku framleiðendunum eru
mjög sterkir þrátt fyrir að Tuborg
tróni á toppnum.“
Um 32.000 lítrar seldust af
Tuborg Julebryg, ýmist í dós eða
flösku. Er það um 43 prósent af
heildarsölu jólabjórs þessa daga.
Víking jólabjór og Kaldi jólabjór
fylgja fast á eftir.
Alls verður jólabjór frá sjö
íslenskum og fimm erlendum
framleiðendum í sölu hjá ÁTVR.
Að sögn Sigrúnar Óskar hefur
sala á áfengi þó dregist saman í
ár miðað við í fyrra. - sv
Andvirði sölu á jólabjór var um 15 milljónir króna fyrstu þrjá dagana í ár:
Um 130 prósenta söluaukning
ÁTVR Vinsældir jólabjórsins aukast til
muna á milli ára hér á landi.
90 kílómetra hámarkshraði
Aksturshraði Sekt í krónum* Svipting Refsipunktar
> = 96 km/klst. 10.000
> = 101/111 km/klst. 30.000/50.000 0/1 punktur
> = 121/131 km/klst. 70.000/90.000 2/3 punktar
> = 141/151 km/klst. 130.000/140.000 1/2 mánuðir 3 punktar
> = 161 km/klst 150.000 3 mánuðir 3 punktar
*Séu sektir greiddar innan 30 daga lækka þær um 25 prósent.
Heimild: Sektarreiknir Umferðarstofu (www.us.is)
50 kílómetra hámarkshraði
Aksturshraði Sekt í krónum* Svipting Refsipunktar
> = 56 km/klst. 5.000
> = 61/66 km/klst. 10.000/15.000
> = 71/76 km/klst. 20.000/25.000 0/1 punktur
> = 81/86 km/klst. 30.000/40.000 2/3 punktar
> = 91/96 km/klst. 50.000/60.000 3 punktar
> = 101/111 km/klst. 90.000/110.000 3 mánuðir 3 punktar
> = 121 km/klst. 130.000 3 mánuðir 3 punktar
30 kílómetra hámarkshraði
Aksturshraði Sekt í krónum* Svipting Refsipunktar
> = 36 km/klst. 5.000
> = 41/46 km/klst. 10.000/15.000 0/1 punktur
> = 51/56 km/klst. 20.000/25.000 2/3 punktar
> = 61/66 km/klst. 45.000/55.000 3 mánuðir 3 punktar
> = 71 km/klst. 70.000 3 mánuðir 3 punktar
30
„Ég kaupi alltaf rauðvín frá Síle í belgjum og helli
því í glæsilega karöflu. Þá virðist það ógurlega
fínt,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Hann segir rauðvín frá Síle jafnbest. „Ég kaupi
yfirleitt ýmist Concha y Toro eða Sunrise Caber-
net Sauvignon. Þá fær maður fjórar flöskur á
verði þriggja. Þegar ég er með kvöldverðarboð
helli ég víninu í karöflu. Maður þarf að eiga
fallega karöflu úr kristal, því þá tekur enginn eftir
muninum, sem ég held að sé enginn. Kvöldverð-
urinn verður jafn glæsilegur en fyrir 25 prósenta
lægri vínpening,“ segir Hannes.
GÓÐ HÚSRÁÐ HAGSTÆTT
BELJUVÍN Í FALLEGRI KARÖFLU
■ Háskólaprófessorinn Hannes Hólmsteinn
Gissurarson kaupir kassavín frá Síle.
50
90
Ýmis umferðarlagabrot og sektarfjárhæðir
5.000 króna sekt* 10.000 króna sekt* 15.000 króna sekt*
Ekið gegn einstefnu Óhlýðni við leiðbeiningum lögreglu Ekið gegn rauðu ljósi
Hangið í ökutæki Umferðarmerki fjarlægt eða breytt Biðskylda ekki virt
Truflandi leikur á vegi Vanræksla við tilkynningu á slysi Börn undir 15 ára án bílbeltis
Hindra för líkfylgdar Gagnbrautarréttur ekki virtur Aksturskeppni án leyfis
Ekið eftir gangstétt Óþarfa hávaði frá ökutæki Atvinnuakstur farþega án leyfis
Óheimil stöðvun Ökutæki lagt á brú
*Séu sektir greiddar innan 30 daga lækkar upphæðin um 25 prósent.
Heimild: Umferðarstofa - Reglugerð nr. 930/2006
LÍTRAR AF ALKÓHÓLI er það magn sem íslendingar yfir 15 ára aldri drukku að
jafnaði á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands. Breytingin er töluverð
síðustu ár. Tæpum áratug fyrr var talan 6,14 lítrar og 5,24 árið 1990.
lÍs en ku
ALPARNIR
s
ÚRVAL AF ÚLPUM
Faxafeni 8, 108 Reykjavík, Sími: 534 2727, www.alparnir.is
Góð gæði
Betra verð
Dömu 36 til 44
Verð 9,995,-
Herra 46 til 56
Verð 11,995,-
- í bílinn
- skólann
- vinnuna
- strætó
- á götuna
Mikið úrval af úlpum frá
Icepeak á alla fjölskylduna
Með loðkraga,
Stærð 116 til 176
Verð. 14,995 3-litir
Skóla- og skíðaúlpa
Stærð 116 til 176
Verð. 13,995 3-litir
Umferðarlagabrot eru 30
prósentum færri í október
í ár miðað við sama mánuð
í fyrra. Nýliðum í umferð
sem brjóta af sér fækkaði
um 60 prósent eftir að
reglur um akstursbann tóku
gildi árið 2007.
Skráð umferðarlagabrot í október
síðastliðnum voru 4.487 og af
þeim voru um 57 prósent á höf-
uðborgarsvæðinu og 19 prósent
á Selfossi. Hraðakstursbrot voru
3.160, sem jafngildir um 102 brot-
um á dag. Í október á síðasta ári
voru umferðarlagabrot 6.088, sem
þýðir að brotum hefur fækkað um
30 prósent miðað við sama mánuð
í fyrra.
Einar Magnús Magnússon, upp-
lýsingafulltrúi Umferðarstofu,
segir hraða á vegum landsins hafa
lækkað á síðustu árum.
„Það má segja að harðari við-
urlög, hækkun sekta og ýmis
önnur úrræði sem tóku gildi árið
2007 hafi haft áhrif,“ segir Einar.
„Einnig aukið eftirlit lögreglu,
hraðamyndavélar og mögulega
hækkandi eldsneytisverð.“ Svo-
kallað akstursbann tók gildi í
apríl árið 2007. Það snýr að ungum
ökumönnum sem eru með bráða-
birgðaskírteini og fái þeir fjóra
eða fleiri refsipunkta eru þeir
settir í akstursbann. Banninu er
aflétt eftir að ökumenn sækja sér-
stakt námskeið og hafa endurtekið
ökuprófið.
Nýliðum í umferð sem brjóta af
sér hefur fækkað um 60 prósent
síðan bannið tók gildi og 65 pró-
sent þeirra sem gerðust brotleg-
ir brutu ekki af sér aftur. Einar
segir bannið hafa gefist mjög vel.
„Það hefur verið frábær árang-
ur af þessu og þetta hefur dregið
gífurlega úr ofsaakstri ungra öku-
manna,“ segir Einar.
Varðandi almenn hraðaksturs-
brot og sektarfjárhæðir sem þeim
fylgja segir Einar að fólk eigi að
hugsa málin svo að fjárhæðirnar
séu mun lægri heldur en kostnað-
urinn sem fylgi því að valda slysi
eða tjóni.
„Í raun þá ætti maður að fagna
því þegar lögreglan grípur inn í
áður en slíkt gerist. Ef Pollýanna
er tekin á þetta þá getur maður
séð hlutina með þeim augum.“
sunna@frettabladid.is
Hærri fjársektir
skila árangri