Barnablaðið - 01.02.1968, Blaðsíða 17

Barnablaðið - 01.02.1968, Blaðsíða 17
Eva var allt í einu orðin ákaflega óham- ingiusöm. Samvizkan sagði henni, að hún væri orðin þjófur, og Guð vissi það líka, að hún var þjófur, og hann var víst búinn að segja lögreglunni frá þessu öllu, og nú vissi hún það líka, að hún var þjófur. Bráðum mundi hún verða sett í fangelsi, og það var eitthvað voðalegt, hafði hún heyrt. Þangað fengi hi'm ekki að hafa mömmu með sér, og þar mátti maður víst ekki heldur leika sér. Vesalings Eva litla, hvað hún átti bágt! Þetta varð allt sorglegra og sorglegra eftir því sem hún stóð lengur bak við hurðina. Hún fann, að nú gat hún ekki farið til mömmu sinnar, eins og vanalega til þess að fá huggun. Góða, glaða brosið hennar mömmu var ekki fyrir þjófa, nei, aldeilis ekki. Þegar lögreg^an var gengin hjá. fór Eva út og reyndi að leika sér á ný, en nú fannst henni ekkert gaman lengur. Næsta dag hljóp hún undir eins inn og faldi sig, þegar hún kom auga á lögregluna. Og það sama endurtók sig þriðja daginn og daginn þar á eftir. Hún missti matarlystina og fór að borða minna og minna hvern dag. Einnig gekk henni svo illa að sofa á nætumar, og þegar hún loks gat sofnað, var svefninn svo óróiegur. Og þar kom, að mamma hennar fór að verða hrædd um, að litla stúlkan sín væri að verða alvar- lega veik. En þá gat Eva ekki haldið þetta út lengur. Hún sagði mömmu frá öllu saman, og það var það bezta. Mamma hennar sá undir eins að Eva var búin að fá svo þunga hegningu af samvizkunni, og sagði henni því með blíðum orðum, að ef hún bæði Guð um fvrirgefn- ingu, og skilaði aftur því, sem hún hefði tekið, þá mundi sárið gróa og allt verða gott aftur. — Heldurðu að lögreglan setji mig þá ekki í fangelsið? spurði Eva mömmu sína, því að enn þá var hún mikið lirædd og öróleg. En þegar mamma hennar var búin að tala rólega við hana og sýna henni blíðu og tala um fyrir henni á ýmissa vegu, varð Eva róleg og örugg á ný. — Líklega lætur Guð lögregluna vita, að ég er ekki lengur neinn þjófur, hugsaði Eva, með- Gríptu tœkifœrið nú Hvers vegna hugsar maður ekki um frelsi sálar sinnar nú? Á bernskuárum er maður of glaður og áhvggjulaus. Hugsar sem svo: „Ég ætla að bíða þar til ég verð stór, ég skil tæpast enn hvað það er að verða kristinn." Á æskuárunum dreymir okkur um ham- ingjuna og framtíðina. „Þegar róin færist yfir mig og ég fæ betri tíma, ætla ég að fara að hugsa alvarlega um frelsi mitt. Nú ríður á að komast áfram í lífinu og verða ekki eftir- bátur hinna.“ Á fullorðinsárum eru áhyggjurnar of mikl- ar. Verzlunaráhyggjur og fjölskylduáhyggjur. „Ég get ekki hugsað um Guð núna. Fvrst verð ég að komast í geErnum þessa erfiðleika. En þegar það er yfirstaðið, þá. . ..“ Á elliárunum eru við orðin of gömul. Hjartað er orðið hert af syndinni. Synda- vanana er miög erfitt að lesgja af, og við finnum, að við eigum ekki létt með að vfir- gefa þann veg, sem við höfum gengið svo lengi. an mamma hennar var að láta á hana nýja svuntu, í staðinn fyrir hina, sem var orðin svo ákaflega krumpótt, og auk þess blaut af tárum. Eftir þetta sendi mamma hana til telpn- anna, og þið hefðuð átt að sjá, hve Eva hljóp léttilega frá telpunum aftur, þegar hún var búin að skila þeim verinu. Nú fann hún, að lengur var ekkert sár, sem sveið í hjartanu. Sárið var gróið. Og Guð og samvizkan og Eva og mamma og allur heimurinn voru aftur orðnir góðir vinir. Og aldrei, aldrei framar ætlaði Eva að gera slíkt aftur. 17

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.