Fréttablaðið - 16.02.2011, Síða 35
MIÐVIKUDAGUR 16. febrúar 2011 3
„Þetta verður mikið sjónarspil,
sannkölluð fjölskylduskemmtun
og frábær leið til að hefja helg-
ina,“ segir Geir Sigurðsson, dósent
í kínverskum fræðum við Háskóla
Íslands og forstöðumaður Konfús-
íusarstofnunarinnar Norðurljós,
um sýningu 25
manna sýning-
arf lokks frá
íþróttaháskól-
anum í Peking
í Háskólabíói
klukkan 19.30 á
föstudagskvöld.
„Þetta er ein-
stakt tækifæri
fyrir Íslendinga
að sjá alvöru
kung-fu eða
wu shu, eins og
þessi sýning
kallast líka og
er víðtækara orð yfir fjölmörg stíl-
brigði kínverskra bardagaíþrótta.
Sýningin verður með eindæm-
um fjölbreytt, með sverðadansi,
ljónadansi, svipuleikni, ölvuðum
hnefaleikum, shaolin-hnefaleikum,
spjóts- og sverðaskylmingum, tai
jiquan og hefðbundnu kung-fu, en
einnig samkvæmisdansi sem verð-
ur forvitnileg upplifun í meðförum
þessara miklu listamanna,“ segir
Geir, en einnig mun hópur frá
Heilsudrekanum leika listir sínar
og sendiherra Kína á Íslandi, Dr.
Su Ge, flytja ávarp.
„Kínverska listafólkið hefur
stundað stranga og mikla þjálfun
frá blautu barnsbeini, en wu shu er
afar stór þáttur í menningarhefð
Kínverja og hægt að alhæfa heim-
speki wu shu yfir á svo miklu meira
en bara bardagaíþróttir þeirr-
ar þjóðar. Hún rekur sig að miklu
leyti til daoismans sem ávallt hefur
verið ríkjandi í hugsun Kínverja.
Allflest kínversk börn kynnast wu
shu og nú er mikill vöxtur í göml-
um hefðum meðal Kínverja, eins og
ástundun wu shu, en um tíma var
mikið dregið úr öllu hefðbundnu
í kínversku samfélagi,“ segir Geir.
Sýningin á föstudagskvöld er
stærsti viðburður Konfúsíusar-
stofnunarinnar frá upphafi, en
alla fimmtudaga stendur hún
fyrir kvikmyndasýningum, ásamt
fleiri uppákomum og erindum.
„Kína er Íslendingum alltof
framandi og við óskaplega aftar-
lega á merinni samanborið við
það sem nú á sér stað á Norður-
löndunum og í Evrópu. Í vikunni
var tilkynnt að Kína hefði tekið
fram úr Japan sem annað stærsta
hagkerfi heims og fer því að
verða gríðarlega brýnt að yngri
kynslóðir Íslendinga fari að skilja
út á hvað Kína gengur. Liður í því
er að kynnast menningu þess frá
öllum hliðum og sjónarhornum.
Danir hafa þegar sett upp háskóla
í Peking því þeir sjá fram á að
Kína er framtíðin og ef við ætlum
að taka þátt í samstarfi við bestu
vísindamenn heims verður það
í Kína. Við verðum því að horfa
miklu meira til austurs.“ Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
thordis@frettabladid.is
Horfum meira
til austurs
Ölvaðir hnefaleikar, ljónadans, svipuleikni og spjótaskylmingar sjást á
glæsilegri kung-fu sýningu í Háskólabíói á föstudag í tilefni kínverska
nýársins og 40 ára afmælis stjórnmálasambands Íslands og Kína.
Geir Sigurðsson
forstöðumaður
Konfúsíusar-
stofnunarinnar
Norðurljós.
Margir munu eflaust grípa andann á lofti yfir kúnstum kínversku listamannanna.
Gunnleifur Gunnleifsson er landsliðsmarkmaður
okkar í fótbolta og markmaður hjá FH-ingum.
Hann er klettur í markinu!
Kínverska listafólkið hefur stundað stranga og mikla
þjálfun frá blautu barnsbeini, en wu shu er afar stór
þáttur í menningarhefð Kínverja.