Fréttablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 93

Fréttablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 93
LAUGARDAGUR 15. janúar 2011 65 Grínistinn Ricky Gervais ætlar að beina athyglinni að þeim sem eru veikburða og geta ekki varið sig þegar hann kynnir Golden Globe-verðlaunin í annað sinn í næstu viku. Leikararnir Charlie Sheen og Mel Gibson, sem báðir hafa lent í vandræðum í einkalíf- inu, fá einnig sinn skerf af brönd- urum. „Ég ætla bara að ráðast á þá sem eru veikburða. Ég ætla að láta Russell Crowe og Mickey Rourke í friði núna en kannski geri ég grín að Mickey Roon- ey eða Betty White. Ég er ekki hræddur við hana,“ sagði Gerv- ais léttur og bætti við: „Charlie Sheen er gott skotmark og Mel Gibson var sannkölluð gjöf til grínguðsins.“ Gerir grín að Charlie Sheen RICKY GERVAIS Grínistinn ætlar að beina sjónum sínum að Charlie Sheen og Mel Gibson. Stórleikarinn Michael Douglas greindist með krabbamein í hálsi um mitt síðasta ár og gekk í kjöl- farið í gegnum stranga lyfjameð- ferð. Hann hefur nú náð fullum bata og einbeitir sér að því að ná aftur heilsu og fyrri styrk. Í viðtali við Entertainment Tonight sagði Douglas að honum hefði á stundum þótt press- an ganga of hart fram við að ná myndum af honum á meðan hann var upp á sitt versta. Auk þess hafi verið fjallað um veikindi hans á mjög ónærgætinn hátt. „Því miður var tíu ára gamall sonur minn eitt sinn að blaða í gegnum eitt slíkt blað í verslun og las þar frétt um að lífslíkur mínar væru litlar,“ sagði leikarinn. Engin virð- ing sýnd HEILSUHRAUSTUR Leikarinn Michael Douglas greindist með krabbamein í hálsi á síðasta ári. Hann hefur náð fullum bata. Hér er hann með eigin- konunni, hinni íðilfögru Catherine Zeta- Jones. NORDICPHOTOS/GETTY Popparinn Justin Bieber þurfti að fara á sjúkrahús á dögunum vegna öndunarerfiðleika. Um ofnæmis- viðbrögð var að ræða sem komu upp þegar hann var í gestahlut- verki í sjónvarpsþáttunum CSI. Ungstirnið var útskrifað af sjúkra- húsinu fimmtíu mínútum síðar. „Hann hefur það gott. Hann fékk smá ofnæmiskast þegar tökum var að ljúka á CSI. Læknarnir skoðuðu hann á sjúkrahúsinu til að full- vissa sig um að allt væri í lagi,“ sagði fulltrúi popparans. Stutt er síðan Bieber sagði í viðtali að þrátt fyrir að vera slappur ætti hann erfitt með að taka sér frí frá vinnu vegna skuldbindinga sinna. Bieber á sjúkrahús JUSTIN BIEBER Þurfti að fara á sjúkrahús vegna ofnæmis. Golden Globe verðlaunin verða afhent á sunnudagskvöld en það eru samtök erlendra blaðamanna í Hollywood sem standa að þeim. Verðlaunin þykja gefa góða vís- bendingu til hverra Óskar frændi fer í heimsókn í ár. Búist er við nokkurri harðri baráttu þótt nokkrir flokkar þyki vera fyrir fram afgreiddir. Colin Firth og Natalie Portman eru þannig sögð örugg um sigur í sínum flokkum. Firth fer á kost- um í kvikmyndinni The King‘s Speech sem Georg VI. Natalie Portman hefur verið hlaðin lofi fyrir frammistöðu sína í Black Swan og á sigurinn vísan í sínum flokki. Mesta spenn- an er í kringum hvaða mynd hreppir hnossið sem besta kvik- mynd ársins. The Soci- al Network eftir David Fincher hefur feng- ið lofsamlega dóma og sömuleiðis The King‘s Speech. Almennt er talið að baráttan eigi eftir að standa milli þeirra tveggja. Golden Globe heiðr- ar einnig sjónvarpsefni og þar er fastlega gert ráð fyrir að Glee og Mad Men muni standa uppi sem sigurvegarar. Glee mun samkvæmt því vinna örugg- an sigur í gaman/söng-flokkn- um en Mad Men fær ögn harðari samkeppni í dramaflokknum frá sjónvarpsseríunni Boardwalk Empire frá Martin Scorsese. Firth nánast öruggur um sigur ÖRUGG Flestir eru sam- mála um að Colin Firth og Natalie Portman séu öruggir sigurvegarar á Golden Globe-verð- launahátíðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.