Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 60
40 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR The Dark Knight Rises verður síðasta myndin sem Christian Bale mun klæðast skikkju Leð- urblökumannsins í. Þetta kom fram í samtali Bale við fjölmiðla nýverið. Bale hefur leikið Batman og Bruce Wayne í tveimur mynd- um eftir Chris Nolan sem báðar hafa slegið í gegn hjá áhorfend- um um allan heim. Bale kom hingað til Íslands þegar tökur á fyrri myndinni, Batman Begins, hófust en þær fór að mestu leyti fram við Svínafellsjökul. Þeirri mynd var ákaft fagnað enda hafði Leðurblökumaðurinn þá legið í dvala síðan að George Clooney og Arnold Schwarzenegger frystu þessa elskuðu myndasöguhetju. Það var hins vegar Dark Knight-myndin sem setti ný við- mið í myndasögu-kvikmyndageir- anum. Heath Ledger fór á kost- um í hlutverki Jókersins, Katie Holmes var skipt út fyrir Magg- ie Gyllenhaal. Þriðja myndin er nú í vinnslu og mun enski leikar- inn Tom Hardy að öllum líkind- um leika aðalþrjótinn. Michael Caine verður á sínum stað sem hinn hundtryggi og ráðagóði þjónn Alfred og þeir Gary Old- man og Morgan Freeman verða einnig á sínum stað. Christian Bale segir bless við Batman Í SÍÐASTA SINN Christian Bale býst við því að næsta Batman-mynd, Dark Knight Rises, verði hans síðasta. Ástralskir og reyndar nýsjálenskir kvikmynda- gerðarmenn hafa undan- farin ár tekið Ameríku með trompi í mörgum skiln- ingi þess orðs. Þeir eru í fremstu röð en reyna um leið að halda tryggð við heimalandið. Um helgina geta sannir aðdáend- ur Russells Crowe skropp- ið í bíó og séð dæmigerða Crowe-mynd, The Next Three Days. Að þessu sinni leikur Crowe mann sem horfir upp á eiginkonuna sína dæmda sak- lausa í fangelsi fyrir hrottalegt morð. Þegar henni er neitað um reynslulausn í þrígang og hennar bíður ekkert nema tuttugu ára tukt- húsvist tekur Crowe til sinna ráða og reynir að frelsa hana úr fang- elsi. Leikstjóri er Paul Haggis en með önnur hlutverk í myndinni fara þau Elizabeth Banks, Liam Neeson og rapparinn RZA. Crowe er í hópi þeirra andfætl- inga okkar frá Ástralíu og Nýja- Sjálandi sem hafa farið í víking til Hollywood og tekist nokkuð vel upp. Hann hefur fengið Óskars- verðlaun og verið úthlutað mörgum af bitastæðustu hlutverkum kvik- myndaborgarinnar. Um leið hefur hann verið ákaflega duglegur að koma sér í fréttir fyrir skapofsa og símakast á hótelum, nánar tiltekið í New York. Crowe, sem er fædd- ur á Nýja-Sjálandi en alinn upp í Ástralíu, er auðvitað ekki eini and- fætlingurinn sem hefur átt í erfið- leikum með að hemja skap sitt. Það virðist vera lenska með ástralskar stórstjörnur. Erroll Flynn fór til að mynda vestur um haf og sló í gegn sem Hrói höttur. Flynn var hins vegar einnig skelfilegur drykkju- maður, sprautaði vodka í appelsínur og át þær eftir að honum var bann- að að drekka á tökustað enda lést Flynn aðeins fimmtugur að aldri. Annað gott dæmi um óheilla- krákuna sem eltir ástralska leikara er auðvitað Mel Gibson. Leikarinn ruddi vissulega brautina fyrir ástralska leikara og varð einn sá áhrifamesti í Hollywood. Harms- aga Gibsons er hins vegar með ólíkindum og kannski óþarfi að rifja hana upp í mörgum orðum. Honum tókst á ótrúlegan hátt að rústa orðspor sitt með ákaflega heimskulegum gjörðum utan hvíta tjaldsins. Einn mesti missir ástr- alskrar kvikmyndagerðar varð síðan þegar Heath Ledger féll frá langt fyrir aldur fram í lok janúar 2008, aðeins 28 ára. Ledger var á góðri leið með að skáka Gibson og Crowe með stórkostlegri frammi- stöðu í Brokeback Mountain og sem Jókerinn í Batman-myndinni Dark Knight þegar hann dó. Ástr- alskar leikkonur hafa hins vegar að mestu leyti verið til friðs utan tökustaða, ólíkt körlunum. Nicole Kidman skaust upp á stjörnuhim- ininn í Days of Thunder þar sem hún kynntist Tom Cruise og giftist honum. Eftir að þau skildu hefur ferill hennar tekið mikið stökk upp á við og hún verður að teljast ein skærasta kvikmyndastjarna Ástr- alíu fyrr og síðar. Þótt þessi fjögur hafi haldið fána Ástralíu á lofti í Ameríku þá hefur fjöldi ástralskra leikara komið ár sinni vel fyrir borð þar vestra. Cate Blanchet er til að mynda í hópi virt- ustu leikkvenna Hollywood um þessar mundir og leikarar á borð við Hugh Jackman, Eric Bana og Geoffrey Rush þykja eftirsóknar- verðir starfskraftar. Og þótt ekki hafi farið mikið fyrir Guy Pearce þá er ferill hans í kvikmyndaborginni frábær. freyrgigja@frettabladid.is EFTIRSÓTTIR ANDFÆTLINGAR > VEL GERT HARRY Kvikmyndin Harry Potter og dauðadjásnin setti nýtt miðasölu- met í sögu kvikmyndanna um töfrastrákinn um helgina þegar hún halaði inn 125 milljónum dollara. Fyrra metið átti Harry Potter og eldbikarinn. Kvikmyndin Agora eftir Óskars- verðlaunahafann Alejandro Amenábar fjallar um síðustu daga Rómaveldis og hetjulega baráttu heimspekingsins, stærð- fræðingsins og konunnar Hypatiu fyrir því að mikilvægri þekkingu Forn-Grkkja sé bjargað frá glöt- un. Agora gerist í hinni fornu borg Alexandríu. Þar kennir Hypatia við platónskan skóla borgarinnar á miklum óróatímum þegar krist- in trú er smám saman að ná undir- tökunum og heiðingjar eiga undir högg að sækja. Það er Rachel Weisz sem leikur heimspekinginn Hypatiu en einkalíf Weisz hefur verið töluvert í kastljósinu eftir að fjölmiðlar greindu frá því að hún ætti hugsanlega í ástarsambandi við Daniel Craig. Erfiðlega hefur gengið hjá aðstandendum Agoru að koma myndinni í dreifingu þrátt fyrir að hún hafi hlotið sjö verðlaun á Goya-hátíðinni, spænsku kvik- myndahátíðinni. Hún er engu síður ein tekjuhæsta spænska myndin frá upphafi en það virð- ist ekki hafa kveikt í dreifingar- aðilunum og því ratar hún frek- ar seint hingað til Íslands enda frumsýnd á síðasta ári. Myndin hefur fengið mis- jafna dóma hjá gagnrýnendum og þá hafa sumir bókstafstrúar- menn kvartað yfir því að Agora dragi upp fremur dökka mynd af kristnum mönnum. Sjálft Vatikan- ið hefur þó lýst því yfir að það sjái enga annmarka á henni en starfs- menn þess komu meðal annars að því að velja kristna texta sem lesnir eru upp í myndinni. - fgg Heimspekileg dramatík WEISZ Leikur heimspekinginn Hypatiu sem lendir mitt á milli í átökum krist- inna og heiðinna í Rómaveldi. NORDIC PHOTOS Eftir mikið volk í ólgusjó Hollywood er kvikmynd um Lone Ranger, grímu- klædda kúrekann í villta vestrinu, og hestinn hans Silver loksins að verða að veruleika. Disney-fyrirtækið, í sam- starfi við stórmyndakanónuna Jerry Bruckheimer, ætlar að framleiða kvik- mynd um þessa frægustu persónu George W. Trendle sem varð feikilega vinsæl í amerísku útvarpi og sjónvarpi. Sjóræningjaleikstjórinn Gore Verbinski hefur verið ráðinn í leikstjórastólinn og Johnny Depp mun að öllum líkindum leika ráðagóða indíánann Tonto. Ekki er hins vegar vitað hver fær að klæðast hinum íðilfagra bláa búningi, setja á sig hvíta hattinn og svörtu grím- una sem breyttu hinum dagsfarsprúða John Reid í kúrekahetjuna. Það var kvikmyndavefurinn thewrap.com sem greindi fyrstur frá því að gera ætti kvik- myndina undir merkjum Disney en það hefur lengi staðið til. Columbia-kvik- myndaverið tilkynnti árið 2002 að það ætlaði að gera kvikmynd en fimm árum seinna reyndu Weinstein-bræðurnir að kaupa kvikmyndaréttinn enda hafði lítið gerst. Það var síðan Bruckheimer sem greip gæsina þegar hún gafst en hann hefur yfirleitt haft gott nef fyrir góðum gróða. Verbinski er nú upptekinn við tökur á fjórðu sjóræningjamyndinni með Johnny Depp og er fastlega gert ráð fyrir því að hann hefji undirbúning við kúrekamyndina strax eftir hana. - fgg Lone Ranger aftur af stað LEIKUR TONTO Johnny Depp mun leika Tonto í Lone Ranger en Gore Verbinski mun að öllum líkindum leikstýra myndinni. VINSÆL, BRJÁLUÐ OG HÆFILEIKARÍK Mel Gibson, Erroll Flynn, Russell Crowe og Heath Ledger eiga það allir sameiginlegt að vera frá Ástralíu og hafa átt í erfiðleik- um með lífið utan hvíta tjaldsins. Þeir eru hins vegar ekki einu andfætlingarnir sem hafa náð slá í gegn í kvikmyndunum; Nicole Kidman, Naomi Watts og Cate Blanchett eru í hópi virtustu leikkvenna Hollywood og þeir Hugh Jackman, Eric Bana og Geoffrey Rush þykja eftirsóknar- verðir starfskraftar í kvikmyndagerð. bio@frettabladid.is Jólatilboð til fyrirtækja og fyrir einkasamkvæmi frábær partýtilboð Fimmtudaga og sunnudaga Stór bjór 500 kr Lítill bjór 300 kr Egils Gull og Kareoke Sportbar kynna: Frakkastígur 8 Símar 659 6049 og 770 3151
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.