Fréttablaðið - 15.01.2011, Side 74

Fréttablaðið - 15.01.2011, Side 74
 15. janúar 2011 LAUGARDAGUR46 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Leikfélag Akureyrar fær til sín gesta- sýningu norður frá Borgarleikhúsinu. Sýningin Jesús litli verður sett upp í Menningarhúsinu Hofi og hefjast sýn- ingar í dag. „Það er góð samvinna milli Leikfé- lags Akureyrar og Borgarleikhússins og við höfum áður fengið gestasýning- ar hingað norður, meðal annars sýning- una Harry og Heimi. Eins höfum við farið með sýningar suður. Það er svo mikil leikhúsmenning hér á Akureyri og á Norðurlandi,“ segir María Sigurð- ardóttir, leikhússtjóri á Akureyri, en á morgun hefjast sýningar á Jesú litla í Menningarhúsinu Hofi. Jesús litli var valin sýning ársins og leikverkið sjálft, leikrit ársins, á Grím- unni. Sýningarnar fóru fram á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu en á Akur- eyri fara þær fram í Hamraborg, stóra salnum í Hofi. „Áhorfendur verða með inni á sviðinu hér í Hofi til að halda þeirri nálægð sem er nauðsynleg fyrir þessa sýningu,“ útskýrir María. Hún segir stóra sal- inn henta ágætlega fyrir leiksýningar. Leikfélagið prufukeyrði húsið með sýn- ingunni Rocky Horror á síðasta ári en yfir tólf þúsund manns sáu þá sýningu. Nú er von á henni aftur á fjalirnar. „Það var uppselt á hverja einustu sýningu. Við ákváðum því að bæta við nokkrum sýningum sem hefjast í febrú- ar þegar sýningum á Jesú litla lýkur. Fólk tekur vel við sér hér fyrir norð- an og miðarnir fara hratt núna á báðar sýningarnar. Hér á Akureyri er líka allt á kafi í snjó svo fólk getur skellt sér á skíði um leið og það gerir sér ferð í leik- hús.“ Einungis verða nokkrar sýningar á Jesú litla settar upp í Hofi og lýkur þeim 20. janúar. Nánar á www.hof.is og á www.leikfelag.is - rat Jesús litli sýndur í Hofi á Akureyri JESÚS LITLI Sýningin var valin sýning ársins á Grímunni, íslensku leiklistarverðlaunahátíðinni. MYND/LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, Helga Þorsteinsdóttir andaðist þann 12. janúar síðastliðinn. Útför hennar verður auglýst síðar. Arthur Stefánsson Áslaug Arthursdóttir Oddgeir Þór Árnason Nanna Arthursdóttir Guðbergur Þorvaldsson Þorsteinn Arthursson Guðrún Petra Guðnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Pétur Jónsson Árskógum 8, Reykjavík, andaðist 6. janúar á Landspítalanum við Hringbraut. Útför hans fer fram miðvikudaginn 19. janúar kl. 13 frá Fossvogskirkju. Margrét Pétursdóttir Illugi Óskarsson Kristín Thea Pétursdóttir Auður Churukian Gordon Churukian Hjördís Pétursdóttir Björn Hafsteinsson Hrönn Pétursdóttir Jóhann Eiríksson Þóra Pétursdóttir Ólafur Rögnvaldsson Sigurður Pétursson Sigríður Magnúsdóttir Jón Pétursson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna fráfalls elskulegs eiginmanns, pabba, tengdapabba og afa, Erlings Sigurlaugssonar Bifvélavirkjameistara, Nesbala 3, Seltjarnarnesi Halldóra Sigurgeirsdóttir Reynir Erlingsson, Rúnar Erlingsson, Ingilaug Erlingsdóttir, Jóhann Kjartansson og fjölskyldur. Elskulegur sonur okkar, bróðir, unnusti, barnabarn og frændi, Þórir Örn Jónsson Logafold 95, lést sunnudaginn 9. janúar. Útför hans fer fram í Fossvogskirkju föstudaginn 21. janúar kl. 13.00. Jón Magnús Sigurðsson Erna Harðardóttir Hörður Ingi Jónsson María Björk Jónsdóttir Alisha Þorsteinsdóttir og aðrir aðstandendur Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Guðrúnar Kristínar Erlendsdóttur (Stínu frá Hamragörðum) Hlíðarvegi 16, Kópavogi. Sérstakar þakkir fær Helga Ragnarsdóttir ásamt öðru starfsfólki Sunnuhlíðar fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Guðjón Traustason Sigríður Heiðrún Guðjónsdóttir Ágúst Ólason Trausti Guðjónsson Lísa María Karlsdóttir Erlendur Reynir Guðjónsson Guðfinna Björk Sigvaldadóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn , faðir okkar, tengdafaðir og afi, Hreggviður Muninn Jónsson Seljabraut 42, Rekjavík, lést á Líknadeildinni í Kópavogi 8. janúar 2011. Útförinn fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi mánu- daginn 17.janúar 2011 kl 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Líknadeildina í Kópavogi njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda. Elsa Jónsdóttir Magnús Ver Magnússon Arnheiður Ósk Hreggviðsdóttir Vilhjálmur G Hauksson Viðar Þór Hreggviðsson Dagmar Sigurðardóttir Grétar Mar Hreggviðsson Steinunn Haraldsdóttir og barnabörn Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, Páldís Eyjólfs verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. janúar kl. 13.00. Halldóra Konráðsdóttir Þorvaldur Sigurbjörnsson Elísabet Konráðsdóttir Sigurður Halldórsson Elín Konráðsdóttir Guðni Bergsson barnabörn og langömmubörn Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar og ömmu, Huldu Öldu Daníelsdóttur Funalind 7, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar og líknardeildar LSH í Kópavogi. Anna H. Guðmundsdóttir Sigurður A. Guðmundsson Hans Eirik Dyrlie Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem heiðruðu minningu og sýndu okkur samúð og stuðning, við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns og föður, Hallgríms Steingrímssonar Ágústa Hannesdóttir Snorri Hallgrímsson og fjölskyldur Hjartans þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur stuðning, samúð og vin- áttu við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, sonar, tengdasonar og afa, Bjarna Ragnarssonar, Bræðratungu 24, Kópavogi. Fyrir hönd fjölskyldunnar. Sigurveig Helga Hafsteinsdóttir María Bjarnadóttir Daði Már Ingvarsson Steinar Bjarnason Anetta Bjarnadóttir Steinvör Bjarnadóttir Ragnar Þorsteinsson Og afabörn.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.