Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 29
apótek ●MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2011 7 Í nærri 70 ár var Reykjavíkurapótek starfrækt á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis. Ekki voru Reykvíkingar á eitt sáttir þegar Reykjavíkurapótekinu gamla, á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis, var lokað 1. apríl árið 1999. Sér í lagi voru það gömlu innréttingar apóteksins, sem voru friðaðar, sem fólk vildi síður sjá hverfa en þær voru settar í geymslu í samráði við húsafriðunar- nefnd. Guðjón Samúelsson teiknaði árið 1915 húsið sem Reykjavíkurapótek stóð í en ap- ótekið hóf ekki starfsemi í húsinu fyrr en árið 1930. Rætur Reykjavíkurapóteks má rekja allt aftur til ársins 1760, til fyrstu lyfjabúðarinnar á Íslandi, sem var í Nesi við Seltjörn. Apótekið komst í einkaeign árið 1833 og var starfrækt í húsi á horni Thorvaldsenstrætis og Kirkjustrætis. - jma Guðjón Samúelsson teiknaði húsið sem Reykjavíkurapótek var starfrækt í á árunum 1930-1999. 365/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Séð inn um glugga gamla Reykjavíkurapóteks.Mikil prýði þótti að gömlu innréttingunum í Reykjavíkurapóteki en þær eru nú í geymslu. Starfsfólk Reykjavíkurapóteks á síðasta starfsári þess. Marólína Arnheiður Magnúsdóttir, Jóhannes Finnur Skaftason lyfjafræðingur, Ólöf Ólafsdóttir afgreiðslustúlka og Kristjana Aðalsteinsdóttir lyfjatæknir. Apótekið í Austurstræti Tölvustýrð lyfjaskömmtun er örugg, fljótleg og hagkvæm að sögn Ragnheiðar Gunnars- dóttur, lyfjafræðings og lyfsala í Lyfjaveri við Suðurlandsbraut 22 í Reykjavík. „Við notum ávallt nýjustu og bestu mögulega tækni við lagerhald og afgreiðslu lyfja.“ segir Ragnheiður Gunnarsdóttir, lyfsali í Lyfjaveri Suðurlandsbraut 22. Hún telur slíka afgreiðslu bæði örugga og hagkvæma. „Við erum eitt tækni- væddasta apótek Evrópu og höfum verið leiðandi í lágu lyfjaverði,“ lýsir hún. Tölvustýrð lyfjaskömmtun hent- ar að sögn Ragnheiðar vel fyrir einstaklinga á öllum aldri og sér- staklega fyrir þá sem taka inn að staðaldri þrjú eða fleiri lyf á ólíkum tímum dagsins. „Lyfjaskömmtun- in gengur þannig fyrir sig að lyfj- unum er pakkað í skammta fyrir hverja inn- töku. Notand- inn fær þau afhent í rúllu þar sem hver dagskammt- ur er í litlum merktum poka,“ lýsir hún og segir rúlluna endast í 14 eða 28 daga. Á pokanum komi fram nafn lyfj- anna, hvenær eigi að taka þau inn, hvaða læknir ávísi þeim, dagsetn- ing og inntökutími þeirra. „Þetta fyrirkomulag auðveldar notandan- um að taka inn réttu lyfin á réttum tíma og eykur þannig öryggi hans,“ bendir hún á. Lyfjaver hf. var stofnað 1998 og er brautryðjandi tölvustýrðrar lyfjaskömmtunar, sem hófst árið 1999. Ragnheiður segir starfsem- ina hafa vaxið hratt. „Fyrirtækið byrjaði með lyfjaskömmtun í litlu rými en hefur þróast yfir í glæsilegt apótek og stóra heilsuverslun. Það er í dag sennilega með fleiri viðskipta- vini en nokkurt annað apótek, enda þekkt fyrir lágt verð og góða þjón- ustu,“ segir hún og telur að með inn- flutningi lyfja samhliða því að nota ávallt nýjustu og bestu tækni hafi Lyfjaveri tekist að standa vörð um lágt lyfjaverð til neytenda. Lyfjaver býður upp á heimsend- ingu lyfja. „Ef lyfseðlar berast okkur fyrir hádegi er hægt að senda lyfin heim samdæg- urs á höfuðborgarsvæð- inu alla virka daga. Póst- sendingar út á land afhendast næsta virka dag fyrir utan örfáa staði á landinu en þá tekur tvo sólarhringa að af- henda lyfin,“ segir Ragnheiður. Hún segir einnig al- menna upplýsingaþjónustu á staðn- um og tekur dæmi. „Neytandinn getur hringt og fengið upplýsingar frá lyfjafræðingi um lyf og inntöku þeirra.“ Eitt tæknivæddasta apótek Evrópu „Við reynum að nota okkur nýjustu og bestu tæknina til að standa vörð um lágt lyfjaverð til neytandans,“ segir Ragnheiður Gunnarsdóttir, lyfsöluleyfishafi Lyfjavers. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lyfja- skömmt- unarrúlla eins og Lyfjaver afgreiðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.