Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2011, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 16.02.2011, Qupperneq 28
 16. FEBRÚAR 2011 MIÐVIKUDAGUR Fyrir tæpu ári var Apótek Hafnar- fjarðar opnað á Völlunum og var vel tekið af íbúum þar sem og í nærliggjandi hverfum. „Okkar sérstaða hér í Hafnar- firði er að við erum eina sjálf- stætt rekna apótekið, það er að segja, við tengjumst ekki neinum öðrum apótekum eða stærri keðj- um,“ segir Magnús Sigurðsson, lyfsali í Apóteki Hafnarfjarðar á Tjarnar völlum 11. Hann segir fólk spá meira í eignarhald á verslun- um en áður. Mörgum líki betur að versla við minni sjálfstætt starf- andi aðila en stórar keðjur. Apótek Hafnarfjarðar var opnað í mars á síðasta ári og var vel tekið af íbúum á Völlunum sem og annars staðar í Hafnarfirði. Bæði er apótekið opið lengur en önnur apótek í bænum, til klukk- an hálfsjö alla virka daga, og svo höfðu íbúar á Völlunum ekki haft aðgang að apóteki í sínu nánasta umhverfi. „Apótek er hluti af heilbrigðis- kerfinu og því nokkuð sem allir íbúar þurfa að hafa greiðan að- gang að. Við erum ánægð með mót- tökurnar sem við höfum fengið en viðskiptavinahópur okkar hefur stækkað jafnt og þétt. Þar hjálpar eflaust til að við tökum öllum með bros á vör og persónulegri þjón- ustu. Við erum að fá sama fólkið til okkar aftur og aftur. Við teljum okkur vera ódýran og góðan valkost fyrir alla á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi.“ Vöruúrvalið er mjög breitt. Fyrir utan öll lyf er gott úrval af vítamínum, hjúkrunarvörum, snyrtivörum, hárvörum og öllum þeim hefðbundnu vörum sem fást í apótekum. Apótek Hafnarfjarðar er opið frá klukkan 9-18.30 á virk- um dögum og frá 10-16 um helgar. Sjálfstætt í Hafnarfirði Magnús Sigurðsson, lyfsali í Apóteki Hafnarfjarðar, segir mörgum líka betur að versla við minni sjálfstætt starfandi aðila. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Árbæjarapótek er opið virka daga frá kl. 9-18.30 og laugardaga frá kl. 10-14 Hraunbæ 115 110 Reykjavík Sími: 567 4200 www.arbaejarapotek.is Opið kl. 9-18.30 alla virka daga kl. 10-16 á laugardögum Tjarnarvellir 11, Hafnarfirði. Apótekari er grískt orð sem var í upphafi starfsheiti heil- brigðisstéttar sem blandaði og dreifði lyfjum og öðrum lækningavörum til lækna, skurðlækna og sjúklinga, svipað og lyfsalar gera í dag, en þeir sinntu einnig ýmsum lækningum. Fyrsta skráða heimildin um apótekara er í annarri Mósebók Biblíunnar, þar sem Guð gefur Móses uppskrift að hinni heilögu olíu sem hann átti að nota til að smyrja steintöflurnar með boðorð- unum og tekur fram að hún verði að vera gerð samkvæmt reglum apótekara. Salómon konungur vitnar einnig til apótekara og sömuleiðis koma þeir við sögu í Kantaraborgarsög- um Chaucers og leikriti Shake- speares um Rómeó og Júlíu. Skráðar heimildir um verslan- ir apótekara, apótek, er þó ekki að finna fyrr en árið 754 þegar fyrsta apótekið var opnað í Bagdad. Þaðan dreifðist verslunarrekstur- inn um allan hinn íslamska heim; mörg dæmi eru um skráð apótek í íslamska hluta Spánar á elleftu öld og um svipað leyti fara apótek að skjóta upp kollinum annars staðar í Evrópu. Þangað sótti fólk sér bót minniháttar meina og það var ekki fyrr en læknisstéttinni óx fiskur um hrygg á átjándu öldinni sem apótekarar hættu að stunda lækn- ingar jafnframt lyfjagerðinni og færðust nær því hlutverki sem þeir hafa í dag. Apótekarar notuðu sitt eigið mælikerfi til að tryggja nákvæma mælingu á þeim innihaldsefnum sem hvert lyf átti að innihalda og gátu menn átt von á sektum og jafnvel lögsókn ef efnin voru ekki í réttum hlutföllum í lyfjun- um. Hins vegar blómstraði ýmiss konar undirheimabrask í stéttinni og voru ástarlyf og aðrir töfra- drykkir vinsæl söluvara apóteka lengi fram eftir öldum. Heimild: wikipedia.org Ástardrykkir og önnur töfralyf Fólk hefur leitað bótar meina sinna hjá apótekurum frá örófi alda. Kristján með starfsfólki sínu í Árbæjarapóteki, sem verður fjörutíu ára í desem- ber, en þá verður sitthvað gert til hátíðabrigða í apótekinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Árbæjarapótek stendur á fertugu í ár en þar ríkir hlýlegur andi og afbragðs þjónusta sömu fjöl- skyldu lyfsala frá upphafi. „Ég var nú mest úti í fótbolta á æskuárunum í Árbænum en kíkti við í apótekinu hjá pabba öðru hvoru og fékk áhuga á starfinu þegar ég komst til vits og ára,“ segir lyfjafræðingurinn Kristj- án Steingrímsson, sem tók við rekstri Árbæjarapóteks af föður sínum Steingrími Kristjánssyni um áramótin 1998. „Pabbi opnaði apótekið 1971 í Hraunbæ 102a, en 2008 fluttum við í glæsilegt húsnæði að Hraun- bæ 115, þar sem aðstaðan stækk- aði til muna,“ segir Kristján, sem spilaði knattspyrnu með Fylki til margra ára og hefur unnið mestan sinn starfsaldur í Árbæ. „Árbærinn er eins og bær í borginni og hér þekkjast flest- ir, sem mér þykir vinalegt. Ár- bæingar hafa frá upphafi haldið tryggð við sitt hverfisapótek, enda vita þeir fyrir hvað við stöndum,“ segir Kristján um fertugt fjölskyldufyrirtækið. „Lyfsala er helsta verkefni apóteksins og fá öryrkjar og elli- lífeyrisþegar tíu prósenta af- slátt af lausasölulyfjum og vít- amínum. Þá leggjum við áherslu á lágt verð nikótínlyfja, sem er okkar framlag til að hjálpa fólki að hætta að reykja,“ segir Kristj- án. „Svo eru alltaf spennandi til- boð á heimasíðunni, eins og í að- draganda Konudags þegar við bjóðum 20% afslátt af konuilm- um,“ segir Kristján, strax far- inn að hlakka til 40 ára afmælis Árbæjarapóteks í desember. „Þá munum við gera sitthvað til hátíðabrigða og halda áfram okkar striki. Að vísu er pabbi hættur störfum en er alltaf hér með annan fótinn að fylgjast með stráknum og gamla apótekinu.“ Sjá www.arbaejarapotek.is Allt er fertugum fært Apótekari er örlagavaldur í leikriti Williams Shakespeare um Rómeó og Júlíu. ● DÝR Erlendis eru víða sérstök apótek fyrir dýr, þótt slíkt þekkist ekki enn á Íslandi. Eru þau þá ýmist tengd dýraspítölum, sjálf- stæð eða stunda netsölu. Dýraapótek hafa á boðstól- um öll þau lyf sem notuð eru við algengustu kvill- um dýra, í mismunandi styrkleikum og pakkninga- stærðum. Þar sem þarf- ir dýra og reglugerðir um lyf fyrir þau eru mjög ólík þörfum manna hefur víða þótt fara betur á því að halda dýraapótekum að- skildum frá venjulegum apótökum sem einbeita sér að lyfjum fyrir mann- fólkið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.