19. júní


19. júní - 19.06.1968, Síða 17

19. júní - 19.06.1968, Síða 17
flestra þjóða og óumdeilanlega mest notuð í verzl- un og viðskiptum. Flestir nemendur, sem hefja nám í Verzlunar- skóla íslands, hafa lokið unglingaprófi, og hafa þá yfirleitt, eins og nú er málum háttað, lært ensku í að minnsta kosti eitt ár. Ýmsir hafa notið tal- kennslu í málinu í málaskólunum eða jafnvel í einstökum barnaskólum, og bera slikir nemendur jafnan mjög af. örfáir koma úr 1. bekk unglinga- deildar og hafa þá ef til vill enga ensku lært. (Ekk- ert inntökupróf er í ensku, en hins vegar ætlazt til eins árs náms í málinu.) Enn meir kveður þó að þessum mismun nem- enda innan hvers bekkjar, er komið er á 4.—5. ár í enskunámi, þ. e. í 3.—4. bekk, og er þó nemend- um raðað ár hvert í hekki eftir einkunn (þ. e. aðal- einkunn). Sumir nemendur hafa þá enn ekki til- einkað sér mikilvæg undirstöðuatriði málsins, en eiga svo að bæta við sig ýmsum erfiðum atriðum, sem verða þeim þá algerlega um megn. Þetta rask- ar heilbrigðu sjálfstrausti nemandans, og hann fyllist óhug og vanmetakennd. Kennara í stórum hekk leyfist aðeins lítið frávik í kennslunni til þess að sinna þessum nemendum, og þetta verður því alvarlegra, þeim mun lengur sem liður, og meiú lialiar undan fæti. Dapurlegt er einnig að sjá leið- ann í svip þeirra ágætu nemenda, sem þegar hafa náð góðum tökum á þeim mikilvægu atriðum, sem kennarinn neyðist til að skýra æ ofan í æ fyrir þeim, sem helzt hafa út lestinni. Engum kennara, sem skipuleggur tungumála- námskeið eða aðstoðar nemendur við málanám (eða nokkurt nám) dettur í hug að skipa saman í flokk fólki með svo ólika undirstöðuþekkingu og oft er raunin á um nemendur í sama bekk. Eng- um nemanda er heldur greiði gerður með slíku. „Kennsla og nám hafa minnst mótazt af skipu- lagshæfni nútímans“, segir dr. Matthías Jónasson í bók sinni Mannleg greind, og eru orð að sönnu. Skipting námsefnis i hæfilega áfanga (annir) með stuttri upprifjun (eða viðaukakennslu) þess á milli fyrir þá, sem ekki náðu tökum á þeim grundvall- aratriðum, sem áherzla var lögð á í fyrri áfanga (önn) ásamt með ákveðinni lágmarkskröfu um getu nemandans i viðkomandi námsgrein í lok hvers áfanga, er auðvitað það sem koma skal alls staðar. Þessi skipan mála er þegar komin á í nokkrum skólum og gefur góða raun. Aukin persónuleg handleiðsla og einstaklingsbundnar leiðbeiningar við nemendur myndu vera til mikilla bóta og vafa- laust koma í veg fyrir að þeir, sem af einhverjum orsökum verða aftur úr í náminnu, komist í alvar- legan vanda. Til þess þyrfti kennarinn að hafa sér- staka viðtalstíma og ennfremur að vera aðstaða til lestrar í skólunum undir handleiðslu kennara. En húsrýmis-, tækja- og bókaskortur er einnig geig- vænlegur í mörgum skólum, svo að sums staðar eru ekki til nauðsynlegustu handbækur, og mega kennarar burðast með sina eigin doðranta i skól- ann, ef þeir ætla eitthvað að vinna þar. Annars er brýn nauðsyn að samræma kennsluaðferðir í unglingadeildum gagnfræðaskóla, landsprófi og verzlunar- og menntaskólum, því að nú er það stundum svo, að nemandi, sem vanizt hefur ein- göngu orðbeygingar- og þýðingaraðferð til lands- prófs, kemur í menntaskóla, þar sem kennslan fer öll fram á ensku, og allt er skýrt á því máli. Eru bekkjardeildir ekki of stórar til þess a'S hægt sé at) koma vv5 œfingum í talleikni? Jú. Ég nefndi í upphafi stærð bekkjarins, sem algengast mun vera allt að 30 nemendur. Lifandi málsiðkun er of lítið sinnt í skólum hér, og stærð bekkjarins gerir kennaranum einmitt örðugt um vik í því efni. Til þess að æfa nemendur í léttum samræðum, þurfa bekkjardeildir að vera minni (6—10 nemendur) í sumum kennslustundum, en mættu svo vera stærri (50—60), er lexíur eru skýrðar eða fyrirlestrar fluttir um málið og ýmsa þætti þess og þá með aðstoð ýmissa liljóð- og sjón- miðla. Finnast y Sur nemendur vera virkir í námi sínu? Það er auðvitað nokkuð misjafnt, en yfirleitt eru nemendur ekki duglegir að tjá sig munnlega. Ber þar tvennt til — of lítil lifandi málsiðkun í kennslunni og viðkvæmt aldursstig (14—17 ára). Það er því mikið nauðsynjamál að hefja munnlega kennslu (Oral method) þegar í seinustu bekkjum barnaskólanna (10—11 — 12 ára), enda mun það samróma álit kennara og nemenda, að þau árin séu verkefni nemenda of lítil, en áhugi og næmi þeirra til málanáms með ágætum á þeim aldri. Ég hóf sjálf enskunám með þessum hætti 11 ára gömul í Austurbæjarbarnaskólanum undir hand- leiðslu önnu Bjarnadóttur frá Sauðafelli fyrir hart- nær 40 árum. Lærðum við hjá henni ýmsar barna- vísur (nursery rhymes) og lékum smá-leikþætti, og man ég, að þar fengu hlutverk færri en vildu! Svo mikinn áhuga hafði ég á drengjahlutverki í Framh. á bls. 18. 19. JÚNl 15

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.