Fréttablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 70
42 15. janúar 2011 LAUGARDAGUR
Skemmtilegur skátadagur
MYNDBROT ÚR DEGI | fimmtudaginn 13. janúar | Tekið á Power Shot SD700
Laulau Birgisdóttir er mikill skáti, starfar sem móttökustjóri hjá Bandalagi íslenskra skáta og eyddi löngum fimmtudegi meira
og minna í Skátamiðstöðinni í Hraunbæ. Hún smellti af nokkrum myndum fyrir Fréttablaðið af ævintýrum hversdagsins.
1Vaknaði, fékk mér morgunmat og hvaðeina, spjallaði aðeins
við manninn minn hann Rúnar
um verkefni dagsins en hann
vildi ekkert við mig tala, hehe.
Dreif mig í vinnuna.
2Fyrsta verkefni dagsins í vinnunni var kynning með
nemum úr íþrótta-, tómstunda- og
þroskaþjálfadeild HÍ. Inga Auð-
björg var að tala þegar ég kom.
Eins og margir sem koma í heim-
sókn í Skátamiðstöðina fannst
þessu fólki mikið til umfangs
skátastarfs á Íslandi koma.
4Það er alltaf líf og fjör í kaffistofunni í Skátamiðstöðinni. Þar ræðum við landsins gagn og nauðsynjar, björgum heiminum oft
á dag og kryfjum skátastarfið til mergjar. Ég vildi reyna að koma
öllum fyrir á myndinni en kaffistofan telur frekar fáa fermetra og
því erfitt að taka hópmynd. Seinna þennan dag tók Alheimsþing skáta
þá ákvörðun að þiggja boð BÍS um að halda alheimsmót hér á landi
sumarið 2017. Þar getum við búist við um 6.000 skátum og milljarði í
gjaldeyristekjur! Stoltir skátar!
3Þarna er ég með þeim Eggerti og Jakobi við
Þjóðþrifabílinn. Þjóðþrif
er stærsta fjáröflunarleið
Bandalags íslenskra skáta
og þessir tveir (og Guðmund-
ur sem var farinn þegar
myndin var tekin) eru aðal-
mennirnir í útkeyrslu- og
dósaflokkunardeildinni.
5Komin á skátafund með 10 ára fálkaskát-
um (fyrsti fundur ársins,
ekki allir mættir). Þau eru
reyndar eldri þessi 3 sem
eru fremst á myndinni
og eru aðstoðarforingjar.
Þetta eru Rauðskinnar
í Árbúum. Þarna erum
við 2 fullorðnar konur
sem vorum í skátunum
þegar við vorum ungar en
komum svo aftur í starfið
mörgum árum síðar og
leiðist það ekki.
6Loksins komin heim eftir
mjög langan dag.
Við Ransí dóttir
mín tvær heima
að hafa það notó,
sonurinn farinn
á skátafund og
eiginmaðurinn að
vinna.
1900ÁR 201020001970
Á þessum degi árið 1970 hrifs-aði Muammar al-Gaddafi til
sín öll völd í Norður-Afríkurík-
inu Líbíu, þar sem hann situr enn
þann dag í dag eftir rúmlega fjóra
stormasama áratugi.
Gaddafi reis til metorða innan
hersins, en hugði snemma á að
velta Idris konungi sem hafði ríkt
í landinu frá því að það hlaut sjálf-
stæði árið 1951.
Gaddafi lét síðan til skarar
skríða haustið 1969 þegar hann
og samherjar hans innan hers-
ins frömdu friðsamlegt valda-
rán á meðan konungurinn leitaði
sér lækninga erlendis. Byltingar-
sinnar lögðu af konungsveldið og
stofnuðu þess í stað Arabíska lýð-
veldið Líbíu og tók Gaddafi við
embætti forsætisráðherra hinn
15. janúar 1970. Hann gaf síðar
eftir þann titil og gegnir nú titl-
inum ofursti, en formleg staða
hans er „Bróðurlegur leiðtogi
byltingarinnar“.
Í upphafi valdaferils hans ein-
beitti hann sér fyrir sam-arab-
ískri samvinnu og talaði jafnvel
fyrir sameiningu allra araba-
ríkja.
Í byltingarhugsjón sinni skaut
Gaddafi oft skjólshúsi yfir vafa-
sama einstaklinga og samtök,
meðal annars tvo menn sem
voru sakaðir um að hafa skipu-
lagt hryðjuverk þar sem flugvél
PanAm-flugfélagsins var sprengd
yfir Lockerbie í Skotlandi árið
1988. Hann lenti þess vegna upp á
kant við vesturveldin og var Líbía
um áratugaskeið á lista Banda-
ríkjanna yfir þau ríki sem styðja
hryðjuverk og mátti sætta sig við
viðskiptaþvinganir.
Samskiptin hafa hins vegar
batnað mikið síðustu árin þar
sem viðhorf Gaddafis hafa mild-
ast. Efnahagsþvinganir hafa verið
dregnar til baka og Líbía er ekki
lengur á lista yfir hryðjuverka-
ríki.
Staða hans sem þjóðhöfðingja
er sterk sem aldrei fyrr og er
víst að einhver af hans fjölmörgu
sonum mun taka við hlutverki
hans að honum gengnum. – þj
Heimild: Wikipedia.org
Útlagi kominn inn úr kuldanum
41 ár síðan Gaddafi tók við völdum í Líbíu.