Sameiningin - 01.04.1960, Qupperneq 9
Sameiningin
7
að hér, voru hennar börn líka og fyrst og fremst. Það fyrsta,.
sem þau lærðu að fara með á móðurmáli, var signingin í
nafni Guðs, föður og sonar og heiíags anda, barnabænin,
Vertu, Guð faðir, faðir minn . . ., og drottinlega bænin,
Faðir vor. Móðirin, kirkjan, gaf þeim Guð að föður, Jesúm
Krist að frelsara, orðið að leiðarljósi, bænina í Jesú nafni
að veganesti. Og þessar lífsæðar hins guðlega líkama, kirkj-
unnar, fylgdu yður yfir hafið, og sjálfur andi hins upp-
risna, sem er lífið í lífi kirkjunnar, kallaði með gjöfum
sínum, upplýsti og skapaði ný form fyrir helgandi áhrif
sín í hinu nýja landi. Þess vegna urðu til söfnuðir hér,
kirkja, móðirin fylgdi börnum sínum, því að hún er hafin
yfir öll landamæri. Og allur sá þjóðlegi arfur, sem þér
höfðuð meðferðis frá íslandi, allt það úr íslenzkri fortíð,
sem meðvitað býr með yður, hlýtur að dvína smátt og:
smátt, að móðurtungunni sjálfri meðtalinni, — hin íslenzka
kveðja, sem yður er flutt á þessu 75 ára afmæli, er flutt
samkvæmt yðar eðlilegu ósk á enskri tungu, — en þessi
arfur fer ekki forgörðum.
„Þitt orð er, Guð, vort erfðafé, þann arf vér beztan
fengum,“ svo sungu feður yðar í kirkju íslands, og svo er
sungið enn í þeirri kirkju, það er hin lifandi arfleifð, líf-
æðin, sem vekur og nærir trú, lífið í Guði, og skapar þar
með kirkju. Hin heilaga arfleifð er ekki háð þeim lögum,
sem þessi heimur tíma og rúms nýtur. Hún er byggð á-
trúfesti Guðs í Jesú Kristi. En sú trúfesti skírskotar til
vor um trúnað.
Trúr er Guð. Verið því fastir, óbifanlegir, síauðugir í
verki Drottins, vitandi að erfiði yðar er ekki árangurslaust
í Drottni. (I. Kor. 15:28).
Það er mér til mikillar gleði, að tengslin við lúterska
trúbræður íslenzks þjóðernis í Ameríku hafa styrkzt á
undanförnum árum. Ungir prestar að heiman hafa tekið
þjónustu í söfnuðum hér og ágætir fulltrúar héðan hafæ
dvalizt og starfað í kirkju íslands. Fyrrverandi forseti
Kirkjufélags yðar, Dr. Valdimar Eylands, hefir starfað sem
prestur á Islandi um tíma við slíkan orðstír, sem engum
hér mun koma á óvart, núverandi forseti, séra Eric Sigmar,.