19. júní


19. júní - 19.06.1968, Blaðsíða 24

19. júní - 19.06.1968, Blaðsíða 24
hana samtimis, hermaðurinn og hún. Hann var með herdeild sinni á leið í stríðið, hún með for- eldrum sínum á leið til Islands. Og nú átti hún leik. Hún hafði ekki einu sinni tekið eftir því þegar hann færði peðið. Hún beygði sig yfir taflið, hnyklaði brýnnar. Kóngurinn var í hættu. Einbeitt á svip, í einu hnipri í sætinu reyndi hún lengi að finna honum leið til undan- komu. En hvarvetna voru hættur. Svo leit hún spyrjandi á mótherja sinn. Á honum voru engin svipbrigði að sjá þar til hann brosti framan í hana og sagði kankvíslega: Menn verða að hafa hugann við. Get ég þá ekkert gert? Ég er hræddur um ekki. Ekki nema .... og hann lagði hikandi hönd á peðið. Ég gef tafiið, sagði hún hraðmælt. Samstundis óttaðist hún að hreimurinn hefði verið ivið of há- tíðlegur, að hann mundi hlæja að henni, ógilda yfirlýsingu hennar og segja eins og hann hafði svo oft sagt þegar hann var að byrja að kenna henni: Þegar maður er að læra og er bara tíu ára þá má slaka svolítið til á reglunum .... En hann gerði það ekki. Hann skýrði ekki einu sinni fyrir henni hvar hún hefði leikið rangt. Hann kinkaði aðeins stuttlega kolli, sópaði taflmönnunum sam- an og raðaði upp til nýs leiks. Og full einheitni hófst hún handa við nýtt tafl á sama hátt og hún reyndi nú nýja glímu við hnútinn á köldum og myrkum Tjarnarbakkanum. Enn einu sinni teygði hún fram krókloppna og þrútna fingur. En nú gat hún ekki einu sinni hlekkt sjálfa sig. Þetta voru ekki fingur lengur, aðeins helfrosnir stirðnaðir gagnslausir limir; aldrei gætu þeir unnið þetta verk. Hermennimir voru hættir að ærslast. Allir sátu þeir nú á bakkanum önnum kafnir við að leysa af sér skautana. Bráðum hyrfu þeir líka út í myrkrið. Ef hún tæki sig til að gráta eins og drengurinn? Ef hún settist við hlið hans og þau orguðu bæði af öllum lífs og sálar kröftum, öskruðu upp í himininn? Hlytu þeir þá ekki að koma? Þá sæju þeir um leið hvað að væri og kæmu til hjálpar án þess hún þyrfti að segja orð. Hún reis stirðlega upp. Kuldinn frá ísnum hafði hertekið hnén og læstist nú um allan líkamann. Hún leit í kringum sig og slikju algers vonleysis dró á augun. Umhverfið horfðist ekki lengur i augu við hana; það hafði dregið sig í hlé inn i myrkrið eins og það hefði alla tíð grunað að fram- lag hennar til þessa striðs yrði bezt geymt í þögn- inni. Nei, hún færi ekki að gráta. Sæmdin bjó i þessu þögla íslenzka umhverfi og yrði ekki þidd með gráti. Svo vætti hún varirnar, varlega hreyfði hún tunguna milli gómanna líkt og hún óttað- ist að einnig hún væri frosin föst. Hún vöðlaði tungunni uppi í sér, örvaði hana til átaks. Og ylurinn frá volgu munnvatninu sem vætti góm- inn stre^undi um líkamann og dró örlítið úr sárs- auka þeirra svika sem hún var í þann veginn að fremja. Svo gekk hún þessi fáu skref til hermanns- ins sem næstur sat og á því máli sem þau höfðu barði talað handan hafsins bað hún hann leysa hnútinn. LANDSFUNDUR K. R. F. í. Landsfundur K.R.F.l. verður haldinn þ. 8.—11. júní n.k. Eins og kunnugt er, hafa öll kveníélög, sem kosið hafa kvenréttindanefndir og eru í lands- sambandinu, rétt til að senda einn fulltrúa á þenn- an fund. Þ. 12. júní hefst svo fundur norrænu kvenréttindafélaganna, og ætlunin er, að hann standi í þrjá daga á Þingvöllum. Eiga landsfund- arkonur kost á þvi að sitja þann fund, eftir því sem húsrúm leyfir. Verður þetta einstakt tækifæri til að kynnast samstarfsfélögum okkar frá hinum Norðurlöndunum. TIL ÚTSÖLUMANNA 19. JÚNÍ Eins og að undanförnu verður 19. júní, blað Kvenréttindafélags Islands, sent kvenfélögum og öðrum þeim, sem hafa haft útsölu blaðsins út um land. Sölulaun 15% dragast frá útsöluverðinu eins og meðfylgjandi reikningar sýna. Auk þess má draga frá sendingarkostnað þeirra peninga, sem inn koma og er æskilegt að þeir verði sendir í póst- ávisun og er þá nóg að taka póstkvittun, svo að ekki þurfi að senda sérstakar kvittanir til útsölu- manna. Ekki er nauðsynlegt að binda sölu blaðs- ins við 19. júní, þótt góður söludagur sé, það má geyma óseld blöð lil haustsins, þegar félagsstörf hefjast, en senda greiðslur sem fyrst fyrir það, sem selst og gera skil ekki seinna en í nóvember vegna ársreikninganna. Afgreiðsla 19. júní er nú á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, Reykjavík, skrifstofu K.R.F.f., og er hún opin þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga klukkan 16—18. Simi: 18156. 22 19. JÚNÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.