Fréttablaðið - 03.03.2011, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 3. mars 2011
EKKERT
VENJULEGT
SJÓNVARP
Hringdu núna og tryggðu þér áskrift
í síma 595 6000, eða smelltu þér á skjareinn.is
AÐEINS
Á MÁNUÐI
2.890 KR.
SKJÁREINN
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
5
0
13
GAME TÍVÍ
SP
JA
LL
IÐ
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
45
42
3
frá 69.900
15. eða 16. mars
Stökktu til
Kanarí
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 15. mars í 8 nætur eða 16. mars í 7
nætur á frábæru tilboði. Þú bókar flugsæti og fjórum dögum fyrir brottför færðu að vita hvar
þú gistir. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað á ótrúlegum kjörum.
Verð kr. 69.900
Netverð á mann, flugsæti til Kanaríeyja.
Frá kr. 89.900
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / studíó / íbúð í viku.
Frá kr. 129.900 með allt innifalið
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / studíó / íbúð í
viku með allt innifalið.
Bíó ★★
The Mechanic
Leikstjóri: Simon West
Aðalhlutverk: Jason Statham, Ben Foster, Donald Sutherland, Tony
Goldwyn.
Bragðlaus kokkteill hjá Statham
Jason Statham er mistækur. Hann er
aldrei betri en myndirnar sem hann
leikur í, ólíkt leikurum sem tekst að
vera skemmtilegir í jafnvel hund-
ómerkilegum myndum. Harðhausinn
Arnold Schwarzenegger er gott dæmi
um slíkan leikara. Það er ekki vegna
þess að hann er svo frábær leikari,
heldur vegna þess að hann hefur
sterka og skemmtilega nærveru sem
er algjörlega óháð gæðum myndanna.
Þrátt fyrir þetta skulum við ekki minn-
ast einu orði á Batman & Robin.
The Mechanic er rólegri en margar
myndir Stathams. Galsi mynda á borð
við The Transporter og Crank er fjarri
góðu gamni en þess í stað er reynt
að skapa hæga og stígandi spennu.
Titilpersónan er leigumorðingi sem
er svikinn af samsteypunni sem hann
vinnur fyrir. Einfalt plott, hefur verið notað þúsund sinnum áður, og virkar
stundum og stundum ekki.
Það eru nokkrar ástæður fyrir því að það virkar ekki í þetta skiptið. Jason
Statham þarf öflugra handrit og fyndnari línur til að vera ekki leiðinlegur.
Léttur húmor liggur vel fyrir honum, en þegar húmorinn vantar er hann eins
og stirðbusalegur launsonur Bills Pullman og Davids Duchovny. „Leigumorð-
ingi í hefndarhug“-plottið er vissulega klassískt en til að gera það skemmti-
legt þurfa að vera á því ófyrirsjáanlegir vinklar. Þeir eru ekki til staðar hér og
áhorfandinn er ávallt tíu mínútum á undan myndinni. Illmennið er litlaust
og ósannfærandi. Áhorfandinn þarf að fyrirlíta illmennið jafn mikið og það
elskar hetjuna. Þessar sterku tilfinningar er hvergi að finna í The Mechanic.
Hasarmyndir geta verið svo skemmtilegar. Hafi maður fjárráð og hæfi-
leika eru manni engin takmörk sett og því er undarlegt að eyða púðri í jafn
bragðlausan kokkteil og þessa mynd. Simon West (leikstjóri myndarinnar)
gerði til dæmis hina fáránlegu en stórskemmtilegu Con Air. Hann á að geta
miklu betur en The Mechanic.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Hasarmyndir nútímans eru flestar í stjórnlausum og þreytandi
rallígír. The Mechanic er gamall karl á Volvo með stóðið á eftir sér.
HASAR Statham og Foster á hlaupum.