19. júní


19. júní - 19.06.1968, Page 16

19. júní - 19.06.1968, Page 16
Rósa Geslsdóttir B.A., kennari viö Verzlunarskóla Islands. HANDLEIÐSLA Umræður um kennslumál hafa verið geysimikl- ar hér á landi að undanförnu í blöðum, útvarpi, á sérstökum ráðstefnum og manna á meðal. Nefnd- ir hafa rannsakað þessi mál og álits fjölmargra verið leitað, margreyndra skólamanna, kennara og nemendanna sjálfra. Skoðanir hafa verið mjög skiptar hæði um námsefni og kennsluhætti á öll- um skólastigum, — sumir vilja gerbylta rikjandi ástandi, nokkrir viljað ríghalda í það gamla af ótta við, að nýjungarnar gæfu verri raun, og enn aðrir telja, að hægfara þróun sé og verði heillavænleg- ust í skólamálum. Viðtæk rannsókn á skólakerfinu stendur yfir, falin hámenntuðum mönnum, og nemendur fjöl- mennra skóla gera samþykktir um ýmsar breyt- ingar á námsefni og kennsluháttum. Það liggur því við, að verið sé að bera í bakka- fullan lækinn að ætla að ræða hér stuttlega um þetta víðtæka efni, en í annan stað hljóta þessi mál að vera stöðugt umræðuefni, því að þau eru allra mál, nemenda, kennara, foreldra, — alþjóðar. Reynsla mín sem skólakennari er mjög stutt. Hins vegar hef ég um langt skeið gegnt prófdóm- arastörfum og sinnt heimakennslu, m. a. aðstoðað skólanemendur við próflestur (einkum í tungu- málum), svo að sumt námsefni skólanna hefur lengi verið mér kunnugt. Ég hef þá einnig kynnzt allnáið fjölmörgum skólanemendum á ýmsum skólastigum, sem sumir hverjir höfðu dregizt aftur úr i einstöku námsgreinum, og ég veit þess vegna vel, hve alvarlegt það er fyrir nemendur, ef mikil brögð eru að slíku. Ég hef því fallizt á að leitast við að svara nokkr- um spurningum um málakennslu, sem fyrir mig hafa verið lagðar. Hvernig skýriS þér markrniÖ tungumálakennslu? Það má segja að það sé fjórþætt, — aff kenna nemendum aÖ heyra og skilja laláS mál, áS skilja þaS. sem þeir lesa, aS tala máliS sjálfir og skrifa þaS. 1 stuttu máli — aS skilja taláS og ritáS mál og tala og rita máiliS sjálfir. Það er því fernt, sem þarf að æfa, aS hlusta, lesa, tala og skrifa. Mark- mið málakennarans almennt er þess vegna að byggja upp traustan orðaforða, kenna málfræði- atriði og setningaform, og láta nemendur æfa þessi form, helzt þaulæfa, í mæltu og rituðu máli, því að nauðsynlegt er, að venja skapist, til þess að mál verði manni eiginlegt. Margvíslegar aðferðir eru svo hafðar við að ná tökum á hinni erlendu tungu, og hafa miklar breyt- ingar orðið í námi og kennslu viða um heim á siðari tímum. Nútímamálvísindi hafa leitt af sér nýjar kennsluaðferðir og ný kennslutæki verið fundin upp. En margt er þó enn á tilraunastigi í þessum efnum, enda er málanám flókið fyrir- bæri og erfitt að benda á eina leið, sem sé öllum öðrum betri og leysi þar með allan vanda í mála- kennslu. Orðbeygingar- og þýðingaraðferðir eru enn ríkjandi viða í skólum hér á landi, og nokkuð er gert að láta nemendur skrifa niður eftir upplestri (dictation) og einstök orð og ýmis atriði skýrð á hinni erlendu tungu. Með þessu æfist þrennt, að hlusta, lesa og skrifa, en víða fer lítið fyrir lifandi málsiðkun, enda óhægt um vik vegna stærðar bekkjarins, og kem ég dálítið að því síðar. Hver eru helztu vandamál tungumálakennara á hærri skólastigum? Þvi er að mínum dómi fljótsvarað, og nefni ég þá ólika kunnáttu nemenda í sama bekk, sem mér þykir langerfiðust viðfangs. Einnig þykir mér stærð bekkjarins, sem venjulega mun vera allt að 30 nemendur, að ýmsu leyti óhentug. Enska er sú tunga erlend, sem mest áherzla er lögð á í verzlunar- og menntaskólum, enda er hún það alheimsmál, sem er lykill að bókmenntum 14 19. JÚNl

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.