Sameiningin - 01.06.1906, Síða 2
Þótt þig hnýti einhver í,
ei er vert að svara því.
Lít á dœmið lausnarans,
lær af þögn og tali hans
braut að kenna kærleikans.
---------o---------
f heiðingja-missíónarsjóð hafa féhirði kirkjufélagsins ver-
ið sendar þessar gjafir: frá Argyle-söfnuðum $15.40 (sbr.
Maíblaðið, bls. 87), frá Pembina-söfnuði $2.60, frá bandalagi
Pembina-safnaðar $4.50 og frá sunnudagsskóla sama safnaðar
S2.00, frá Garðar-söfn. $12.47 °S frá sd.skóla þess safn. $3.00,
frá Þingvallasöfn. $7.25, frá Fjallasöfn. $8.35.
Séra Pétr Hjálmsson hefir sent mér $16.15 til missíónar-
hússins fvrirhugaða í Reykjavík, þar af frá Konkordía-söfnuði
$11.25, sem hr. J. J. Finnsson hefir safnað, og $4.90, sem þeir
hr. H. Árnason og hr. S. Johnson hafa safnað. Hjartanlega
þökk fyrir þennan velvilja til góðs málefnis. — Ritst. „Sam.“
Frá því um miðjan Maímánuð hefir séra Pétr Hjálmsson
unnið að missíónarstarfi fyrir kirkjufélagið hjá sumum hinna
prestlausu safnaða; fyrst í Þingvallanýlendu fram að trínitatis,
síðan í Vatnsdalsbyggð hjá Hólasöfnuði og ísafoldarsöfnuði.
Fleiri byggðir getr hann víst ekki heimsótt fyrir kirkjuþing.
All-mikill stuðningr er Konkordía-söfnuði víst að hr. Hirti
Leó, sem nú í sumarleyfi sínu frá Wesley College, heldr þar
uppi sunnudagsskóla ésamfara alþýðuskóla virku dagana) eins
og í fyrra.
Séra Rúnólfr Marteinsson fór missíónarferð fyrir kirkju-
félagið vestr til Foam Lake byggðar, Sask., i Maímánaðarlok
og dvelr þar væntanlega fram undir kirkjuþing.
Að upphafi hátíðarhaldanna í St. Peter, Minn., við lokþessa
skólaárs fóru fram missíónarguðsþjónustur sunnudaginn 20.
Maí. Séra Björn B. Jónsson prédikaði þar (á ensku) við það
tœkifœri og lagði út af Róm. 1, 16.
Nýprentuð eru í prentsmiðju blaðsins „Mascot“ í Minneota
Frccöi Lúters htn minni í sérstökum stífheftum bœklingi. Það
er sama þýðingin, sem staðið hefir í tveim síðustu barnalær-
•dómskverunum lútersku.er úthafa verið gefin á íslenzku (Helga
Hálfdanarsonar og Klaveness). Gott er, að Frœðin geta nú