Barnablaðið - 01.02.1968, Blaðsíða 8

Barnablaðið - 01.02.1968, Blaðsíða 8
Hermaðurinn, sem sofnaði á verðinum 9 / William Scott var mjög áhyggjufullur her- maður. Hann hafði sannarlega ástæðu til að vera það, því að hann hafði sofnað á verð- inum. Þetta átti sér stað í Borgarastyrjöldinni. William, sem var ungur sveitapiltur frá Ver- montfylki, kom kvöld eitt mjög þreyttur í skála sinn eftir að hafa gengið allan daginn. Einn félagi hans var þá orðinn veikur en hann átti að standa vörð þessa nótt. „Ég skal fara í þinn stað,“ sagði William vingjarnlega. En hann var svo þreyttur, að áður en hann vissi af, var hann sofnaður á verðinum. Þetta er mjög alvarlegt brot á ófriðartímum og var William Scott kærður fyrir herrétti. Dóm- ur var kveðinn upp, William var sekur fund- inn og dæmdur til dauða. „Ef forsetinn, sem er yfirhershöfðingi Bandaríkjahers, fengist til að náða þig, þá er það eina undankomuleiðin fyrir þig,“ var unga hermanninum sagt. „Lincoln forseti er mikill og önnum kaf- inn maður. Hann hefur ekki tíma til að sinna mér,“ sagði hann við sjálfan sig. En nokkrir af vinum Williams voru á ann- arri skoðun. Lincoln forseti var á eftirlits- ferð og fóru þeir til hans. „Wihiam Scott á skilið að fá annað tæki- færi, herra forseti," sögðu þeir. „Viltu ekki náða hann?“ „Ég skal taka það til athugunar," sagði Lincoln. Hann fór til fangelsisins þar sem hinn ungi William beið þess að dóminum yrði fullnægt. Lincoln forseti vildi fá að vita, hvers konar maður hann væri. Hann spurði um fjölskyldu hans í Vermont, um menntun hans og fleira. Fylltur lotningu, svaraði William spurn- ingum forsetans. 8 Meðan hann talaði, tók Lincoln forseti sína ákvörðun. „Ég ætla að náða þig, sonur og senda þig aftur í hersveit þína,“ sagði forsetinn að lok- um. „Hvernig ætlar þú að endurgjalda mér það?“ William Scott varð bilt við. Hann hafði fyllzt gleði þegar forsetinn sagðist ætla að náða hann, en hann vissi ekki hvernig hann gæti endurgoldið honum. Vissulega þyrfti hann að greiða forseta Bandaríkja Ameríku háa þóknun. „Ég reikna með að félagar mínir muni hjálpa mér og þá getum við kannski greitt þér fimm eða sex hundruð dollara,“ sagði hann. „En það er ekki nóg, er það?“ „Nei, það er ekki nóg, William,“ svaraði Abraham Lincoln. Hann gekk til þessa áhyggjufulla unga manns og lagði hönd sína á öxl hans. „Nei, ungi maður, vinir þínir geta ekki hjálpað þér að borga þá miklu skuld sem þú sku'dar mér. Því að það sem ég bið um, er að þú verðir góður og skyldurækinn her- maður frá þeirri stundu sem þú ert frjáls á ný. Aðeins á þann hátt getur þú borgað yfir- hershöfðingja þínum skuld þína. Lofar þú mér því, William Scott?“ Lfngi maðurinn varð djúpt snortinn. „Já, herra, já, herra Lincoln,“ svaraði hann ein- læglega. „Ég mun aldrei sofna á verðinum framar, né bresíðast á nokkurn annan hátt.“ „Þá ertu frjáls." William Scott hélt loforð það, sem hann gaf forsetanum. Hann var alltaf skylduræk- inn og djarfur hermaður. Við erum öll í sömu afstöðu og ungi her- maðurinn, vegna þess að það stendur i Biblí- unni að við höfum öll syndgað. Hvað getum við gert við því?

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.