Fréttablaðið - 25.11.2010, Síða 30
25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR30
timamot@frettabladid.is
Í kvöld verður frumsýndur í Smára-
skóla í Kópavogi forvarnasöngleikur-
inn Lífið er leikur eftir Elvar Braga-
son og Katrínu Magnúsdóttur. Þau hafa
unnið sýninguna í samstarfi við fimmt-
án krakka á aldrinum níu til fimmtán
ára á sjálfsstyrkingarnámskeiðinu
TST.
„TST er barna- og unglingastarf Líf-
sýnar,“ segir Elvar. „Við erum með
sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 6-16
ára krakka í samstarfi við námsráð-
gjafa grunnskólanna í Kópavogi. Hóp-
arnir okkar eru aldursskiptir og við
tvinnum saman tómstundir, sjálfs-
styrkingu og tónlist. Stefna TST er að
efla sjálfstraust barna og ungmenna og
byggja þannig upp sterka forvörn fyrir
framtíðina.“
Elvar fór af stað með starfsemi Líf-
sýnar fyrir fjórum árum norður á
Húsavík, en þaðan er hann upprunn-
inn. Hvernig kom það til? „Ég er sjálf-
ur óvirkur alkóhólisti og búinn að vera
edrú í átta ár,“ segir Elvar. „Fljótlega
eftir að ég varð edrú fór ég að skrifa
hugleiðingar á heimasíðuna. Í kjölfar-
ið fór ég af stað með tónlistarnámskeið
fyrir tólf til sextán ára unglinga.“
Starfsemin hefur vaxið mikið síðan
og í höfuðstöðvum Lífsýnar á Digranes-
veginum í Kópavogi er boðið upp á ráð-
gjöf fyrir fólk á öllum aldri, sem á erf-
itt með að fóta sig í lífinu hvort heldur
er vegna fíknar eða annarra erfiðleika.
Lífsýn er einnig komin í samstarf við
grunnskólana í Kópavogi með námskeið
eins og það sem gat af sér söngleikinn
Lífið er leikur. En hvert er viðfangs-
efni verksins? „Söngleikurinn fjallar
um unglinga í grunnskóla í Kópavogi í
dag, sem eru að uppgötva hver þau eru
og hvernig þau vilja vera og líta út og
svo framvegis,“ segir Elvar. „Það er
erfitt að vera unglingur á Íslandi í dag.
Það þarf að berjast fyrir viðurkenn-
ingu frá jafnöldrum, kennurum og for-
eldrum sem reynist oft vera þrautin
þyngri og margt getur farið úrskeið-
is. Söngleikurinn fjallar um forvarnir
gegn vímugjöfum, einelti, ótta og öllu
þessu sem mæðir á unglingunum. Með
þessari sýningu viljum við vekja umtal
og umfjöllun um forvarnir af ýmsu
tagi og leggja áherslu á það að börn og
unglingar fái að njóta þess að vera þau
sjálf eins og þau eru.“
Krakkarnir á námskeiðinu lögðu
sjálfir til sögur sem unnið var úr við
gerð söngleiksins, en Elvar semur alla
tónlist og söngtexta sjálfur.
Nánar má fræðast um starfsemi Líf-
sýnar á heimasíðunni www.lifsyn.is.
fridrikab@frettabladid.is
SJÁLFSSTYRKINGARNÁMSKEIÐ LÍFSÝNAR: LÝKUR MEÐ SÝNINGU SÖNGLEIKS
Lífið er leikur í Kópavogi
NÝR SÖNGLEIKUR Krakkarnir á námskeiðinu lögðu sjálfir til sögur sem unnið var úr við gerð
söngleiksins, en Elvar semur alla tónlist og söngtexta sjálfur.
Merkisatburðir
1491 Umsátrið um Granada, síðasta vígi Mára á Spáni, byrjar.
1867 Alfred Nobel fær einkaleyfi fyrir dínamíti.
1905 Karl Danaprins kemur til Noregs til að taka við konung-
dómi sem Hákon VII.
1920 Fyrsta þakkargjörðarskrúðgangan farin í Fíladelfíu.
1940 Breska herstjórnin lýsir allt hafsvæðið milli Vestfjarða og
Grænlands hættusvæði. Gjöful fiskimið eru því lokuð fyrir
sjómönnum þar til hættusvæðið er minnkað 21. janúar
1941.
1961 Sundlaug Vesturbæjar í Reykjavík vígð. Hún er talin mjög
fullkomin.
1963 John F. Kennedy, bandaríkjaforseti, jarðsettur í Arlington-
kirkjugarðinum í Washington DC.
1976 Hljómsveitin The Band heldur lokatónleika sína í Winter-
land Ballroom í San Fransisco.
1984 Julio M. Sanguinetti kosinn forseti Úrúgvæ.
2008 Bílsprengja verður þremur mönnum að bana og særir
einn í Pétursborg í Rússlandi.
ANTHONY BURGESS
rithöfundur, sem þekktastur er fyrir Clockwork Orange, lést þennan dag árið 1993, 76 ára að aldri.
„Hlæðu og heimurinn hlær með þér, hrjóttu og þú sefur einn.“
Leikrit Agöthu Christie, Músagildran, var frum-
sýnt í New Ambassadors Theatre í London
hinn 25. nóvember 1952. Þar var það sýnt
óslitið þangað til í mars 1974, þegar sýningin
var flutt í leikhúsið við hliðina, St Martin’s
Theatre, þar sem hún gengur enn.
Christie átti sjálf ekki von á þessari vel-
gengni. Í sjálfsævisögu sinni segir hún frá sam-
tali sem hún átti við Peter Saunders, framleið-
anda sýningarinnar, sem sagðist gera ráð fyrir
að sýna leikritið í fjórtán mánuði. „Það gengur
aldrei svo lengi,“ svarar Christie. „Kannski átta
mánuði í mesta lagi.“
Á frumsýningunni var Trotter liðþjálfi leikinn
af Richard Attenborough og konu hans, Sheila
Sim, lék Mollie Ralston. Núorðið er leikurum
í sýningunni skipt út árlega, oftast í kringum
afmæli sýningarinnar í nóvember.
Heimild: Wikipedia
ÞETTA GERÐIST 25. NÓVEMBER 1952
Músagildran frumsýnd í London
Vegna jarðarfarar Eyjólfs Karlssonar verður
fyrirtækið lokað frá kl.12:00 – 16:00 í dag
fimmtudag 25. nóvember 2010.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sverrir Aðalbjörnsson
andaðist á Líknardeild Landakotsspítala sunnudaginn
21. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju
mánudaginn 29. nóvember kl. 15.00. Þeim sem
vildu minnast hins látna er bent á Minningarsjóð
Líknardeildar Landakots.
Ragnheiður J. Sverrisdóttir
Aðalbjörn J. Sverrisson Anna J. Karlsdóttir
Ágúst B. Sverrisson Erla Kjartansdóttir
Þorbjörg Steinarsdóttir Pétur Ágústsson
Heidi Krogholt
Normandy del Rosario
John Paul del Rosario
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra er
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu
Ásdísar Gíslínu
Ólafsdóttur
Miðtúni 7, Sandgerði.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki D-deildar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir einstaka umönnun
og hlýtt viðmót.
Arthúr Guðmannsson
Ólafur Arthúrsson Eygló Antonsdóttir
Guðrún Arthúrsdótttir Eggert Þór Andrésson
Hallgrímur Arthúrsson Inga Jóna Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegi pabbi okkar,
Carl J. Brand
andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði laugardaginn
20. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Elísabet M. Brand
Bergljót B. Brand
Eiginmaður minn og faðir okkar
Sigurður Sigurðsson
Hamrahlíð 30, Vopnafirði,
lést á heimili sínu 20. nóvember. Útför hans fer fram
frá Vopnafjarðarkirkju mánudaginn 29. nóvember
kl. 14.
Friðdóra Tryggvadóttir
Sigtryggur Sigurðsson
Sigurður Sigurðsson
Gerður Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
„Þetta er hafsteinn,“ sagði
Hafsteinn Karlsson glettn-
islega í upphafi máls síns
er hann afhenti nýlega
Önnu S. Björnsdóttur Stein-
inn, heiðursviðurkenningu
félaga í Ritlistarhópi Kópa-
vogs. „Það kom vel á vond-
an,“ segir Anna glaðlega
þegar Fréttablaðið náði tali
af henni eftir athöfnina. „Ég
hafði nefnilega gefið út bók
fyrir sautján árum sem hét
Skilurðu steinhjartað og það
var mynd utan á henni af
hangandi steini.“
Anna er að vonum ánægð
með viðurkenninguna og
hina glæsilegu athöfn sem
lista- og menningarráð
Kópavogs stóð á bak við.
Þar fjallaði Sölvi Björn Sig-
urðsson bókmenntafræðing-
ur um skáldskap hennar og
Þorvaldur Örn Árnason og
Ragnheiður E. Jónsdóttir
fluttu ljóð hennar við gítar-
undirleik. Auk þess las Anna
sjálf upp eigin verk. Hún er
með nýja bók sem nefnist
Draumar eru lengi að ræt-
ast og kemur líka út á þýsku
enda kveðst hún hafa heil-
mikil tengsl við Þýskaland.
„Ég er að fara á bókamess-
una í Frankfurt 2011,“ segir
hún brosandi. „Er búin að
stefna að því í þrjú ár.“ - gun
Hlaut Steininn í
skáldaverðlaun
VERÐLAUNAHAFINN „Þetta var
yndisleg athöfn og ég fékk bæði
verðlaun og blóm,“ segir Anna
ánægð. MYND/LILLÝ GUÐBJÖRNSDÓTTIR