Barnablaðið - 01.02.1968, Side 20

Barnablaðið - 01.02.1968, Side 20
I Frœkileg björgun Það var fagurt síðsumarskvöld. Fjöllin við sjávarþorpið spegluðust í sjónum. Þau stóðu bókstailega á hötði. Reykurinn úr húsunum liðaðist þráðbeint upp í loftið. Það var kyrrð og ró yfir öllu, að undanteknu gargi kríunn- ar, vélahljóði og gangskellum fiskibátanna, sem stefndu út lognbláan fjörðinn. Nokkrir drengir stóðu á bryggju, önnum kafnir við að dorga. Þetta voru glaðlegir og hraustir drengir, en ekki of hreinir um and- lit og hendur. Fingur, sem krækja síldarbeitu á öngul og slægja kóð vilja óhreinkast. Það kannast margur drengur við það. Svo er held- ur enginn tími til þvotta eða slíks hreinlætis. „Jæja,“ sagði Geir litli, „ég held ég sé að verða búinn að fá í soðið, ég má ekki fara heim fyrr.“ Þarna lágu litlir fiskar á bryggju- hausnum, ufsar og þorskakóð. Fjölskylda Geirs var fátæk. Faðir hans liafði meiðzt í baki og mátti ekki vinna neitt að svo stöddu. Hinir drengirnir voru, Valdimar, greindar- legur, hláturmildur og lét oft móðan mása. Björn, oftast óhreinn, freknóttur og seinn í bólið á kvöldin. Og svo var Karl. Hann var háttprúður og þeirra bezt klæddur og horfði mest á hina drengina dorga. Snyrtimennskan virtist honum í blóð borin. Svo mátti hann ekki óhreinka sig. Það var brýnt fyrir honum á hverjum degi. Mamma hans gerði það og Karli þótti mjög vænt um hana. „Hún mamma þín hefur þá ekki gleymt að skipta um bleyjur á þér,“ skríkti Valdimar við Karl. „Áttu við að ég sé í of fínum föt- um til þess að umgangast þig?“ svaraði Karl. „Heyrið þið strákar," hélt Valdimar áfram, „ef hann Kalli mundi dorga, haldið þið þá 20 ekki að hann fengi bara eintóma marhnúta?“ sagði Valdimar og hló mikinn. „Þið vitið, strákar, livað það er ófiskimannlegt að veiða þessa marhnúta." Karl brosti. Augu hans höfðu staðnæmzt við þann fisk, sem Valdimar var nú að draga upp úr sjónum. Það var einmitt brúnleitur, hausstór og ljótur marhnútur. Hinir dreng- irnir ráku nú upp háa hrinu ýmislegra hljóða, þegar þeim varð þetta ljóst. Valdimar snar- þagnaði, beit á vörinu, gretti sig og dró mar- hnútinn upp. Hann varð að gera það til þess að ná honum af önglinum. „Uss, hryllilega var hann ljótur!“ „Jæja, sá lilær bezt, sem síðast hlær,“ sagði Karl. „En ekki er þetta nóg í matinn handa ykkur?“ og Karl brosti breitt. „Ég anza þessi ekki, sagði Valdimar fýldur á svip. Og drengirnir héldu áfram að dorga. „Þau svima ekki mikið fjöllin að standa svona á höfði í sjónum,“ sagði Valdimar, sem var að ná sér eftir vonbrigðin. „Nei, ekki aldeilis, strákar," sagði Björn og nuddaði freknótt nefið með miður hreinum hnúunum. Nei, nú þykir mér skörin færast upp í bekkinn eins og kennarinn segir,“ sagði Valdi- mar og kyppti nú spriklandi þyrsklingi upp á bryggjuna. „Þetta kallar maður nú þorsk á þurru landi.“ „Þú þarna, Geir, ertu búinn að fiska í matinn handa ykkur?“ hélt Valdimar áfram. „Ne-ei varla ennþá,“ svaraði Geir. Hann var alltaf mjög hæverskur, þótt aðrir drengir létu stundum vaða á súðum. „Hvernig er það með hann pabba þinn, er honum ekkert að batna?“ „Ég vona það,“ sagði Geir. „Liggur hann fyrir, ég meina, er hann í /

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.