Sameiningin - 01.04.1960, Qupperneq 25
Sameiningin
23
ast boðum hans, og er bæði heilagur og réttlátur. Telja
Gyðingar Abraham þannig ekki aðeins hinn fyrsta fsraelíta,
heldur einnig hinn fyrsta eingyðistrúarmann. Við Abraham
var mikill sáttmáli gerður og honum gefið hið eilífa og
óumbreytanlega fyrirheit, er hann hafði flutzt til Palestínu:
„Ég mun gefa þér og niðjum þínum það land, sem þú nú
býrð í sem útlendingur, allt Kanaansland til ævilangrar
eignar“ (I. Mós. 17:8). Út frá þessari frásögn er runnin aðal-
uppistaðan í sögu Gyðinga fram á þennan dag: einn Guð,
eitt land, ein þjóð. Gyðingar telja, að þessi ummæli taki
af allan vafa um það, hverjir séu réttmætir eigendur
Palestínu, Abraham og niðjar hans, — þeir sjálfir.
Arabar viðurkenna einnig frásögnina um ættföðurinn
Abraham og hafa reist voldugt musteri á þeim stað, þar
sem þeir telja bein hans hvíla, í Hebron. Þeir viðurkenna
einnig fyrirheitin um að Palestína skuli vera eign niðja
hans um allar aldir. En þeir benda á, að ísak var ekki frum-
getinn sonur Abrahams, heldur Ismael, sem hann gat með
ambáttinni Hagar, með góðu samkomulagi við Söru konu
sína. Hinn frumgetni sonur hlaut að vera réttmætur erfingi
þjóðföðurins, en þeir rekja ættir sínar einmitt til Ismaels.
Enn fremur benda þeir á þá staðreynd, að þegar umskurnar-
sáttmálinn var gerður við Abraham, þá var það Ismael, sem
var umskorinn. Hann var þá fimmtán ára gamall, en ísak
ófæddur. Eldri bróðurinn og niðjar hans eru því réttmætir
eigendur og íbúar Palestínu um allar aldir.
Um Ismael er sagt, að hann muni verða ólmur sem
villiasni; hönd hans muni verða á móti hverjum manni, og
hvers manns hönd uppi á móti honum (I .Mós. 16-12).
Þessi spásögn virðist hafa rætzt að því leyti, að afkom-
endur Ismaels, Arabar, hafa löngum verið íbúar eyðimerk-
urínnar og eins konar olnbogabörn í fjölskyldu Abrahams
fram á þennan dag. Margir þeirra eru heimilislausir hirð-
ingjar, sem reika stað úr stað með hjörðum sínum og búa
í tjöldum úr úlfaldahári. Arabiskir hirðingjar eru mjög
frumstæðir í lifnaðarháttum sínum. Eyðimörkin er konungs-
ríki þeirra, úlfaldinn og hesturinn eru herskipið og eim-