Fréttablaðið - 22.12.2010, Page 48
22. DESEMBER 2010 MIÐVIKUDAGUR
Unnendur borðspila og leikja hafa ærna ástæðu til
að gleðjast því í síðasta mánuði opnaði Nexus sér-
hæfða spilabúð. „Eftirspurnin var orðin svo mikil
að við skiptum versluninni í tvennt og jukum pláss-
ið fyrir spilin umtalsvert,“ segir Gísli Einarsson hjá
Nexus. „Við getum nú gert betur fyrir borðspilin, sem
taka mikið pláss, og öll hin sérhæfðu spilin okkar,
hlutverkaspilin, safnkortaspilin og tindátaleikina, en
hvert um sig jafnast á við heilt áhugamál.“
Nýja húsnæðið er við hlið aðalverslunarinnar að
Hverfisgötu 103, þar sem (spilaaðstaða) Nexus var
áður til húsa. Þar er þó ekki aðeins að finna gott úrval
spila, heldur sérstakt spilahorn þar sem gestum og
gangandi gefst færi á að spreyta sig. „Svo erum við
með stórt Warhammer-borð í búðinni þar sem leikur-
inn er kenndur og málningaraðstöðu þar sem menn
geta fengið aðstoð við að mála módel, jafnvel einn
karl gefins.“
Gísli segir að á laugardögum sé síðan opið hús í
búðinni (og í sal Hugleikjafélags Reykjavíkur í sömu
byggingu) og sé það ávallt vel sótt. „Hingað kemur
fjöldi fólks á öllum aldri og fær aðstoð við að læra
að spila og mála módelin,“ segir hann og getur þess
að allir viðburðir á vegum Nexus séu auglýstir ræki-
lega á Facebook.
Spilakennsla og módelgerð
Viðskiptavinir fá kennslu í módelgerð og -málun í spilabúð
Nexus. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í Warhammer ljúkast upp dyr
að spennandi heimum þar
sem reynir bæði á ímyndunar-
afl og listræna hæfileika
leikmanna.
„Þetta eru algjörlega ímyndaðir
heimar sem eiga sér enga stoð í
raunveruleikanum, eins og sést
best af sjálfum íbúunum, álfum,
dvergum, drekum og öðrum furðu-
verum,“ segir Gísli Einarsson, eig-
andi og verslunarstjóri Nexus, um
undraheima Warhammer-leikj-
anna.
Warhammer er yfir þrjátíu
ára gamalt tindátaspil frá breska
leikjaframleiðandanum Games
Workshop. Leikurinn er ætlaður
tveimur eða fleiri leikmönnum og
skipt upp í tvö lið andstæðra fylk-
inga sem samanstanda af ýmiss
konar fígúrum, svo sem tindát-
um og stórum vígvélum, sem stillt
er upp á borði. Leikurinn er síðan
spilaður samkvæmt ákveðnum
reglum þar til önnur fylkingin
hefur sigrað hina. Leiktími ræðst
af herkænsku hvers og eins og fer
líka eftir stærð herfylkinga, sem
verða að vera jafn stórar til að
byrja með.
Gísli segir að fyrir mörgum sé
aðdráttarafl Warhammer þó ekki
síður fólgið í módelsmíðinni sem
fylgir. „Allar fígúrur, það er að
segja tindátar, tæki og tól, eru úr
plasti og þarf að setja saman og
mála,“ lýsir hann og getur þess að
því geti reynt á listræna hæfileika
leikmanna, þótt ungur aldur ætti
ekki að vera einhver fyrirstæða.
„Þvert á móti ættu allt niður í átta
ára börn að ráða við þetta og yfir-
leitt finnst foreldrum gott að vita
til þess að þau séu að dunda sér við
módelsmíðar í stað þess að hanga í
tölvunni. Hægt er að fá handhæga
pakka með tindátum, málningu og
pensli til að komast að því hvort
módel-dund henti yngsta fólkinu.“
Leikborðin smíðar síðan fólk
yfirleitt sjálft frá grunni að hans
sögn. „Þá er bara um að gera að
gefa ímyndunaraflinu lausan
tauminn en ég veit til þess að
menn hafi notað Legókubba og
pappa umbúðir til að búa til sviðs-
myndina, gömul virki, skóga og
þess háttar.“
Warhammer-línan leggur undir
sig stóran hluta í nýrri spilaverslun
Nexus. Tvenns konar útgáfur af
leiknum fást, Warhammer Fantasy
og Warhammer 40.000. „Fyrri út-
gáfan rær á svipuð mið og Hringa-
dróttinssaga J.R.R. Tolkiens á
meðan hin gerist 400 öldum seinna
og svipar til Star Wars, nema hvað
eyðileggingin er allsráðandi og
heimsmyndin talsvert dekkri,“
útskýrir Gísli og getur þess að
heimsmynd leikjanna þenjist sí-
fellt út þar sem nýjungar bætist
stöðugt við leikina. „Þær fást
vitan lega hjá okkur,“ segir Gísli
og brosir að lokum.
Tindátar vígvæðast
Gísli gnæfir yfir undraveröld Warhammer. Hann getur þess að í spilabúð Nexus sé margt fleira spennandi á borðstólum og tekur
sem dæmi Flames of War sem er nýtt spil sem byggir á síðari heimsstyrjöldinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
á e
- r