19. júní


19. júní - 19.06.1972, Page 16

19. júní - 19.06.1972, Page 16
talsmenn fyrir. Þetta einkenni- lega rangsnúna mat: að kvenleg- ir eðliseiginleikar séu „annars flokks“, ber keim af einhverjum leiðinda minnimáttar ,,komplex“ og úrillsku, sem ég held, að hljóti að verka heldur neikvætt í bar- áttunni fyrir bættri aðstöðu kvenna í okkar þjóðfélagi. Með þessa forsendu i huga, að nokkur eðlislægur munur sé á karli og konu, ekki aðeins lík- amlegur, heldur einnig að því er tekur til sálarlífsins, held ég þó að það væri báðum kynjunum jafnt í hag, að uppeldi barna, — drengja og telpna, stefndi að því að jafna þann mismun, fremur en að ýta undir hann. — En um- fram allt að hver einstaklingur fái að vera það sem hann er, — fái að njóta sinna hæfileika og nýta þá í þágu eigin lífsham- ingju og samfélagi sínu til gagns. Jákvæð lífsviðhoi’f sem uppeldis- legt veganesti, bjartsýni og kjarkur til að takast á við lífið og vandamál þess, munu, að ég hygg, duga þar hvað bezt. Sigurlaug Bjamadóttir. líffræðilegu hlutverki verður ekki breytt með uppeldi Spurningu nefndarinnar verð- ur að skilja, hvort æskilegt sé að draga úr þeim mun, sem talinn er hafa verið á uppeldi telpna og drengja? Til þess að geta svarað þessari spurningu þyrftu að liggja fyrir upplýsingar um, hvort munurinn sé, eða hafi ver- ið meiri, en eðlilegt er vegna hinna líffræðilegu kynhlutverka, auk menningararfs og félagsað- stæðna á hverjum tíma. Það þarf ekki aðeins, að spyrja um, hvort munurinn hafi verið meiri eða minni, einnig þarf að spyrja, hvort hann hafi verið réttur, æskilegur eða jafnvel nægjanleg- ur? Hvers vegna og hvernig er munur á uppeldi telpna og drengja til orðinn og hvaða til- gangi þjónar hann? Hvert er markmið uppeldisins? Ýmsar fleiri spurningar mætti setja fram, sem skipta verulegu máli í sambandi við spurninguna um, hvort æskileg sé breyting á þeim mun, sem talinn er hafa verið á uppeldi telpna og drengja, svo sem hverjir eigi að ala börnin upp? Hvaða uppeldisaðferðir mega sín mest? Hvernig eru upp- alendurnir? Hver er lífsskoðun þeirra? Hver mótaði þá. Hver eru gagnkvæm áhrif barna og uppalenda hvort á annað. Þannig mætti lengi spyrja. Meðan öllum þessum spurn- ingum er ósvarað, er erfitt að gefa einhlitt svar, hvort æskilegt sé, að breyting verði á því, að telpur og drengir séu alin upp sitt með hverju móti. Reyna má að nálgast svar við þessari spum- ingu með því að hugleiða nánar sumar af þeim viðbótaspurning- um, sem settar voru fram hér að ofan. Matthías Jónasson hefur skilgreint markmið uppeldisins sem samfélagshollan einstakl- ingsþroska í anda vaxandi menn- ingar. Markmiðið ætti þvi að vera, að stuðla að auknum þroska einstaklingsins og aðlög- unarhæfni hans í síbreytilegu samfélagi. Ef þetta markmið á að nást, verður að taka tillit til eðlis (upplags) einstaklingsins, þar á meðal svo augljóss og mik- ilvægs þáttar sem kynferðis. Markmið uppeldisins er að móta eðlið, en ekki að stríða gegn því. Vegna hins langa meðgöngutíma mannsins og þess langa tíma, sem líður frá fæðingu og þar til maðurinn er sjálfbjarga, er móð- urhlutverkið manninum mikil- vægara, en allt annað, þó að margt fleira sé nauðsynlegt. Nú- tímaþjóðfélag og tækniþróun hafa gerbreytt aðstöðunni á ýms- an hátt. Þó ekki svo, að hægt sé að fá nokkurn fullgildan stað- gengil i móðurhlutverkið. Það eru forréttindi kvenna, að ala börn og skapa fyrstu tengsl við þau. Við þessu hlutverki geta karlar ekki tekið, þótt við reynd- um að gera uppeldi telpna og drengja eins, eða jafnvel að snúa því við, frá því, sem verið hefur. Slikt mundi leiða til ófyrirsjáan- legra geðflækja hjá komandi kynslóðum. Til þess að fyrir- byggja slíkt, verður tvímælalaust að undirbúa telpur og drengi undir kynhlutverk sitt með við- eigandi uppeldi, sem hlýtur að verða sitt með hvoru móti. Ef ætlan okkar er, að viðhalda and- 14 19. JÚNÍ

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.