Fréttablaðið - 17.03.2011, Blaðsíða 56
17. mars 2011 FIMMTUDAGUR40
bio@frettabladid.is
Javier Bardem leikur aðal-
hlutverkið í Biutiful sem
verður frumsýnd á morg-
un. Hann kemur úr mikilli
leiklistarfjölskyldu og spil-
aði eitt sinn með spænska
landsliðinu í rúgbí.
Spánverjinn Javier Bardem leik-
ur aðalhlutverkið í Biutiful, sem
kemur í bíó hérlendis á morgun á
vegum Græna ljóssins.
Biutiful er ástarsaga sem fjallar
um Uxbal, þjakaðan tveggja barna
föður sem þarf að takast á við alls
konar erfiðleika. Myndin var til-
nefnd til tvennra Óskarsverð-
launa, sem besta erlenda myndin
og fyrir besta leikarann í aðalhlut-
verki. Hún er fyrsta myndin sem
mexíkóski leikstjórinn Alejandro
González Iñárritu sendir frá sér
síðan Babel kom út fyrir sex árum.
Javier Bardem fékk sína þriðju
Óskarstilnefningu fyrir frammi-
stöðu sína í Biutiful. Hann fæddist
1. mars 1969 í Las Palmas á Kan-
aríeyjum. Móðir hans var leikkona
og faðir hans stundaði viðskipti en
þau hættu saman fljótlega eftir að
hann fæddist. Skyldmenni Bard-
ems voru flest hver í kvikmynda-
bransanum og fljótlega varð ljóst
að hann myndi leggja leiklistina
fyrir sig. Auk móður hans voru afi
hans og amma leikarar og frændi
hans var handritshöfundur og leik-
stjóri. Eldri bróðir hans og systir
eru einnig leikarar.
Bardem lék í sinni fyrstu kvik-
mynd þegar hann var sex ára og
í framhaldinu lék hann í mörgum
sjónvarpsþáttaröðum. Hann próf-
aði sig áfram sem málari en spilaði
einnig rúgbí með spænska lands-
liðinu áður en hann sneri sér alfar-
ið að leiklistinni í byrjun tíunda
áratugarins.
Bardem vakti fyrst verulega
athygli í myndinni Jamón, jamón
árið 1992 þar sem hann lék á móti
núverandi eiginkonu sinni, Pene-
lope Cruz. Fyrsta enskumælandi
myndin hans var Perdita Durango
sem kom út 1997 og þremur árum
síðar beindust augu heimsbyggð-
arinnar að honum þegar hann var
tilnefndur til Óskarsverðlauna
fyrir hlutverk sitt í Before Night
Falls. Eftir að hafa leikið í Coll-
ateral á móti Tom Cruise og hinni
vel heppnuðu The Sea Inside hlaut
hann svo Óskarinn árið 2008 fyrir
eftirminnilega frammistöðu sem
geðsjúki morðinginn Anton Chig-
urh í Coen-myndinni No Country
for Old Men. Það var í fyrsta sinn
sem Spánverji vinnur Óskarinn
fyrir bestan leik í aukahlutverki.
Fyrr á þessu ári varð hann jafn-
framt fyrsti spænski leikarinn til
að fá tilnefningu til Óskarsins í
aðalhlutverki, fyrir hlutverk sitt
í Biutiful.
Frægðarsól Bardems heldur
áfram að hækka því hann hefur
verið orðaður við hlutverk í næstu
James Bond mynd auk þess sem
hann leikur í næstu ræmu hins
virta leikstjóra Terence Malick,
sem hefur enn ekki fengið nafn.
freyr@frettabladid.is
Bardem er einn af
átta leikurum sem
hafa unnið Óskarinn,
Bafta-, Critics´ Choice-,
Golden Globe- og SAG-verð-
launin fyrir sama hlutverkið
(No Country For Old Men)
8
> LEIKSTÝRIR AFTUR
Næsta leikstjórnarverkefni Drew Barry-
more verður hin rómantíska How to
Be Single, byggð á skáldsögu Liz Tucc-
illo. Myndin fjallar um ástamál New
York-búa á tíu ára tímabili. Fyrsta
myndin sem Barrymore leik-
stýrði, Whip It, hlaut góðar við-
tökur og bíða menn því spenntir
eftir næsta útspili hennar.
Íslenskir kvikmyndahúsagestir geta valið úr fjór-
um nýjum myndum um helgina, auk hinnar spænsku
Biutiful.
Anne Hathaway og Jake Gyllenhaal leika í róman-
tísku gamanmyndinni Love and Other Drugs. Þar fer
Gyllenhaal með hlutverk manns sem fær vinnu í lyfja-
fyrirtæki og fetar sig fljótt upp metorðastigann, aðal-
lega með því að beita persónutöfrum sínum á kvenfólk
en einnig vegna nýs lyfs sem heitir Viagra.
Ævintýramyndin Season of the Witch fjallar um
riddarann Behmen (Nicolas Cage), sem snýr aftur til
heimalandsins eftir krossferð til Jerúsalem en þegar
heim er komið er Svarti dauði að ganga af þjóðinni
dauðri. Kirkjan kennir göldrum um pláguna og skipar
Behmen og Felson (Ron Perlman) að flytja unga konu
sem er grunuð um að vera norn til afskekkts klaust-
urs. Atli Örvarsson samdi tónlistina fyrir myndina.
Í spennumyndinni Unknown leikur Liam Neeson
mann sem kemst til meðvitundar eftir bílslys í Berl-
ín. Hann uppgötvar að eiginkona hans þekkir hann
ekki lengur og annar maður hefur yfirtekið líf hans.
Þá fjallar teiknimyndin Mömmur vantar á Mars
um hinn níu ára Milo, sem kemst að því hversu mikið
hann þarf á mömmu sinni að halda þegar henni er
rænt af Marsbúum.
Viagra, norn og Marsbúar
ÁSTFANGIN Ástir takast með Anne Hathaway og Jake
Gyllenhaal í Love and Other Drugs.
Það kom mörgum kvikmyndaáhuga-
mönnum í opna skjöldu þegar leikstjórinn
heimsfrægi Steven Soderbergh tilkynnti
í vikunni að hann ætlaði að hætta í
bransanum.
„Þegar þú sérð íþróttamenn spila
einum eða tveimur tímabilum of lengi
verður það frekar sorglegt,“ sagði
Soderbergh, sem hefur ekki sömu
ástríðuna fyrir kvikmyndagerð og
áður.
Soderbergh, sem er 48 ára, varð
yngsti leikstjórinn til að vinna Cannes-
verðlaunin þegar hann sigraði árið 1989
með myndinni Sex, Lies and Videotape.
Segja má að árið 2001 hafi verið hápunkt-
ur hans á ferlinum því þá var hann til-
nefndur til Óskarsins fyrir tvær myndir
á sama tíma, Traffic og Erin Brockovich.
Á meðal annarra þekktra verka hans eru
Ocean’s-myndirnar, Out of Sight og tvær
myndir um Che Guevara.
Fjórar myndir koma úr smiðju Soder-
berghs áður en hann hverfur af sjón-
arsviðinu sem leikstjóri. Fyrst kemur
hasarmyndin Haywire með Antonio
Banderas og Ewan McGregor í aðalhlut-
verkum og síðar á árinu er væntanlegur
tryllirinn Contagion með Kate Winslet og
Jude Law. Soderbergh á eftir að taka upp
tvær myndir, annars vegar mynd um ævi
tónlistarmannsins Liberace og hins vegar
The Man from U.N.C.L.E. með George
Clooney.
Soderberg hættir að leikstýra
ÁSTRÍÐAN HORFIN Leikstjórinn Steven
Soderbergh ætlar að hætta að leikstýra.
Spænskur brautryðjandi
Dagur heilags Patreks er í dag og
af því tilefni gerði breska blaðið
Metro lista yfir þá fimm leikara
sem höfðu versta írska hreiminn
sem heyrst hefur á hvíta tjaldinu.
Efstur á lista er Tommy Lee
Jones í hlutverki Ryans Gaerity
í hasarmyndinni Blown Away.
Þar lék Jones brjálaðan írskan
sprengjusérfræðing sem flúði úr
fangelsi og ákvað að hrella með-
limi sprengjusveitar lögreglunn-
ar í Boston þar sem persóna Jeff
Bridges var fremst í flokki.
Í öðru sæti yfir versta hreim-
inn lenti Skotinn Gerard Butler
fyrir hlutverk sitt í dramanu PS I
Love You þar sem hann lék á móti
Hilary Swank. Töluvert grín var
gert að Butler fyrir írska hreim-
inn og svo virðist sem skoskur
uppruni hans hafi eitthvað rugl-
að hann í ríminu.
Richard Gere lék fyrrver-
andi meðlim IRA, Declan Mul-
queen, í myndinni
The Jackal á móti Bruce Willis.
Írski hreimurinn vafðist ítrekað
fyrir Gere, sem var hreinlega úti
á þekju í hverju atriðinu á fætur
öðru.
Hjartaknúsarinn Brad Pitt lék
norður-írskan meðlim IRA í The
Devil’s Own og þótti engan veg-
inn ná tökum á hreimnum. Hann
sýndi mun betri takta í Snatch
og sannaði þar að hann getur vel
brugðið sér írska gírinn.
Í fimmta sætinu lenti svo
Sean Connery í Disney-mynd-
inni Darby O’Gill and the Little
People sem kom út 1959. Hreimur
persónunnar Michaels McBride
þótti afleitur enda var Connery
fljótur að hrista hann af sér sem
njósnari hennar hátignar, 007,
þremur árum síðar.
Versti hreimurinn
FÁ LÉLEGA
UMSÖGN Gerard
Butler, Richard
Gere og Tommy
Lee Jones eru í
efstu sætunum
með versta írska
hreiminn.
GÓÐUR LEIKARI Javier Bardem
leikur aðalhlutverkið í Biutiful.
Hann hefur hlotið ein Óskars-
verðlaun og verið tilnefndur
tvisvar til viðbótar.
NORDICPHOTOS/GETTY