Fréttablaðið - 25.11.2010, Qupperneq 20
25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR20
Umsjón: nánar á visir.is
VIÐSKIPTI Microsoft hefur tekið
íslenska upplýsingatæknifyrir-
tækið Skýrr inn í svokallaðan
„Inner Circle“ hóp samstarfsaðila
Microsoft.
„Þangað komast einungis þau
fyrirtæki sem Microsoft telur
hafa sýnt bestan árangur í að
nýta Microsoft Dynamics-við-
skiptalausnir til að þróa og efla
starfsemi viðskiptavina sinna,“
segir í tilkynningu Microsoft á
Íslandi. „Fyrirtæki sem komast í
innsta hring hjá Microsoft halda
nafnbótinni eitt ár í senn. Í ár
komast einungis 72 af samstarfs-
aðilum Microsoft í innsta hring
hjá Microsoft.“ - óká
Skýrr er með í innsta hring:
Halda nafnbót-
inni ár í senn
Heildareignir innlánsstofnana
námu 2.833 milljörðum króna
í lok síðasta mánaðar og höfðu
lækkað um 27,3 milljarða frá
fyrra mánuði, að því er fram
kemur í hagtölum Seðlabanka
Íslands.
„Innlendar eignir lækkuðu um
42,9 milljarða króna en erlendar
eignir hækkuðu um 15,6 millj-
arða,“ segir þar, en jafnframt
kemur fram að heildarskuldir
innlánsstofnana hafi numið 2.435
milljörðum króna í lok október.
Skuldirnar lækkuðu um 77,4
milljarða á milli mánaða. „Inn-
lendar skuldir lækkuðu um 64,45
milljarða króna en erlendar
skuldir lækkuðu um 13 milljarða
króna.“ - óká
Heildareignir banka rýrna:
Skuldir lækka
milli mánaða
Breska fyrirtækið Teknomek
hefur endurnýjað samning
sinn við Nordic eMarketing um
áframhaldandi markaðssetningu
þess á netinu. Fram kemur í til-
kynningu að um þriðju endurnýj-
un samningsins sé að ræða.
Haft er eftir Hreggviði
Magnús syni, framkvæmdastjóra
Nordic eMarketing, að fyrirtækið
hafi náð ákveðinni sérþekkingu í
markaðssetningu viðskipta milli
fyrirtækja og það sé ástæða þess
að fyrirtæki á borð við Teknomek
leiti slíkrar þjónustu hér á landi.
„Teknomek sérhæfir sig í
framleiðslu húsgagna og búnaðar
úr ryðfríiu stáli,“ segir í tilkynn-
ingu og haft er eftir forstjóra
fyrirtækisins að netmarkaðs-
setningin hafi skilað töluverðum
árangri. - óká
Samstarfið heldur áfram:
Endurnýja
samning í
þriðja sinn
Orkuveitan (OR) vinnur að undir-
búningi skuldabréfaútboðs og stefn-
ir á að selja lífeyrissjóðum bréf til
24 ára fyrir fimm milljarða króna.
Þetta er framhald af útboði í árs-
lok 2009 þegar OR sótti sér jafn
háa upphæð. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um frekari skuldabréfaút-
gáfur á innlendum markaði hjá OR.
Rætt er um að auka hlut innlendra
lána í lánasafni OR með því að gefa
út skuldabréf með reglubundnum
hætti í framtíðinni fyrir tiltölu-
lega lágar upphæðir, hálfan til einn
milljarð króna í hvert sinn.
Helgi Þór Ingason, forstjóri OR,
segir umfangsmikla uppstokkun á
rekstri fyrirtækisins hafa tekist
vel, sjóðsstreymi hafi verið tryggt
með gjaldskrárhækkun og vísitölu-
bindingu hennar auk niðurskurð-
ar og áherslum í rekstri breytt. Þá
muni um að eigendur OR hafi fall-
ið frá arðgreiðslum. Eftir snarpa
uppgreiðslu lána næstu fimm árin
verði endurfjármögnunarþörf engin
að því gefnu að ekki verði farið út
í frekari fjárfestingar. „Við höfum
orðið mjög sterka stöðu til að greiða
niður skuldir,“ segir Helgi.
Heildarskuldir OR námu tæpum
236,6 milljörðum króna í lok síðasta
árs. Þar af voru skammtímaskuldir
23 milljarðar króna og hefjast við-
ræður fljótlega um hundrað miljóna
evra láni sem er á gjalddaga árið
2013. Afgangurinn eru lán í takt við
endingartíma framkvæmda OR, eða
til aldarfjórðungs í viðbót.
Orkuveita Reykjavíkur fjármagnar sig með reglubundnum skuldabréfaútboðum:
Verður á lygnum sjó árið 2015
Á sama tíma og flest virtist í kyrrstöðu hér í fyrra varði OR 21 milljarði króna
í fjárfestingar. Það sem af er ári hafa framkvæmdir og önnur vinna kostað
þrettán milljarða. Þar af fóru 27 milljarðar í uppbyggingu virkjana á Hellis-
heiði. Stefnt er á að því að gangsetja 5.áfanga virkjunarinnar næsta haust.
Anna Skúladóttir, fjármálastjóri OR, segir að gera þurfi ráð fyrir sjö til átta
milljörðum á ári í viðhalda eignum OR. Verðmæti þeirra nam 241 milljarðí
króna í lok síðasta árs. Uppstokkun á rekstri OR meðal annars í sér að auka
hlutfall innlendra lána. Meirihluti þeirra er þegar í krónum. Þetta ræðst þó af
því hvaða vaxtakjör eru í boði á innlendum markaði samanborið við erlenda
að teknu tilliti til áhættu. Tekjur OR af dreifingu og framleiðslu námu um 26
milljörðum króna í fyrra, Erlendar tekjur OR eru nú 22 prósent af heildar-
tekjum. Gangi áætlanir eftir munu þær verða um fjórðungur.
Fjárfestu fyrir 21 milljarð króna
HELLISHEIÐARVIRKJUN Orkuveita Reykjavíkur hefur varið sextán milljörðum
króna til uppbyggingar Hellisheiðarvirkjunar það sem af er árs. Stefnt er á að
ljúka framkvæmdum á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sala á nýju íbúðarhúsnæði í
Bandaríkjunum dróst saman
um 8,1 prósent á milli mánaða í
október, samkvæmt upplýsingum
bandaríska viðskiptaráðuneytis-
ins. Þetta er þvert á væntingar
enda bjuggust flestir við að velta
á fasteignamarkaði myndi glæð-
ast vestanhafs.
Bloomberg-fréttaveitan bend-
ir á að sala á íbúðarhúsnæði í
Bandaríkjunum sé enn nálægt
botninum og hefur eftir sérfræð-
ingum að ekki sé útlit fyrir að
hún muni aukast fyrr en dragi úr
atvinnuleysi á næsta ári. Í ágúst
seldust 275 þúsund nýjar íbúðir
en svo lágar tölur hafa aldrei sést
vestra. Viðskiptaráðuneytið hóf
að taka saman tölur um kaup á
íbúðarhúsnæði árið 1963. - jab
Þrengingar í Bandaríkjunum:
Enn samdráttur
á markaðnum
HÚS TIL SÖLU Mjög hefur dregið úr sölu
fasteigna í Bandaríkjunum þrátt fyrir að
það versta í kreppunni virðist að baki.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1% ER SPÁ HAGSTOFUNNAR um vöxt í útflutningi á næsta ári. Gert er ráð fyrir mikilli grósku í þjónustuútflutningi og útflutningi á öðrum vörum en í sjávarútvegi og stóriðju.
Fjárfestahópur undir forystu Heið-
ars Más Guðjónssonar var tilbúinn
til að greiða samtals ellefu milljarða
króna fyrir Sjóvá. Stefnt var að því
að skrá tryggingafélagið á markað
eins fljótt og auðið var. Ríkið lagði í
kringum ellefu milljarða inn í Sjóvá
til að forða félaginu frá gjaldþroti
í fyrra.
Hópurinn ætl-
aði að kaupa
tæpan 83 pró-
senta hlut Eigna-
safns Seðla -
b a n k a n s o g
Íslandsbanka í
Sjóvá í tveim-
ur hlutum. Í
kjölfarið átti að
bjóða skilanefnd
Glitnis, sem á
17,7 prósent í
Sjóvá, að selja hlut sinn á sama
gengi og öðrum bauðst.
Núverandi eigendur Sjóvár voru
tilbúnir að selja fjárfestahópnum
hlut sinn nema skilanefnd Glitnis
sem taldi verðið of lágt.
Samningar tókust í sumar og
hefur Heiðar sagt aðeins vanta
undirskrift Más Guðmundssonar
seðlabankastjóra til að innsigla þau.
Dráttur varð á að af því yrði. Fjár-
festahópurinn gaf Seðlabankanum
frest til 22. október til að ljúka mál-
inu. Að öðrum kosti yrði litið svo á
að viðræðum yrði slitið. Það seinna
varð ofan í vikunni.
Heiðar greindi frá því í gær að
hann hefði sent kvörtun til umboðs-
manns Alþingis vegna vinnubragða
Seðlabankans og útilokar ekki að
bankinn sé skaðabótaskyldur.
Heiðar segir í tölvuskeytum til
Fréttablaðsins í gær fjárfestana
hafa ætlað að fjármagna kaupin
með eigin fé að öllu leyti og án lána.
Stærstu fjárfestarnir voru lífeyris-
sjóðir en sjálfur ætlaði Heiðar að
leggja til 490 milljónir króna. Hann
segir skrif og vangaveltur um afl-
andskrónur sem honum er brigslað
um að hafa í hyggju að nota í við-
skiptunum fjarstæðu og til þess
eins að sverta mannorð sitt.
Heiðar ætlaði að koma að kaupun-
um í gegnum félag sitt Ursus. Félag-
ið hagnaðist um 1,2 milljónir króna
í fyrra. Eignir þess námu tæpum
208 milljónum króna og skuldir
108 milljónum. Þar af eru 97 millj-
ónir skuld við Heiðar sjálfan. Eigið
fé nam 99,9 milljónum króna í lok
síðasta árs.
Heiðar bendir á að hrein eign
Ursusar sé í raun 200 milljónir
króna. Til viðbótar átti að styrkja
fjárhaginn um 490 milljónir með
skuldabréfaútboði. „Ég er síðan
með peninga tiltæka til að borga
það sem upp á vantar,“ segir Heið-
ar og bendir á að FME hafi fengið
allar upplýsingar um hans persónu-
legu hreinu eign. „… sem dugar til
að borga minn hluta kaupverðsins
að fullu án nokkurra lána,“ segir
Heiðar. jonab@frettabladid.is
HEIÐAR MÁR
GUÐJÓNSSON
HÖFUÐSTÖÐVAR SJÓVÁR Tryggingafé-
lagið átti ekki að vera lengi í höndum
fjárfesta. Markmiðið var að skrá það á
hlutabréfamarkað eins fljótt og hægt
var. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Ætlaði að skrá Sjóvá
á hlutabréfamarkað
Ríkið hefði komið út á sléttu hefði Seðlabankinn tekið tilboði fjárfestahóps í
Sjóvá. Fjárfestarnir eru ævareiðir yfir málalokum og hafa kært ferlið til um-
boðsmanns Alþingis. Margar umsóknir eru sagðar rykfalla hjá Fjármálaeftirliti.
Beðið eftir Fjármálaeftirlitinu
Fjármálaeftirlitið (FME) fékk umsókn um hæfi fjárfestahópsins til að kaupa
Sjóvá inn á borð til sín í ágúst. Umsóknin var enn í vinnslu þegar hópurinn
hætti við kaupin á föstudag og verður ekki haldið áfram með hana. Lögum
samkvæmt þurfa virkir eigendur tryggingafélags að ráða yfir fjárhagslegum
styrk og orðspor þeirra að vera með þeim hætti að það rýri ekki traust
félagsins. Ekki hafa fengið svör um það frá FME hvort hópurinn hafi uppfyllt
skilyrðin eður ei. Nokkur fjöldi umsókna um hæfi fólks til að eiga og stýra
fjármálatengdu fyrirtæki er sagður liggja hjá FME. Nokkrar þeirra frá fyrr-
verandi starfsmönnum bankanna og starfandi fjármálafyrirtækjum. Pirrings
gætir í röðum nokkurra þeirra sem Fréttablaðið hefur rætt við enda hafa
þeir lengi beðið svara um hæfi sitt. Sumir þeirra sögðu FME nýta fresti sína
til hins ýtrasta, jafnvel reyna að hliðra sér hjá því að komast að niðurstöðu
um hæfið. Ekki fengust upplýsingar í gær um fjölda umsókna hjá FME þegar
eftir því var leitað í gær.