Fréttablaðið - 25.11.2010, Page 63

Fréttablaðið - 25.11.2010, Page 63
FIMMTUDAGUR 25. nóvember 2010 43 Leikarinn John Travolta og kona hans Kelly Preston eignuðust heil- brigðan strák í vikunni og hefur hann fengið nafnið Benjamin. Aðeins tvö ár eru frá því að hjónin misstu sextán ára son sinn Jett á meðan þau voru í fríi á Bah- amaeyjum. Jett þjáðist af ein- hverfu en flogaveikiskast orsakaði dauða hans. Parið er í skýjunum með nýjustu viðbótina í fjölskyld- una en þau eiga einnig dótturina Ellu sem er ellefu ára gömul. John Travolta faðir á ný Í HAMINGJUKASTI John Travolta og Kelly Preston eignuðust heilbrigðan son í vikunni en tvö ár eru síðan þau misstu sextán ára son sinn Jett. NORDICPHOTOS/GETTY Tónlist ★★★ Bara plata Ísgerður Fín barnaplata Bara plata er ellefu laga barna- plata með Ísgerði Gunnarsdóttur. Ísgerður semur textana, en lögin eru ýmist samin af Gnúsa Yones sem stjórnar upptökum, eða af Ísgerði og Gnúsa saman. Það eru mörg fín lög og textar á Bara plata og útsetningarnar yfir það heila vel heppnaðar. Ísgerður er enginn nýliði hvað barnaefni varðar og það heyrist á plötunni. Hún var í hlutverki Snæfríðar í Stundinni okkar 2006-2008. Árið 2010 ætlar að verða fínt ár fyrir barnaplötur. Bara plata er ekki alveg jafn skemmtileg fyrir foreldrana eins og Pollapönk eða Diskóeyjan, en krakkarnir hafa mjög gaman af henni. Lögin eru misgóð, en Út að leika, Njósnafé- lagið og Sumars bjartur bragur eru frábær. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Lífleg barnaplata. Söngkonan Rihanna viðurkenndi í viðtali við tímaritið Interview að hún væri aðeins farin að hugsa um barneignir og þegar sá tími kæmi langaði hana aðeins í syni. „Aldurinn skiptir mig engu. Ég gæti hugsað mér að verða móðir eftir ár, það gæti einnig verið eftir tíu ár. Tíminn þarf bara að vera réttur. Það er margt sem mig lang- ar að gera áður en ég eignast börn þannig að ég er enn að bíða eftir rétta tímanum,“ sagði Rihanna, sem vill aðeins eignast syni. „Ef ég eignaðist dóttur þá yrði hún lík- lega mjög uppátækjasöm og erfið. Hún yrði lítill hnoðri af karma.“ Rihanna hefur verið í sambandi með íþróttamanninum Matt Kemp frá því í janúar og sást fyrst opin- berlega til parsins þegar þau voru saman í fríi í vor. Vill aðeins stráka ÁNÆGÐ Rihanna er hamingjusöm í sambandi og er farin að velta fyrir sér barneignum. NORDICPHOTOS/GETTY Hinn léttgeggjaði Axl Rose, söngvari Guns N‘ Roses, hefur kært tölvuleikjaframleið- andann Activision, sem framleiðir hina víðfrægu Guitar Hero leiki. Rose vill fá tuttugu milljónir dala í skaðabætur frá fyrirtækinu, en hann fullyrðir að hann hafi verið gabbaður til að leyfa því að nota smellinn Welcome to the Jungle í leiknum Guitar Hero III. Málið snýst að hluta til um notkun leiks- ins á persónu sem var gerð eftir Slash, gítarleikara Guns N‘ Roses. Rose seg- ist aðeins hafa leyft Activision að nota lagið ef leikurinn myndi ekki vísa á neinn hátt í Slash eða hljómsveit hans, Velvet Revolver. Í kærunni kemur fram að Rose sakar Activision um lygar og blekkingar til að koma á fót einhvers konar samstarfi milli leiksins og hljómsveitarinnar Guns N‘ Roses og að samningar hafi verið sviknir. Hann segir lagið Wel- come to the Jungle hafa verið notað sem vopn í þeirri baráttu. Þá segir hann lagið Sweet Child O‘ Mine, í flutning Guns N‘ Roses, hafa verið notað í kynningu á Guitar Hero III, en hann hafi aðeins gefið leyfi til að lagið væri notað í Guitar Hero II. Axl Rose ræðst á Guitar Hero FÚLL Axl Rose er ekki á leiðinni í Guitar Hero-partí á næstunni – það er víst. Hann vill ekki sjá að Slash sé að trana sér fram í nafni Guns N‘ Roses. Gjöfin inniheldur: Advanced Night Repair – viðgerðardropa, 7ml Resilience Lift Crème – styrkjandi andlitskrem, 7ml Pure Color Lipstick – varalit, pink parfait, fulla stærð Sumtuous Mascara – svartan maskara Pleasures - ilmvatn Fallega snyrtitösku *Verðgildi gjafarinner er ca. 17.100.- *meðan birgðir endast Gjöfin þín Ef þú verslar vörur frá Estée Lauder fyrir 5.900 krónur eða meira, dagana 25. nóvember – 1. desember í Debenhams.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.