Barnablaðið - 01.02.1968, Page 22
Eg vil hafa augun á þér
Mun sá ekki sjá sem augað heíur tilbúið? (Sálm. 94,9).
Því að augu hans hvíla yfir vegum hvers manns, og
hann sér öll spor hans (Job 34, 21).
Ég vil kenna þér og frœða þig um veg þann, er þú átt
að ganga. Ég vil kenna þér ráð, hafa augun á þér —
(Sálm. 32, 8).
En augu Drottins hvíla á þeim, er óttast hann, á þeim,
er vona á miskunn hans, til þess að frelsa þá frá dauða
og halda lífinu í þeim í hallœri (Sálm. 33, 18—19).
Hann (Drottinn) hefur ekki augun af þeim réttláta —
(Job 36, 7).
Auglit Drottins horfir á þá, er illa breyta, til þess að
afmá minningu þeirra af jörðunni, en augu Drottins
hvíla á réttlátum og eyru hans gefa gaum að hrópi
þeirra (Sálm. 34, 16—17).
Dýr er í augum Drottins dauði dýrkenda hans (Sálm.
116, 15).
Því að augu Drottins hvarfla um alla jörðina til þess að
hann megi sýna sig máttkan þeim til hjálpar, sem eru
heilshugar við hann (11. Kron. 16, 9).
Augu þín eru of hrein til þess að líta hið illa og þú getur
ekki horft upp á ranglœti (Habbak. 1, 13).