Barnablaðið - 01.02.1968, Side 27

Barnablaðið - 01.02.1968, Side 27
\ „og í þorpinu þar sem ég á heima, eru tvær eða þrjár blindar stúlkur, og munu foreldrar þeirra koma á kaupstefnuna. Kannske að ég geti sagt um það, liver sé móðir stúlkunnar. Kristniboðinn leit undrandi á hann. Hún var alveg handviss um að hún hefði ekki séð þennan dreng áður, og mátti vera, að hann segði satt. Hún var búin að veita hon- um athygli frá því hann kom, og hafði séð hvað hann var þreytulegur og magur, og hve fæturnir á honurn voru illa farnir. F.inn- ig hafði hann farið að mat sínurn, eins og hann væri glorhungraður. Hana grunaði, að hann væri búinn að ferðast langa leið og var glöð yfir að geta satt Iiungur hans. Hún tók hann með sér upp á efri hæðina, þar sem Kinza lá og svaf á dínu á gólfinu. Litla stúlkan var mjög umbreytt nú, eftir að liafa verið böðuð. Hún var sannast að segja búin að fá yfir sig annað litaraft. í stað göm'u fatanna var hún nú komin í mjall- hvítan náttkjól. Nú er hún orðin nægilega hvít og hrein til þess að fá aðgang að himii gullnu borg, hugsaði Hamid. Hann stóð þarna þó nokkra stund og virti hana fyrir sér, en síðan fór hann að líta í kringum sig. Allur húsbúnaður í herberginu var einkar fábrot- inn alveg eftir siðvenjum landsins, en á kodd- unum voru vönduð ver. í hillunum voru bækur og myndir á veggjunum. Einnig var þarna fallegur lampi, og Hamid var alveg viss um að Kinza var komin á undan honum inn á Ijómandi land. Ó, hvað hann óskaði sér, að einnig hann hefði mátt nema staðar hé-r. En hann hugsaði um leið, að það væri ómögulegt. Hann horfði á rifnu fötin sín, og það rninnti hann vissulega á það, að hann sjálfur væri aðeins götudrengur, útrekinn og ætti engan hlut í þessari dýrðar tilveru. „Eg þekki hana ekki,“ sagði hann loks í djúpri alvöru, og sýndi á sér fararsnið. — „Hún er ekki úr okkar bæ.“ An þess að mæla orð frá vörum fylgdist hann með kristniboðanum niður stigann og var hleypt út. Hann rölti niður á götuna og þar, á takmörkum ljóss og mvrkurs, sneri hann sér við, leit upp og greip hönd konunn- ar, sem svnt hafði Kinzu svo mikinn kærleika. „Frænka er góð,“ sagði hann. „Maturinn yðar er góður, allt sem frænka segir er fallegt, og hiarta frænku er gott. — Mætti Guð vera forfeðrum frænku náðugur.“ Síðan hljóp hann niður götuna og hvarf út í myrkrið Framhald. Drengurinn sem viídi fá Biblíu Það var einu sinni drengur, sem langaði mjög mikið að eiga Biblíu. Það var ekkert sem hann óskaði fremur. En hann var fá- tækur drengur, og hafði ekki efni á því, að kaupa svona bók. Þetta var á þeim árum, þegar ein Biblía kostaði meiri peninga, en nú á dögum. Dag einn komu tveir ókunnugir menn í heimili hans og báðu móður hans að gefa sér svolítinn mat. Þó að hún hefði ekki mik- ið handa á milli, skipti hún af fúsu geði því litla sem hún átti á milli þeirra. Þegar þeir voru að borða, tóku þeir eftir því, að drengurinn var hrvggur. Er þeir spurðu hann hver væri orsök þess, svaraði hann, að hann langaði svo mikið til að eignast Biblíu, en að hann gæti ekki keypt sér hana, vegna þess að hann væri svo fátækur. „Vertu ekki hryggur út af því, þú skalt fá að fara með mér í næstu viku, og sjá Georg Washington," sagði móðir hans hughreyst- andi. 27

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.