Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2011, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 16.02.2011, Qupperneq 40
11 7% 433.000milljarða viðsnúningur til hins betra varð á rekstri Icelandic Group milli fjórða árs-fjórðungs ársins 2009 og sama tímabils árið eftir. verðfall hefur orðið á olíu eftir að Hosni Mubarak hrökklaðist úr embætti Egyptalandsforseta. krónur eru launin sem Jón Sigurðsson þáði dag hvern í fyrra fyrir að stýra stoðtækjafyrirtækinu Össuri. SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð Einkahlutafélög hafa á stundum fengið allkostuleg nöfn, samanber félögin Afsprengi og Von. Annað dæmi umkostu- legt nafn er útgerðar- félagið Redding, sem eig- endur Eyrarodda á Flateyri eiga. Fyrirtækjaheitin geta svo orðið enn ein- kennilegri eins og sjá má á félagi sem leit dagsins ljós á Fyrirtækjaskrá á föstudaginn var. Það er einkahlutafélagið Ubezpieczenia, sem sérhæfir sig í vátryggingum og lífeyrissjóð- um. Hver treystir sér annars til að segja það þrisvar upphátt? Og hvað á fyrir- tækið að heita? H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA / A C TA V IS 0 1 1 1 4 2 Af litlum neista… Omeprazol Actavis - öflugt lyf við brjóstsviða og súru bakflæði 20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur ómeprazól sem hemur seytingu á magasýru. Omeprazol Actavis er notað við tilfallandi brjóstsviða og súru bakflæði. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum, samtímis notkun lyfja sem innihalda claritrómýcín hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, samtímis notkun lyfja sem innihalda atazanavír. Varúð: Gæta skal sérstakrar varúðar: Ef verulegt og óvænt þyngdartap verður, við endurtekin uppköst, ef erfiðleikar eru við að kyngja, við blóðuppköst eða blóð í hægðum, ef lifrar- eða nýrnastarfsemi er skert, ef þú færð niðurgang eða ef þú hefur fengið fylgikvilla (blæðingar eða sár í meltingarfærum) vegna bólgueyðandi verkjalyfja. Láta skal lækni/lyfjafræðing vita ef bólgueyðandi verkjalyf eru notuð. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið nema að ráði læknis. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga/brjóstagjöf: Leitið ráða hjá lækni áður en lyfið er notað. Akstur og notkun véla: Aukaverkanir, svo sem þreyta, svimi og sjón- og heyrnartruflanir, geta komið fram og geta haft áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Algengar aukaverkanir eru niðurgangur, hægðatregða, vindgangur, ógleði, uppköst, svefntruflanir, sundl, höfuðverkur eða þreyta. Þessar aukaverkanir verða yfirleitt vægari við áframhaldandi meðferð. Skammtastærðir: Fullorðnir: 1 sýruþolið hylki eftir þörfum. Ekki má nota meira en 20 mg á sólarhring. Ef einkennin hverfa ekki eftir að Omeprazol Actavis hefur verið notað í 14 daga skal hafa samband við lækninn vegna þess að einkennin gætu verið af öðrum orsökum. Gleypa á sýruþolnu hylkin með glasi af vökva. Sýruþolnu hylkin ætti að taka fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Hvorki má tyggja né mylja sýruþolnu hylkin. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Júlí 2010. Nýjustu mælingar sýna að kortavelta hefur dregist saman í upphafi ársins. Greining Íslandsbanka bendir á í umfjöll- un sinni í gær að velta í jan- úar hafi, samkvæmt tölum Seðlabankans, dregist saman um nærri tvö prósent milli ára ef stuðst er við heildarnotkun á debetkortum einstaklinga innan- lands. „Kveður hér við annan tón en í tölum undanfarinna mánaða þar sem nokkur aukning varð á veltunni,“ segir þar. Síðan verð- ur hver og einn að gera upp við sig hvort aukið a ð h a l d í korta- notkun sé til marks um van- trú fólks á batnandi efnahagsástandi eða hvort hér megi greina timbur- menn jólahalds sem farið hefur úr böndum. Vantrú eða timburmenn Fyrirtæki ástralska fjölmiðla- kóngsins Ruperts Murdoch gaf nýverið út fyrsta dagblaðið sem einvörðungu er mögulegt að lesa á iPad-spjaldtölvuna frá Apple. Margir fussuðu og sveiuðu og furðuðu sig á því að nokkur skyldi láta sér koma til hugar að betra sé að lesa dagblað af skjá fremur en á gamla mátann. Breska vikublaðið Economist segir tímann væntanlega skera úr um örlög blaðsins, sem kostar tæpra hálfa milljón dala að gefa út í viku hverri, rúmar fimm- tíu milljónir íslenskra króna. Economist hefur reyndar eftir sérfræðingi að blaðið muni lík- lega þrauka enda kosti hvert eintak svo lítið sem 99 sent, tæpar 114 krónur. Rafblaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.