Sameiningin - 01.06.1906, Side 21
U7
Iig hefi heyrt cg skilið, að }oað hefir verið þér mjög dýrmætt.
Viltu lofa mér að líta á það?‘‘ Læknirinn leit á hjartað og blóm-
in cg mælti sömu orðunum, sem bergmáluðu oftast í hjarta
unga mannsins líkt og rödd móður hans: „Af öllum gœðum
lífsins er hið sanna líf dýrkeyptast.“
„Ungi maðr!“—sagði hann,—,,eg hefi oft reynt að opna
fjársjóð hjarta þíns; eg hefi séð sporin, sem legið hafa á milli
lífs þíns cg dauða, en aklrei skiliS þau eins vel og nú. Þessi
stofnun þarf hjúkrunar viS. Hér eru frœkorn, sem þarf að
hlúa vel að, ef þau eiga að geta oröið að blómum, sem beri
landinu góðan ávöxt.“
„Eg veit þig skortir ekki viljann, og því býð eg þér nú að
takast á hendr umsjón þessara munaðar.lausu barna."
Því verðr ekki með oröum lýst, hvað hinn ungi maðr
geymdi í huga, þegar hann heyrði þetta boð.
Eitt var víst,—að hann hafði þegið stórt pund, og þvi
hugsaði hann sér nú að ávaxta það svo, að það yrði eklci sem
grafið i jörðu.
------o-------
í kirkju Selkirk-safnaðar voru af séra N. Steingr. Þor.láks-
syni fermd 24 ungmenni 4. sd. eftir páska cg næsta sd. þar á
eftir í kirkju Pembina-safnaðar 4 ungmenni. — Meðal þeirra,
er fermdust í Selkirk, var ein gift kona.
í Nýja íslands söfnuðunum hefir séra Rúnólfr Marteins-
son á þessu vori fermt alls 52 ungmenni, nefnil. á Girnli á
páskum 20, í Árnes-söfn. 4. sd. e. p. 2, í Árdal 5. sdi. e. p. 4 ogf
sama dag að Geysi 8, í Brceðrasöfn. (við ísl.fljót) 6. sd. e. p.
12 cg sarna dag í Breiðuvíkrsöfnuöi 6. Hin siSastnefnda
fenr.ing fór fram í hinni nýju kirkju þess safnaðar, og var þettæ
fyrsta opinbera guðsþjónustan í því húsi. Altarisgöngur sam-
fara fermingunni allsstaðar.
í kirkju Tjaldbúðarsafnaðar i Winnipeg voru 12 ungmenni
fermd af séra Friðrik J. Bergmann 3. sd. e. p.
1 Fyrrtu lút. kirkju í W.peg voru af séra J. Bj. á, hvíta-
sunnudag fermd 34 ungmenni (17 stúlkur og 17 piltarý.
Altarisgöngur í öl'.um þessum söfnuðum í sambandi við
fermingarnar með fjölmennasta móti.
o