Sameiningin - 01.04.1960, Qupperneq 6
4
Sameiningin
liggur eftir hann mikill fjöldi blaða- og tímaritsgreina um
ýmis efni. Hann var ritstjóri Sameiningarinnar í mörg ár.
í því hefti blaðsins, sem nú er í prentun, birtist páska-
hugleiðing eftir hann, en honum auðnaðist ekki að sjá hana.
„Dauðinn er uppsvelgdur í sigur,“ er síðasta orð hans til
lesenda blaðsins. Er vart hægt að hugsa sér fegurri kveðju-
orð né tilhlýðilegri, eins og komið er. Vér, sem áttum sam-
leið með honum, í söfnuði hans og í kirkjufélaginu, þökkum
störf hans og munum á meðan vér erum ofar moldu minn-
ast hans sem vors elskaða bróður, sem var trúr aðstoðar-
maður og samverkamaður í þjónustu Drottins. (Kol. 4:7).
Vér þökkum Guði þá gæfu, sem hann naut í starfi sínu
og einkalífi. Sjálfur taldi hann sig gæfumann og var þakk-
látur Guði og mönnum. Tvímælalaust taldi hann það mestu
tímanlega gæfu sína, er hann gekk að eiga eftirlifandi konu
sína, Ingibjörgu Jóhönnu Pétursson, en þau áttu farsæla
samleið um rúmlega 38 ára skeið. Eins og öllum á þessum
slóðum er kunnugt, er hún hin mikilhæfasta kona og hefir
reynzt manni sínum samhent í öllu starfi hans. Til hennar
sótti hann styrk, leiðbeiningu og uppörvun. Skömmu áður
en hann hvarf út í óminnislöndin vottaði hann henni hjart-
næmar þakkir fyrir ástúð hennar og umönnun alla. Fyrri
konu sína, Halldóru Ingibjörgu Hailson, sem hann kvæntist
1907, missti hann unga frá þremur ungum dætrum. Ein
þeirra, Evangeline Vigdís, hin efnilegasta stúlka, lézt er
hún var aðeins 19 ára. Hinar dæturnar eru Freyja Eleanor,
Mrs. E. C. Thomas, búsett í Pretoria, Afríku, og Josephine
Sigríður, Mrs. P. L. Simonsen, sem á heima í Winnipeg.
Tveir synir af síðara hjónabandinu, þeir Karl Jóhann og
Jón Ólafur, eru hér staddir í dag.
Vér þökkum Guði þá fullvissu, að dauðinn er upp-
svelgdur í sigur. Um það bil er dagur rann síðastl. þriðju-
dag (21. marz) losnaði sál hans úr böndum líkamans. Sál
hans flaug inn í dagsljósið. Þetta er táknrænt um ævi
hans og störf. Hann lifði til þess að leiða menn inn í ljósið.
Nú er hann sjálfur á undan oss genginn inn í ljós páska-
sólarinnar og eilifa lífsins. Guði séu þakkir, sem gefur oss
sigurinn fyrir Drottinn vorn Jesúm Krist.