Fréttablaðið - 25.11.2010, Síða 70
25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR50
sport@frettabladid.is
4 AKUREYRI OG HK mætast í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld í toppslag N1 deildar karla. Akureyri hefur unnið HK tvisvar í vetur en báðir þeir leikir fóru fram í Diganesi. Þrátt fyrir tvo sterka heimavelli þá hefur heimaliðið ekki unnið í
fjórum síðustu innbyrðisviðureignum liðanna eða síðan Akureyringar unnu 27-26 sigur 25. nóvember í fyrra.
HANDBOLTI Lokamót EM í desem-
ber verður síðasta verkefni Júlí-
usar Jónassonar með A-landslið
kvenna. Samningur hans við HSÍ
rennur út eftir mótið og hann mun
í kjölfarið láta af störfum.
Júlíus hefur nóg á sinni könnu
og ásamt því að vera í dagvinnu
eins og flestir þjálfar hann karla-
lið Vals. Eitthvað varð því undan
að láta.
„Það gengur ekki til lengdar að
sinna of mörgum störfum í einu og
því var niðurstaðan sú í vor að ég
myndi þjálfa landsliðið fram yfir
EM og síðan hætta. Þetta hefur
verið mjög skemmtilegur tími og
ég geng afar stoltur frá verkinu,“
sagði Júlíus, sem segist hafa lært
mikið á því að þjálfa stelpurnar.
Ætlaði mér aldrei að þjálfa kven-
fólk
„Fyrir fjórum árum stóð alls ekki
til að ég þjálfaði kvenfólk. Ég ætl-
aði þá að taka mér frí frá þjálf-
un en Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, fékk mig í þetta
starf. Þetta hefur verið ótrúlega
skemmtilegur tími og það sannað-
ist í þessu eins og öðru að maður á
aldrei að segja aldrei. Þetta hefur
verið lærdómsríkt,“ sagði Júlíus,
sem hafði aldrei þjálfað konur áður
en hann tók við landsliðinu.
„Það er talsverður munur á
því að þjálfa stelpur og stráka.
Það reyndi svolítið á mig að stilla
strengina í upphafi. Fyrstu vikuna
stóð ég frammi fyrir vandamálum
sem ég vissi nákvæmlega hvernig
ætti að tækla með stráka en þurfti
að hugsa mig vel um áður en ég
ákvað hvaða leið ætti að fara með
stelpurnar,“ sagði Júlíus og hló við
er hann rifjaði upp fyrstu skrefin
með stelpunum.
„Þetta er búið að vera svakalega
skemmtilegt og ég hef lært mikið á
þessum tíma. Bæði sem þjálfari og
ég hef einnig lært mikið um lífið
og mannskepnuna. Ég er reynsl-
unni ríkari á allan hátt.“
Undir stjórn Júlíusar hefur
kvennalandsliðið náð lengra en
áður í sögunni og mun skrifa nýjan
kafla í íslenska handboltasögu í
næstu mánuði er það tekur þátt á
lokamóti EM í fyrsta skipti.
„Það var frábær árangur að
koma liðinu á EM en við ætlum
ekki að láta það nægja. Þessar
stelpur eru afar metnaðarfull-
ar og hafa háleit markmið. Við
ætlum ekki bara að fylgjast með
á EM heldur taka þátt af fullum
krafti. Markmiðið hjá okkur er að
komast í milliriðil,“ sagði Júlíus.
Fréttablaðinu í dag fylgir sér-
blað um EM kvenna 2010 og
íslenskan kvennahandknattleik.
Þar er nánar rætt við Júlíus og
marga aðra sem komið hafa að
íslenskum kvennahandbolta í
gegnum tíðina.
henry@frettabladid.is
Júlíus kveður stelpurnar
eftir EM í Danmörku
Júlíus Jónasson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta, mun segja skilið við
stelpurnar eftir EM í desember. Hann hefur stýrt liðinu undanfarin fjögur ár
og náð einstökum árangri með liðið, sem er á leið á stórmót í fyrsta skipti.
HÆTTIR Á TOPPNUM Júlíus Jónasson hefur stýrt kvennalandsliðinu í fjögur ár með
frábærum árangri. Hann kom liðinu fyrstur á lokamót EM.
EM KVENNA 2010 Sérblað um EM
kvenna og íslenskan kvennahandknatt-
leik fylgir Fréttablaðinu í dag.
SUND SH-ingurinn Hrafn Trausta-
son stingur sér fyrstur í laugina
í Eindhoven í dag þegar Evrópu-
meistaramótið í 25 metra laug
hefst. Hrafn syndir þá 100 metra
bringusund en seinna í dag keppa
þær Ragnheiður Ragnarsdóttir
úr KR og Ingibjörg Kristín Jóns-
dóttir úr SH í 100 metra skrið-
sundi.
Ragnheiður setti Íslandsmet
og synti á sjötta besta tímanum
í Evrópu á árinu þegar hún vann
100 metra skriðsund á ÍM í 25
metra laug á dögunum. Ragnheið-
ur synti þá á 54,65 sekúndum en
Ingibjörg varð í öðru sæti á 56,48
sekúndum.
Bryndís Rún Hansen úr
Óðni hefur síðan keppni á mót-
inu á morgun, sem og Ragney
Líf Stefánsdóttir frá Íþrótta-
sambandi fatlaðra. - óój
EM í 25 metra laug í dag:
Hrafn stingur
sér fyrstur
HRAFN TRAUSTASON Fagnar hér góðum
árangri á ÍM á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI B.J. Aldridge var rek-
inn frá KFÍ eftir tap á móti Fjölni
á mánudagskvöldið en þessi 31
árs gamli Bandaríkjamaður var
búinn að vera með liðið frá því í
haust. Aldridge stýrði KFÍ-liðinu
í átta leikjum í deildinni en það er
sem stendur í níunda sæti.
KFÍ tapaði sínum fimmta leik
í röð þegar það lá á móti Fjölni í
Grafarvogi á mánudagskvöldið
en liðið hefur fengið á sig yfir 100
stig að meðaltali í leik í þessum
fyrstu átta leikjum.
Þetta er í fyrsta sinn sem KFÍ
breytir um þjálfara á miðju tíma-
bili í úrvalsdeild karla.
Neil Shiran Þórisson, formaður
körfuknattleiksdeildar Ísafjarð-
ar, tekur við þjálfun liðsins af
B.J. Aldridge og aðstoðarþjálfari
verður Guðjón Þorsteinsson. - óój
B.J. Aldridge rekinn frá KFÍ:
Formaðurinn
tekur við liðinu
Opið laugardag frá kl. 11-16 og virka daga 10-18 • Sími 588 8477 • www.betrabak.is
Chiro Collection
heilsurúm
25% jóla-
afsláttur
TempraKON dúnsængur
100% hvítur gæsadúnn
20% afsláttur
kr. 29.900,-
Heilsuinniskór
Inniskór sem laga sig að fætin um og dreifa
þyngd jafnt undir allt fótasvæðið.
Sendum frítt út á land - betrabak.is
He
ils
ui
nn
is
kó
r s
em
lag
ar sig
að fætinum - einstök þæ
gindi
Parið kr. 3.900,-
2 pör kr. 6.980,-
3 pör kr. 9.990,-
EM kvenn
a 2010
FIMMTUDA
GUR 25. NÓ
VEMBER 20
10
FÓTBOLTI Knattspyrnuheimurinn
logaði í gær vegna Real Madrid.
José Mourinho, þjálfari liðsins,
var þá sakaður um að hafa
fyrirskipað tveimur leikmönnum
sínum – Xabi Alonso og Sergio
Ramos – að fá rauð spjöld í lok
leiksins gegn Ajax.
Báðir voru á gulu spjaldi og
annað spjald í lokaleik riðilsins
gegn Auxerre hefði þýtt að leik-
mennirnir væru í banni í sextán
liða úrslitum keppninnar. Real er
búið að vinna sinn riðil og leik-
urinn gegn Auxerre skiptir því
engu máli.
Báðir leikmennirnir fengu sitt
annað gula spjald í leiknum fyrir
að tefja gróflega. Reyndar töfðu
þeir svo svakalega að átakanlegt
var á að horfa. Þeir felldu síðan
engin tár er þeir gengu til bún-
ingsklefa.
Spænska blaðið Marca birti
í gær myndir sem blaðið segir
sanna að Mourinho hafi lagt á
ráðin með rauðu spjöldin. Hann
sést þá hvísla að Jerzy Dudek
varamarkverði, sem síðan hvíslar
að Iker Casillas markverði. Hann
virðist síðan koma einhverjum
skilaboðum á framfæri er hann
hvíslar að Ramos.
Mourinho skaut sér undan
spurningum um málið eftir leik-
inn. Vildi ekkert ræða málið.
Sagði það eitt skipta máli að liðið
hefði unnið leikinn.
Margir eru fokillir út í Mourin-
ho og Real Madrid vegna málsins
og einhverjir vilja setja félagið í
bann vegna þess.
Aðrir hrósa snilligáfu Mourin-
hos fyrir uppátækið og benda á
að leikmennirnir hafi ekki fengið
viljandi spjald fyrir ruddaskap.
- hbg
Real sakað um óheiðarleika:
Fengu þeir vilj-
andi rautt?
HLEGIÐ Cristiano Ronaldo hlær er dóm-
arinn lyftir spjaldi í leiknum umtalaða.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES