Sameiningin - 01.06.1906, Page 30
I2Ó
börnin, sem skrifuöu mér. Aö þau hafi gefið sjálfum sér svar
upp á þær, e5a foreldrunum sínum. En munið þið ]pá, hver
svörin ykkar voru?
Ekkert af svörunum, sem mér voru send, voru rétt svör
upp á spurningarnar. Sum komu nær því rétta en sum. En
öll báru þau vott um sann-kristilega hugsun. Þess vegna jþótti
mér vænt um þau öll. Og þau sýndu mér líka kristindóm í
hjörtum barna og foreldra. Guð blessi öll kristnu foreldrin hjá
okkur, sem gróðursetja kristindóminn í hjörtum barnanna sinna
og hugsa vel um að hlúa að honum! —
Börnin hafa aðallega hugsað um fjársjóðinn á himnum,
sæluna þar fyrir Jesúm Krist, verðlaun trúrra lærisveína hans..
Guð blessi ykkur þá hugsun, börnin min! Hann láti hana ætíS
vera stærstu hugsunina ykkar. Og hann gefi ykkur kraft í Jesu
nafni til þess að vinna sigur á „öllu J)ví, sem vill verða betrun
ykkar til fyrirstöðu“, eins og eitt ykkar komst að orði — vinna
sigur á öllum „syndunum, vondu girndunum og freistingunum“,
sem þið kölluðuð „steina“ og í sannleika eru steinar. Glímið
karlmannlega í Jesú nafni við alt ilt bæði hjá ykkur sjálfum og
öðrum. Þið eignist þá dýrðleg sigur.laun.
Eg er þegar búinn að gefa bending um réttu svörin. Eg
gerði það áðan, þegar eg mintist á framtaksleysið og letimu
En nú skal eg gera það betur. Takið þið þá eftir. „Steinarn-
ir“, sem átt var við með spurningunni: „Hverjir eru svo stein-
arnir?“—er ait paö, sem guð vill að þið eigið við, glímið við,
stritið við, berjist við og sigrist á í lífinu, hvort heldur það er
eitthvað í fari ykkar sjá.lfra, eitthvað ljótt, sem þið þurfið að
sigra, eða það er eitthvað þungt í lífinu, sem þið þurfið að þola,
eða það er eitthvert verk, sem þið eigið að vinna og reynir á
krafta ykkar.
„Fjársjóðtirinn andir liverjum steini“, sem átt er við, er
blessunin öll, sem stríðið og stritið við „steinana" hefur í för
með sér, og sjálísafneitunin því samfara og sigurvinningin.
Alt gagnið, andlega og líkamlega, — aukinn vilji og aukinn
þróttur og aukin ánægja — alt, sem leiðir af því, að við leggj-
um á okkur guðs vegna.
Gleymið nú ekki, börn mín, að ná í þennan „tjársjóð“, sem
falinn er undir hverjum ,,steini“. Og látið hvorki leti, kæru-
leysi né mannleysi stela frá ykkur „fjársjóðnum".
-o-