Fréttablaðið - 25.11.2010, Page 31
25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
É
g keypti þennan kjól fyrir um það bil fjór-
um árum en gleymdi honum síðan! Ég var
að uppgötva hann aftur og hef notað hann
mikið núna þegar ég kem fram að kynna
nýja diskinn minn,“ segir Regína Ósk Óskarsdótt-
ir sönkona, en hún gaf nýverið út jóladiskinn, Um
gleðileg jól.
Regína segist algjör kjólakona en á umslagi disks-
ins er hún einmitt í drifhvítum kjól sem hún á sjálf. „Ég
elska kjóla hvort sem þeir eru síðir eða stuttir og þá sér-
staklega „second-hand“ kjóla, sniðin eru svo kvenleg. Ég
versla mikið í Rokki og rósum og í búð sem heitir „Ein-
stakar ostakökur“, en hún selur nýja kjóla í gamla stíln-
um, alveg geggjuð!“
Regína segist aldrei ganga í buxum og lýsir fatastíl
sínum sem kvenlegum og þægilegum. Eins segist hún
ekki fara út úr húsi nema á háum hælum, hvað ætli hún
eigi þá marga hælaskó?
„Ekkert eitthvert rosalegt magn,“ segir hún hlæj-
andi. „Þetta eru kannski sjö til átta pör sem ég nota
en ætli að það leynist ekki um það bil tuttugu pör í
skápnum í heildina.“
Geng aldrei
í buxum
Regína Ósk söngkona er mikil kjólakona og klæðist drifhvítum sparikjól á umslagi nýs jóladisks.
Listh
Sofðu vel um jólin
IQ-Care heilsudýnur.
Verð Queen 153x203 cm á
íslenskum botni: 179.900 kr.
Íslenskur höfuðgafl 84.900 kr.
(Sé keypt rúm fæst 20%
afsláttur af höfuðgafli.)
Úrval af stillanlegum
rúmum.
2x80x200 cm með
okkar bestu IQ-care
heilsudýnu.
Verð frá 339.900 kr.
BOAS
Leður hægindastóll.
Verð 79.900
Leður hægindasófi 3 sæta
Verð frá 169.900
Svefnsófi verð frá 169.900
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
20% afsláttur
af öllum kjólum
og skokkum
Frábært úrval af hversdags og
sparikjólum!
Stærðir 36-52
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvali
www.gabor.is
Sérverslun með
Vefverslunin www.asos.com býður upp á ótrúlegt úrval
kjóla sem er hægt að fá senda heim hvert á land sem er. Leitar-
vélin er sérstaklega aðgengileg og er hægt að leita eftir litum,
stærðum, merkjum og stíl. Þá er hægt að velja nöfn þekktra ein-
staklinga og fá upp kjóla og föt í þeirra anda. Victoria Beckham
og Cameron Diaz eru á meðal þeirra sem eru á listanum.