Sameiningin - 01.06.1906, Page 4
103
með einlægum samkomuhöldum, sem vitanlega sum eru lítils
eSa einskis viröi í sjálfum sér. Með ]rví rnóti getr tekizt að ná í
nokkra dollara frá utankirkjumönnum, sem annars myndi alls
ekkert vilja leggja til kirkjulegra nauðsynja. En það er rangt
og verðr eði.ilega til þess að ritgla kristindómshugmyndinni hjá
almenningi. Kirkjan biðr allsstaðar, þar sem háttalag þetta
viðgengzt, af því margvíslegt andlegt tjón. Og þótt menn á
þennan hátt geti í bili nurlað saman talsverðu fé frá fólki, sem
engan áhuga hefir á kristindómsmá.Ium og jafnvel í raun og
veru er þeirn andstœtt, þá blessast sá gróði ekki. Og þegar tíl
lengdar lætr, mun það ávallt reynast svo, að bein fjártillög til
kirkjuiegra fyrirtœkja frá kristnum safnaðarlýð verða miklu
drýgri en það, sem frá því sama fólki hefst sarnan með sam-
komuhöldunum. Rétt og röng aðferð við að safna fé til kirkju-
legra þarfa var eitt þeirra mála, sem á fyrri árum voru á dag-
skrá kirkjuþinga vorra. Það mál þarf aftr að komast á
dagskrá hjá oss.
í fyrsta hefti „Skírnis“ fyrir þetta ár er rneðal annars rit-
gjörð eftir hr. Helga Pétrsson með fvrirsögninni „tír trúarsögu
Forn-íslendinga“. „Nýtt kirkjublað“ segir um það ritverk:
„Þráðrinn í greininni er sá, að kristnitakan hafi orðið feðrum
vorum til óhamingju, spillt drengskap þeirra og dáð, brjálað
skynsemi þeirra cg leitt til hrunsins mikla, er landið hné ör-
magna undir yfirdrottnan Norvegs-konungs.“ — „Óvildarhugr-
inn k;mr fram í fyrstu orðum greinarinnar.“
Áðr var andatrúnni veitt crðið í „Skírni“ hinum nýja. Og
nú eru ákveönu og opinberu kristindómshatri veitt þar sörnu
réttindi.
Á þan unimæli ,,ísafoldar“ bendir „Nýtt kirkjublað" og,
að kirkjan, Heimska drottning og dóttir hennar Ragmennska
standi nú á móti þe’rri „óviðráðanlegu sannfœring“, að æfintýri
úr dularheimum geti enginn hugsað upp nema H. C. Andersen
og engir fcert í snilldarbúninginn íslenzka aðrir en Jónas Hall-
grímsson og Snorri Sturluson. Og er urn leið á það minnt, að
„ísafo'd" hafi jafnan áðr talað ve.l og virðulega i garð kirkju og
kristindóms. — Svo bregðast krosstré sem önnur tré.
----------o----------
John Urquhart, hinn frægi skozki fvrirlesari, er nú einn
þeirra ágætismanna, sem samkvæmt samningum senda blaðinu
Philadclphia Sunday School Times ritgjörðir. Hann ritar þar
um ljós það, sem fallið hefir yfir ýmsa torskilda staði í gamla