Sameiningin - 01.03.1929, Qupperneq 26
88
Jesús frá Mazaret, kom þú til mín
—Lag: í fornöld á jörðu, o. fl. lög,—
Heilagi GuÖs sonur hjálipaÖu mér,
Helgaðu líf mitt, aS fylgi eg þér!
Syndugum mönnum fyr samneyttir þú,
Syndfallna ibarnið þitt aumkvaðu nú.
Lítil er trú mín og líf mitt er veikt,
Ljós þinna1 orða of sjaldan hef kveikt.
Skugginn af synd minni skygði á þig,
Skírðu, með eldvígslu heilagra, mig.
Gefðu, ó drottinn, mitt hjarta sé hreint,
hugarfar, líf mitt sem öðrum er leynt.
Eg hefi numið og játað orð þín,
Jesús frá Nazaret, kom þú til mín!
Dvel hjá mér, herra, nú dagurinn þver,
Drottinn, þú skilur hve vansæll eg er.
Sál mína þyrstir í samfélag þitt,
Signdu með Guðs friði æfikveld mitt.
Jónrn A. Sigurðsson.
Sálmalögin í safnaðarsöng
Eftir F. Melius Christiansen.
Sannir fræðarar forðast útbreiðsluglamur, vegna þess það oft
skyggir á sannleikann. Ef maður hefir tekið slíku ástfóstri við eitt-
hvað eða orðið svo hrifinn af vissum hugmyndum að maður leggur
áherzlu á þær um of á kostnað anlnara góðra hugmynda, þá tapast
alt jafnvægi í því að gera efninu skil. Hivað snertir lúterskan messu-
söng ("Lutheran Choral), þá eru þeir tijl, sem álíta að vér ættum að
leggja hann niður og taka upp auðveldari messusöng. Þeir vilja
að söngurinn í kirkjutnum sé meira fjörgandi.
Þess verður að minnast að trúarlífið nær út yfir allar mann-
legar tilfinningar. Það innilbindur alt tilfinningalíf biblíunnar. Að
vísu eru þar bæði þunglyndisjegir og léttir tilfinningastraumar, bæði
daprar og gleðiríkar hugmyndir, og í sálmaíbókum vorum þurfa því
að vera bæði ljóð og lög, sem gera skil þessum ólíku tilfinningum,
geðshræringum og hugmyndum. Lúterskur messusöngur á hin kraft-
mestu og mest hrífandi lög, sem njóta sin ibezt í fjölmenni í stórum
kirkjum, þar sem allir syngja einróma, en undirspil á kraftmikið