Fréttablaðið - 16.02.2011, Qupperneq 36
Koffínneysla unglinga í efstu
bekkjum grunnskóla hér á landi
er töluverð. Þannig segjast yfir 75
prósent unglinga í 9. og 10. bekk
grunnskóla neyta koffíns á degi
hverjum, yfirleitt í formi orku-
drykkja en líka kóladrykkja á borð
við Pepsi og Coca Cola sem inni-
halda koffín.
Þetta er á meðal þess sem kemur
fram í nýrri rannsókn sem Rann-
sóknir og greining við Háskól-
ann í Reykjavík gerðu í grunn-
skólum landsins í samstarfi við
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið á vormánuðum 2009. Yfir
7.000 unglingar tóku þátt í könn-
uninni og eru niðurstöðurnar birt-
ar í vísindatímaritinu Journal of
Adolescence.
Rannsóknin leiðir í ljós að mjög
sterkt samband er á milli koffín-
neyslu og reykinga og áfengis-
neyslu íslenskra unglinga, segir
Álfgeir Logi Kristjánsson, doktor
í félagslækningum við Columbia-
háskóla í New York, sem hafði
umsjón með rannsókninni ásamt
Ingu Dóru Sigfúsdóttur, prófessor
við Columbia-háskóla, og Jack E.
James, prófessor við Háskólann í
Reykjavík.
„Áhrif koffínneyslu eru meiri en
okkur grunaði og mjög og óvenju
sterk tengsl eru á milli koffínn-
eyslu og neyslu vímuefna, svo sem
tóbaks og áfengis,“ segir Álfgeir,
en niðurstöður rannsóknarinn-
ar sýna meðal annars að 93 pró-
sent þeirra sem nota koffín dag-
lega bæði reykja daglega og hafa
orðið ölvuð síðastliðna 30 daga. „Á
síðustu árum hefur neysla koff-
índrykkja í bland við áfengi auk-
ist mjög. Við vitum að vinsælt er í
skemmtanahaldi ungs fólks að nota
saman orkudrykki eins og Magic
og Red Bull og sterkt áfengi en
vitum minna um áhrifin þótt áhrif
áfengis séu þekkt.”
Þá kemur fram að unglingar sem
nota mikið koffín eru líklegri til að
eiga við svefn- og námsörðugleika
að stríða, segir hann. „Krakkar á
þessum aldri eru hvorki með full-
þroskaðan líkama né heila og kóla-
eða orkudrykkirnir sem þeir neyta
hafa örvandi áhrif þannig að þau
geta átt erfitt með að sofna á kvöld-
in, eru þar af leiðandi þreytt og
hafa meiri tilhneigingu til að sofna
á daginn. Saman hafa þessir þættir,
koffínneysla, reykingar og áfeng-
isdrykkja, neikvæð áhrif á náms-
frammistöðu. Mikil koffínneysla
hefur enn fremur neikvæð áhrif á
frammistöðuna umfram vímuefna-
notkun.“
Álfgeir segir þetta fyrstu velferð-
arrannsóknina gerða hérlendis sem
taki sérstakt tillit til koffínneyslu
unglinga. „Hingað til hafa líkamleg
áhrif koffínneyslu á fullorðna yfir-
leitt verið skoðuð. Mjög fáar rann-
sóknir hafa tekið tillit til hegðun-
ar, líðanar eða frammistöðuþátta af
völdum koffíns. Engin hefur tekið
fyrir koffínneyslu ungmenna. Þessi
rannsókn sýnir svo ekki verður um
villst hversu nauðsynlegt er að taka
koffín með í reikninginn, sérstak-
lega þar sem enn er margt á huldu.“
roald@frettabladid.is
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
RÝMINGARSALA
Síðustu dagar útsölu.
Allt á að seljast!
60-80% afsláttur
Frábært úrval af nýrri vetrarvöru:
Kjólar - Buxur - Peysur - Úlpur - Blússur - Skyrtur - Jakkar - Skór - Stígvél.
Stærðir 36-52
NÝ
sending frá
vera ● Laugavegi 49
Sími 552 2020
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI
MENNING
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18. Lau. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
NÝTT NÝTT NÝTT
Teg. 105341 - létt fylltur, blúndulaus og
mjúkur í BC skálum á kr. 4.600,-
buxur í stíl á kr. 1990,-
Teg. 21254 - létt fylltur og æðislegur
í BC skálum á kr. 4.600,-
buxur í stíl á kr. 1.990,-
Ungbarnanuddnámskeið fyrir foreldra 1-10 mánaða
Nýtt námskeið hefst fimmtudaginn 17. febrúar.
Skoðaðu Heilsusetur.is eða hringdu í síma 552 1850 eða 896 9653
Samband milli koffíns
og ölvunar ungmenna
Ný rannsókn sýnir að koffínneysla unglinga í efstu bekkjum grunnskóla á Íslandi er umtalsverð. Rann-
sóknin leiðir líka í ljós að sterkt samband er á milli koffínneyslu unglinga og reykinga og áfengisneyslu.
73% þeirra sem hvorki reykja daglega né
hafa orðið ölvaðir sl. 30 daga nota koff-
ín daglega, 86% þeirra sem annaðhvort
reykja daglega eða hafa orðið ölvaðir sl. 30
daga, en 93% þeirra sem bæði reykja dag-
lega og hafa orðið ölvaðir sl. 30 daga.
Ekki ölv.
30 daga
Ölv. 30
daga
Reykja dag-
lega eða ölv.
sl. 30 daga
100
80
60
40
20
%
Neðsti
árangur
Miðlungs
árangur
Besti
árangur
Reykja ekki
daglega né
ölv. 30 daga
74% 87%
87% 77% 64%
100
80
60
40
20
%
Sé námsárangri í kjarnafögum skipt gróf-
lega í þriðjunga kemur fram að 87% nem-
enda í neðsta þriðjungi nota koffín dag-
lega, 77% í öðrum þriðjungi en 64% í
efsta þriðjungi.
74% þeirra sem
hafa ekki orðið
ölvaðir sl . 30
daga nota koffín
daglega, en 87%
þeirra sem hafa
orðið ölvaðir sl.
30 daga.
100
80
60
40
20
%
86% 93%
Þórólfur Þórlindsson prófessor og Tinna Laufey
Ásgeirsdóttir lektor fjalla um stöðu barna og velferð
þeirra í íslensku samfélagi fyrr og nú í fyrirlestrum í
Þjóðminjasafninu á morgun klukkan 12. Er hann hluti
hádegisfyrirlestraraðar sem kallast Lýðheilsa fyrr og nú.