Sameiningin - 01.04.1960, Blaðsíða 22
20
Sameiningin
stóð ekki upp og fylgdi honum ekki, heldur lifði hann lífi
sínu kengbeygður inn í sjálfan sig — incurvatus in se, eins
og Lúther segir.
„Vilji einhver fylgja mér, þá afneiti hann sjálfum sér
og taki upp kross sinn og fylgi mér.“ Þegar menn heyra
köllunina í þessu formi, þá hika margir, sem ef til vill eru
hrifnir af Drottni vorum, meðan hann heldur sér í hæfi-
legri fjarlægð. En lærisveinar hans verðum vér ekki, meðan
fjarlægðin er fyrir hendi; án krossins er Drottinn vor ekki
hugsanlegur, og án krossins erum vér heldur ekki hugsan-
legir sem lærisveinar hans. En kross vor, þinn kross og
minn kross, táknar þá baráttu, sem vér verðum að heyja,
bæði í oss og umhverfis oss, hvar sem vér lifum, hvað sem
vér störfum, undir öllum kringumstæðum. Krossinn táknar
baráttu trúarinnar: Að læra skilyrðislaust af Jesú Kristi
bæði að trúa og treysta. Krossinn táknar einnig baráttu
lífsins: Að lifa sem ljóssins barn í heimi, sem elskar myrkrið,
en hatar ljósið og kemur ekki til ljóssins, til þess að verk
hans verði ekki opinber, til slíkrar baráttu kallar Drottinn
oss, þegar hann segir: Fylg þú mér!
Undir þessu merki skalt þú sigra!
Undir þessu merki skalt þú blessun hljóta og verða til
blessunar í öllu þínu lífi. Fylg þú mér! segir Drottinn.
Berstu trúarinnar góðu baráttu og lifðu sem ljóssins barn.
(Kristilegt Stúdentablað, 1959)