Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 38
MARKAÐURINN 16. FEBRÚAR 2011 MIÐVIKUDAGUR6
S K O Ð U N
Viðskiptaráð Íslands (VÍ) hefur
hrósað sér af því að stjórnvöld
fyrir hrun hafi framkvæmt flestar
tillögur þess. Það hjálpaði til við að
skapa bóluhagkerfið sem sprakk
með eftirminnilegum hætti haust-
ið 2008. VÍ er á ný komið á fulla
ferð með boðskap um afturhvarf
til fyrri tíma og þeir stjórnmála-
flokkar, sem á sínum tíma veittu
VÍ brautargengi, dansa enn sem
fyrr eftir tónlist VÍ.
Í grein í Markaði Fréttablaðs-
ins 2. febrúar síðastliðinn reynir
Viðskiptaráð að styðja endurtekn-
ar en órökstuddar fullyrðingar
sínar um skattahækkanir talna-
legum rökum. Greinin er prýdd
súluritum sem eiga að sýna gífur-
legar hækkanir skatta frá 2007 til
2010. Af þeim má lesa að skattar
hafi frá 2007 til 2010 hækkað um
9% til 100% auk upptöku á nýjum
skatti, auðlegðarskatti. Hækkun-
in á að vera frá 48% upp í 157%
auk nýrra gjalda á heitt vatn og
rafmagn og kolefnisgjald. For-
maður Framsóknarflokksins end-
urómar talnafárið og boðskapinn
í grein í Fréttablaðinu 11. febrú-
ar og í Morgunblaðinu 14. febrúar
síðastliðinn.
Það segir sig sjálft að þessar
meintu hækkanir á sköttum ættu
að koma fram í tekjum ríkissjóðs.
Því er fróðlegt að líta á staðreyndir
um þróun skatta síðustu ár.
SKATTAHÆKKANIR
Starfshópur fjármálaráðherra um
endurskoðun á skattkerfinu skil-
aði áfangaskýrslu í september
síðastliðnum.
Í henni er meðal annars að finna
talnalegt yfirlit yfir þróun skatt-
tekna ríkisins frá árinu 2005 til
2011. Uppfærslu á þeim tölum sem
þar birtust, með tilliti til fjárlaga
fyrir 2011 og að teknu tilliti til til-
færslu fjár til sveitarfélaga vegna
breyttrar verkaskiptingar, má sjá
í töflunni hér á eftir. Skattar eru
þar sýndir sem hlutfall af VLF,
sem er algengasti mælikvarði til
að sýna þróun skatta og saman-
burð við aðrar hagstærðir.
Tafla 1 sýnir að skattar hafa
lítið breyst á síðustu tveimur
árum og eru nú í flestum tilvik-
um lægri sem hlutfall af lands-
framleiðslu en þeir voru á árun-
um fyrir hrun. Undantekningar
eru fáar og eiga sér skýringar
og rök. Eignaskattar hafa hækk-
að nokkuð vegna upptöku auð-
legðarskatts en eru samt lægri
nú en þeir voru á árunum fyrir
2008 þegar almenni eignarskatt-
urinn var við lýði. Sá skattur var
greiddur af mjög mörgum. Auð-
legðarskatturinn er hins vegar
nú greiddur af litlum hluta gjald-
enda, sem er tekjuhæstur og á
mestan hluta eigna í landinu, þar
á meðal af þeim sem juku eignir
sínar í bóluhagkerfinu og hruninu
á meðan allur almenningur mátti
þola eignarýrnun.
Ný gjöld, undir liðnum Önnur
vörugjöld, eru umhverfisgjöld,
sem flestir hagfræðingar og um-
hverfismeðvitaðir menn eru sam-
mála um að séu skynsamlegir og
hagkvæmir, sem og orkuskattar,
sem fyrst og fremst eru greidd-
ir af þeim erlendu aðilum sem
nýta auðlindir landsins fyrir lítið
fé. Vegna andstöðu talsmanna
atvinnurekenda við þann skatt og
að tillögu þeirra var trygginga-
gjaldið hækkað nokkuð í stað-
inn og má segja að það sé eina
skatttegundin sem hækkað hefur
afgerandi.
LÆGRI SKATTAR OG LÆGRI
HEILDARSKATTBYRÐI
Súluritið sýnir heildarskatta á
föstu verðlagi á hægri ásnum
og sem hlutfall af VLF á vinstri
ásnum.
Af súluritinu í töflu 2 má lesa
í fyrsta lagi að skattar hafa ekki
hækkað frá 2007 til 2010, held-
ur lækkað. Á föstu verðlagi hafa
þeir lækkað um yfir 100 milljarða
króna frá 2007 til 2010. Fullyrðing
um að skattar hafi almennt hækk-
að á þessu árabili er því röng. Í
öðru lagi sést að 2007 voru skattar
sem hlutfall af landsframleiðslu
31,2 prósent en á árinu 2010 var
þetta hlutfall 26,9 prósent, eða 4,3
prósentustigum lægra. Það sýnir
að ríkið er nú að taka minna í sinn
hlut en áður, þ.e. heimilin halda
meiru eftir. Í þriðja lagi má sjá
að skattbyrðin nú er mun lægri
en hún var í þeirri gósentíð fyrir
2009 sem VÍ þráir. Á árunum 2005
til 2007 var skattbyrði af sköttum
ríkisins að jafnaði um 32% af VLF
en á árunum 2009 til 2011 verð-
ur hún um 27% af VLF eða um 5
prósentustigum lægri en áður. Sá
munur samsvarar um 80 milljörð-
um króna.
BREYTINGAR Á TEKJUSKATTI
EINSTAKLINGA
Nánari athugun sýnir að flestar
fullyrðingar VÍ um hækkun á ein-
stökum sköttum eru rangar eða
villandi. Dæmi um það er meint
hækkun á almennum tekjuskatti
einstaklinga um 9 prósent og á
fjármagnstekjuskatti um 100 pró-
sent. Þegar litið er á efstu talna-
línu töflu 1 sést að í reynd lækk-
uðu tekjuskattar einstaklinga
milli 2007 og 2010 sem hlutdeild
af VLF úr því að vera 8,75 pró-
sent í 7,67 prósent, eða um rúm-
lega 1 prósentustig, sem þýðir að
sem hlutfall af tekjum einstakl-
inga hefur lækkunin verið um 1,5
prósent. Hluti þessarar lækkunar
er vegna samdráttar í fjármagns-
tekjustofninum en meginástæð-
an er lægra skatthlutfall á lágar
tekjur í almennum tekjuskatti og
að hækkun skatthlutfalls fjár-
magnstekna var ekki 100% þar
sem lágar vaxtatekjur voru und-
anskildar hækkun 2009 og verða
skattfrjálsar hjá yfir helmingi
gjaldenda á árinu 2010. Hækkun
verður hins vegar hjá þeim tiltölu-
lega fáu sem safna á sínar hend-
ur stórum hluta vaxtatekna, arðs
og söluhagnaðar og hafa til þessa
goldið af því lítinn skatt.
BREYTT SKATTBYRÐI
Eins og sýnt hefur verið fram á
hér að framan eru þær staðhæfing-
ar að skattar hafi stórlega hækk-
að rangar. Það sem breyttist var
hins vegar dreifing skattbyrðar-
innar. Á árunum fyrir 2009 hafði
skattbyrði aukist jafnt og þétt hjá
öllum nema þeim sem höfðu allra
bestu tekjurnar og þeim sem höfðu
framfæri af atvinnurekstri, eink-
um fjármálavafstri og einkahluta-
félagavafningum, svo og erlend-
um aðilum sem höfðu tekjur hér á
landi. Hjá þeim lækkaði skattbyrð-
in. Með þeim breytingum á skött-
um sem gerðar voru á árunum
2009 og 2010 er snúið af þessari
braut, sem merkjanlegt er af tölum
og hörðum viðbrögðum þeirra sem
áður nutu sérstakrar vildar.
Línuritið í töflu 3 sýnir tekju-
skatta og auðlegðarskatt við álagn-
ingu á árinu 2010 í samanburði við
2009 (tekjuárin 2008 og 2009) sem
hlutfall af tekjum hjóna sem raðað
hefur verið eftir tekjuhæð. Tekju-
skattar, þar með talið útsvar og
fjármagnstekjuskattur, og auðlegð-
arskattur er lægra hlutfall tekna
hjá yfir 60 prósentum gjaldenda í
neðri hluta tekjuskalans. Þar fyrir
ofan er nokkur hækkun, einkum
efst í honum, svo skatthlutfall þar
verður ekki lengur undir meðaltali
eins og áður var.
Hin stóra breyting í skattlagn-
ingu 2010 er að í fyrsta skipti koma
nú fram breyttar áherslur í þá átt
að beita sköttum markvisst í um-
hverfismálum og að því að endur-
heimta hluta af arði af auðlindum
landsins, sem spilað hafði verið
úr höndum þjóðarinnar á síðustu
árum.
RANGAR ÁLYKTANIR VÍ
Súluleikfimi VÍ kann að einhverju
leyti stafa af óvandaðri tölfræði-
vinnu en það dugar ekki til að
skýra hana að fullu og afsakar
ekki þær fullyrðingar sem byggð-
ar eru á henni, svo sem þá að þvert
ofan í þá staðreynd að skatttekj-
ur ríkissjóðs voru um 1% umfram
áætlanir á árinu 2010 er fullyrt að
skattstofnar hafi dregist saman
miðað við áætlanir. Aðrar álykt-
anir í grein VÍ eru sama marki
brenndar.
NIÐURSTAÐAN AF FRAMAN-
GREINDU ER:
Skattahækkanir á árunum 2010
og 2011 hafa verið mjög hófleg-
ar. Hrunið sem varð 2009 leiddi
til lækkunar skatttekna um 6-
7 prósent af VLF. Síðan hafa
skattar hækkað um 1,6 prósent
af VLF.
Skattar eru nú sem nemur um
5 prósent af VLF lægri en þeir
voru á árunum 2005–2007.
Að því leyti sem tekjuskattar
hafa hækkað hefur sú skattbyrði
verið lögð á hin breiðu bök sem
áður nutu skattalegra vildar-
kjara en hinum minna megandi
verið hlíft.
Tekjuskattar einstaklinga með
miðlungstekjur og lægri hafa
•
•
•
•
lækkað, en hækkað nokkuð á
fólk með mjög háar tekjur.
Nýir skattar til verndar um-
hverfi og til að tryggja þjóð-
inni aukinn arð af auðlindum
hafa verið teknir upp þótt í tak-
mörkuðum mæli sé.
Það er algengur kækur hags-
munasamtaka að láta sem þau
tali fyrir hag allra þótt það sé
sjaldan raunverulegur tilgang-
ur þeirra. Það er ekki óeðlilegt
•
að talsmenn ákveðinna þrýsti-
hópa í samfélaginu kveði sér
hljóðs og flytji mál umbjóðenda
sinna en gera verður þær kröf-
ur að fram komi í hverra þágu
þeir tala og að þeir haldi sig við
staðreyndir í málflutningi sínum.
PS. Grein þessi var stytt nokkuð og línuritum
fækkað að ósk Fréttablaðsins. Greinina óstytta
má nálgast í vefriti mínu http://web.me.com/
inhauth/Indriði_H._Þorláksson/Greinasafn.html
Furðuskrif Viðskiptaráðs um skatta
% af VLF 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
Tekjuskattur einstaklinga 8,59% 8,89% 8,75% 9,00% 7,33% 7,67% 7,61%
Tekjuskattur lögaðila 2,28% 2,77% 2,80% 2,23% 2,07% 1,38% 1,62%
Eignarskattar 1,30% 0,75% 0,91% 0,50% 0,35% 0,54% 0,65%
Virðisaukaskattur 11,12% 11,31% 10,52% 9,08% 8,08% 8,16% 8,10%
Vörugjöld af bensíni 0,85% 0,77% 0,70% 0,59% 0,73% 0,75% 0,76%
Olíugjald 0,17% 0,48% 0,48% 0,40% 0,41% 0,41% 0,42%
Áfengisgjald 0,69% 0,65% 0,62% 0,55% 0,65% 0,66% 0,67%
Tóbaksgjald 0,37% 0,33% 0,30% 0,26% 0,29% 0,30% 0,31%
Önnur vörugjöld 1,66% 1,52% 1,42% 0,93% 0,58% 0,95% 0,98%
Aðrir óbeinir skattar 1,22% 0,86% 0,86% 0,77% 0,75% 0,77% 0,81%
Tollar og aðflutningsgjöld 0,34% 0,40% 0,42% 0,40% 0,35% 0,38% 0,33%
Aðrir skattar 0,87% 0,27% 0,43% 0,48% 0,89% 0,80% 0,75%
Tryggingagjöld 3,19% 3,29% 3,03% 2,82% 3,06% 4,13% 4,09%
Skatttekjur alls 32,7% 32,3% 31,2% 28,0% 25,5% 26,9% 27,1%
S K A T T A R R Í K I S I N S S E M % A F V L F 2 0 0 5 T I L 2 0 1 1 ( T A F L A 1 )
Indriði H.
Þorláksson
hagfræðingur
og fyrrverandi
aðstoðarmaður
fjármálaráðherra
O R Ð Í B E L G
35%
28%
21%
14%
7%
0
600
480
360
240
120
0
2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
502 519 532 481 409 418 429
32,7% 32,3% 31,2%
28,0%
25,5%
26,9% 27,1%
S K A T T A R A L L S ( T A F L A 2 )
Skattar alls, fast verðlag 2010
Skattar % af VLF
% af VLF Ma. kr.
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20
Tekjubil (5%)
S K A T T A R Á T E K J U R O G A U Ð L E G Ð ( T A F L A 3 )
- álagning tekjuskatts og auðlegðargjalds á hjón 2009 og 2010 - % af heildartekjum
Samtals 2010
Samtals 2009
Almennur tekjuskattur 2010
Almennur tekjuskattur 2009
Í VERSLUNARFERÐ Í grein sinni segir Indriði Þorláksson rangt að skattar hafi hækkað hér á landi á árunum 2007 til 2010, þvert á móti
hafi þeir lækkað um yfir 100 milljarða króna á því árabili. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM