Fréttablaðið - 17.03.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 17.03.2011, Blaðsíða 8
17. mars 2011 FIMMTUDAGUR8 Þó að laun forsetans hafi lækkað í ársbyrjun 2009 hafa laun handhafa for- setavalds haldist óbreytt fram að þessu. Sjaldgæft er að handhafarnir þurfi að sinna því starfi en þeir deila þó með sér forseta- launum í fjarveru forseta. Þingmenn hafa tvívegis á nokkrum árum reynt að breyta þessu en ekki haft erindi sem erfiði. Í stjórnarskrá Íslands er kveðið á um að forfallist forsetinn sökum veikinda eða „vegna dvalar erlendis“ skuli þrír einstaklingar fara með forsetavald þar til for- setinn er kominn til starfa á ný. Handhafar forsetavalds eru forsætisráðherra, forseti Alþing- is og forseti Hæstaréttar. Í stjórn- arskránni segir einnig að ákveða skuli með lögum greiðslur til for- seta og þeirra sem fari með for- setavald þegar hann forfallist. Vegna þessa skipta þremenn- ingarnir með sér jafngildi launa forsetans í hvert skipti sem hann fer af landi brott. Eins og Frétta- blaðið hefur fjallað ítarlega um undanfarið eru ferðadagarnir ófáir og laun handhafanna því veruleg. Fengu 1,6 milljónir í fyrra Á síðasta ári fengu forsætisráð- herra, forseti Alþingis og for- seti Hæstaréttar um 1,6 milljón- ir króna hver í launauppbót sem handhafar forsetavalds. Fyrir hvern dag sem forsetinn dvelur erlendis hafa þremenningarnir fengið 20 þúsund krónur. Þó að handhafarnir fari með forsetavald þegar forsetinn er ekki á landinu er ekki hægt að segja að sá starfi auki mikið álag- ið á þessa önnum köfnu embættis- menn. Þeir sinna ekki móttökum eða öðrum hefðbundnum störfum forsetans, og aðeins í undantekn- ingartilvikum taka þeir að sér að undirrita lög. Yfirleitt er forset- inn á landinu þegar ný lög berast eða lögin látin bíða þar til forset- inn hefur snúið aftur, enda eru ferðirnar flestar styttri í dag en þegar sigla þurfti utan. Kjararáð ákveður laun forseta Íslands, og samkvæmt stjórn- arskrá má ekki lækka launin á miðju kjörtímabili. Samkvæmt nýjustu ákvörðun kjararáðs eru laun forseta Íslands um 1,8 millj- ónir króna og eru þau skattlögð eins og laun annarra, ólíkt því sem áður var. Eftir hrun var ákveðið að lækka laun þingmanna, ráðherra og embættismanna. Ólafur Ragn- ar Grímsson, forseti Íslands, ósk- aði í lok árs 2008 eftir því að laun hans lækkuðu um fimmtán pró- sent, um sama hlutfall og laun forsætisráðherra. Kjararáð taldi óheimilt að lækka launin, með vísan í stjórn- arskrá. Forsetinn óskaði því eftir því að útborguð laun yrðu lækk- uð, og fékk í gegn lækkun launa í 1,5 milljónir króna í byrjun árs 2009. Þrátt fyrir þessa launalækk- un héldust laun handhafa for- setavalds óbreytt. Þrátt fyrir að mikið væri fjallað um ákvörðun forseta óskuðu handhafarnir ekki eftir því að sama gilti um þeirra laun. Af bréfaskriftum sem farið hafa milli embættis forsetans og Fjársýslu ríkisins, sem sér um að borga bæði forseta og handhöf- unum, má ráða að bæði embætti forseta og handhafarnir hafi litið svo á að laun þeirra ættu að mið- ast við útborguð laun forseta. Jóhanna óskaði eftir lækkun Þessu eru sérfræðingar Fjársýsl- unnar og fjármálaráðuneytisins ósammála. Þar er litið svo á að laun handhafa miðist við laun for- seta samkvæmt úrskurði kjara- ráðs og óheimilt sé að skerða þau laun nema handhafarnir óski eftir því með sama hætti og forsetinn gerði. Jóhanna Sigurðardóttir forsæt- isráðherra hefur eftir umfjöllun Fréttablaðsins óskað eftir slíkri launalækkun. Hún fær því hér eftir 17 þúsund krónur fyrir hvern ferðadag forseta, ekki 20 þúsund eins og áður. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki náðst í Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, eða Ingibjörgu Benediktsdóttur, forseta Hæstaréttar, til að kanna hvort þær hyggist fara fram á sambærilega lækkun á greiðslum. Þessar greiðslur hafa verið þingmönnum og jafnvel ráðherr- um þyrnir í augum. Þannig sagði Jóhanna Sigurðardóttir á blaða- mannafundi í júní 2009, skömmu eftir að hún varð forsætisráð- herra, að greiðslurnar væru mjög „2007“. Í kjölfarið lögðu þingmenn úr efnahags- og skattanefnd fram frumvarp þar sem lagt var til að greiðslur til handhafa forseta- valds yrðu lækkaðar um 80 pró- sent. Hefði það frumvarp orðið að lögum hefðu handhafarnir deilt með sér fimmtungi af launum forseta í hans fjarveru. En frumvarpið náði ekki fram að ganga. Það fór í gegnum fyrstu umræðu og aftur til efnahags- og skattanefndar. Þar dagaði það uppi. Á þingi voru raunar efa- semdir um að lækka mætti laun handhafa forsetavalds. Í 9. grein stjórnarskrárinnar segir: „Ákveða skal með lögum greiðslur af ríkisfé til forseta og þeirra, sem fara með forsetavald. Óheimilt skal að lækka greiðslur þessar til forseta kjörtímabil hans.“ Það túlkuðu einhverjir þannig að óheimilt væri að lækka laun forseta og handhafa forseta- valds. Vildu afnema greiðslurnar Þetta var ekki eina tilraunin til að lækka þessar greiðslur til embættismannanna þriggja. Árið 2007 lögðu þrír þingmenn Samfylkingarinnar, þau Ellert B. Schram, Katrín Júlíusdóttir og Gunnar Svavarsson, fram frum- varp þar sem lagt var til að orða- lagi stjórnarskrár um handhafa forsetavalds yrði breytt. Þingmennirnir vildu nema úr stjórnarskrá ákvæði um að hand- hafarnir eigi að gegna störfum forseta þegar hann er erlendis. Hefði það orðið að lögum hefðu handhafarnir aðeins þurft að vera til taks forfallaðist forset- inn sökum sjúkleika. Í greinargerð með tillögunni sagði meðal annars: „Það fyrir- komulag að þrír aðrir einstakl- ingar gegni starfi forseta Íslands þótt hann bregði sér „á milli bæja“ er óþarfi. Og raunar eins- dæmi. Það er þar að auki barn síns tíma. Forsetinn er áfram for- seti þótt hann sé erlendis.“ Sú tillaga þingmannanna hlaut ekki náð fyrir augum þingsins, þótt fáir yrðu til þess að andmæla tillögunni efnislega. Í umræðum á Alþingi sögðu sumir þingmenn, til dæmis Geir H. Haarde, þáver- andi forsætisráðherra, að skoða þyrfti fleiri atriði varðandi emb- ætti forseta í stjórnarskrá en eingöngu hlutverk handhafanna. Tillögunni var því vísað til stjórn- arskrárnefndar, þar sem hún dag- aði uppi. Ekki gengið að breyta launum handhafa FORSETINN OG EINN HANDHAFA Jóhanna Sigurðardóttir sækir ekki bara stjórnarmyndunarumboð til forseta, heldur gegnir sem forsætisráðherra starfi handhafa forsetavalds ásamt forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FRÉTTASKÝRING: Laun forsetans og handhafa forsetavaldsins Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is NÝIR OG SPENNANDI STAÐIR Hvernig væri að fljúga út í heim og skoða framandi staði og töfrandi heimsborgir? Skoðaðu nýja og spennandi staði og taktu þér far með einhverju af þeim 15 flugfélögum sem fljúga frá Íslandi á árinu. Prófaðu Dohop leitarvélina á Vísi, flug og gisting, öll hagstæðustu tilboðin á einum stað. 08.08.11 15.08.11 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.