Fréttablaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 31. mars 2011 19 AF NETINU Mjög, mjög mikið lausafé Allt frá því á síðasta ári hefur Hanna Birna Kristjánsdóttir klifað á því að sjóðir borgarinnar væru svo digrir að þyrftum ekki að gera neitt óvinsælt eða sársaukafullt … „enda var þeim sjóðum safnað upp á síðasta kjörtímabili, er því til að svara að sú staða hefur verulega batnað á þessu ári og nú er svo komið að afrakstur aðgerða undanfarinna ára og líka undanfarinna mánaða hefur skilað sér í áætluðum hagnaði Orkuveitu Reykjavíkur upp á rúma 20 milljarða. … Reykjavíkurborg á mjög, mjög mikið lausafé og mér sýnist samkvæmt tölum sem ég sá í morgun að miðað við einhver sveitarfélög allavega eigi Reykjavíkurborg margfalt meira heldur en aðrir íbúar.” - Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, í umræðum í borgarstjórn 30. nóvember árið 2010. oddny.eyjan.is Oddný Sturludóttir Ljós reynslunnar Það var á fundi um stjórn-skipunarmál í Háskólanum á Bifröst um daginn, að gest- gjafi minn, Jón Ólafsson pró- fessor, lagði fyrir mig þessa lokaspurningu: Þarf stjórnar- skráin að taka mið af hug- myndum manna um þjóðar- eðli? Ég hafði gefið honum tilefni til að spyrja, því að ég hafði í fyrirlestri mínum sagt eitthvað á þá leið, að stjórnvöld, sem leyfðu gengi íslenzku krónunnar að falla um 99,95 prósent gagnvart dönsku krónunni frá 1939, þegar báðar myntir voru jafn- gildar, virtust eiga við ein- hvers konar agavandamál að stríða. Ég hafði bætt því við, að Íslendingar gefa börnunum sínum þrisvar sinnum meira rítalín en Danir samkvæmt lyfjaskýrslum. Ekki skrifa yfirvöldin út allt þetta rítalín, nei, það gera læknar. Vandinn er því ekki bundinn við stjórn- völd. Fyrir nokkrum árum sagði einn merkasti jarðvís- indamaður landsins við mig á förnum vegi: Ég þykist vita, hvernig þér líður innan um alla vitfirringuna í efnahags- lífinu. Í orkumálunum, sagði hann, æða menn einnig áfram og bora og bora eins og jörðin þurfi engan tíma til að jafna sig. Fram í rauðan dauðann Mér hefur lengi verið ljóst, allar götur frá unglingsárum, að Ísland er vanþroska í stjórnmálalegu tilliti og líkist að því leyti ýmsum þróunar- ríkjum. Rannsóknarnefnd Alþingis (RNA) tekur undir þessa skoðun í skýrslu sinni (8. bindi, bls. 184). Frá mínum bæjardyrum séð stafar vand- inn að nokkru leyti af rangri kjördæmaskipan, sem hefur hrjáð landið frá fyrstu tíð og Hannes Hafstein, fyrsti ráð- herrann, varaði við. Misvægi atkvæðisréttar eftir búsetu hefur hlaðið undir stjórnmála- flokka og hagsmunasamtök, sem hegða sér eins og ríki í ríkinu. Hrunið ætti að færa mönnum heim sanninn um nauðsyn þess að reyna að rífa landið upp úr þessu gamla fari og aftra því, að Ísland læsist inni í skuldabasli og byrji að líkjast þróunarlöndum einnig í efnahagslegu tilliti. Á því er raunveruleg hætta, sem brýna nauðsyn ber til að bægja frá eins og Þráinn Eggertsson pró- fessor benti á í Morgunblaðinu strax eftir hrun. Til að bægja þessari hættu frá þarf gagngerar umbætur á ýmsum sviðum og einnig, virðist mér, nýja stjórnarskrá. Dönum dugir að sönnu óbreytt stjórnarskrá frá 1953, enda eiga þeir ekki við nein sérstök agavandamál að stríða. Íslend- ingum dugir ekki óbreytt stjórnarskrá, úr því að spill- ingin, sem ásamt öðru lagði íslenzkt efnahagslíf á hliðina 2008, gat þrifizt hér við gild- andi stjórnskipan. Þessi blá- kalda staðreynd kallar auk annars á nýja stjórnarskrá eins og RNA lýsir eftir (8. bindi, bls. 184). Þeir, sem telja enga ástæðu til að endurskoða stjórnarskrána nú, myndu trú- lega flestir þræta fram í rauð- an dauðann fyrir spillinguna. Órækir vitnisburðir Skýrsla RNA kortleggur hluta vandans. Hún birtir tölur um ofurlán gömlu bankanna til tíu alþingismanna, þar á meðal til formanns og vara- formanns Sjálfstæðisflokks- ins (2. bindi, bls. 200). Ofan á fjallháa styrki bankanna og tengdra fyrirtækja til stjórn- málaflokkanna 2004-2008, sem Ríkisendurskoðun gerði grein fyrir síðla árs 2009 og ég lýsti hér í Fréttablaðinu 14. janúar 2010, bættu bank- arnir ríflegum greiðslum til einstakra stjórnmálamanna og stjórnmálasamtaka, sam- tals 147 milljónum króna 2004- 2008, og eru þó engin gögn til um greiðslur Glitnis til stjórnmálamanna né heldur tæmandi gögn um fyrir- greiðslu bankanna við stjórn- málamenn og samtök þeirra í fríðu (boðsferðir, risna o.fl.). Allt þetta stendur skýrum stöfum í skýrslu RNA (8. bindi, bls. 164-9). Í heilbrigðu réttarríki myndu ríkissak- sóknari eða sérstakur sak- sóknari láta á það reyna fyrir dómstólum, hvort greiðsl- urnar voru mútur í skilningi hegningarlaga, en ekki bólar enn á slíkri viðleitni af hálfu ákæruvaldsins. Afhjúpanir RNA knýja á um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Ný stjórn- arskrá er nauðsynleg, en hún er samt ekki nóg. Stjórnvöld verða að virða stjórnarskrána. Að rata rétta leið Spillingin, sem ásamt öðru lagði Ísland á hliðina, liggur að minni hyggju ekki í eðli íslenzku þjóðarinnar. Spilling- in, siðaveiklunin, býr í fúnum samfélagsinnviðum, sem hægt er að skipta út. Hér er að ýmsu að hyggja, þar á meðal undir- stöðum stjórnskipunarinnar. Stjórnarskrá Suður-Afríku er langorð um mannréttindi, þar eð þau voru fótum troðin á tíma aðskilnaðarstefnunnar. Stjórnarskrá Japans leggur blátt bann við hervæðingu, þar eð Japanar gerðu sig seka um stríðsglæpi á fyrri hluta tuttugustu aldar. Þannig getum við fært okkur land úr landi. Við vitum vel, að mann- réttindabrot og stríðsglæpir liggja ekki í eðli Suður-Afríku- búa og Japana. Tildrög hörm- unganna spruttu af skemmd- um innviðum. Þess vegna telja þessar þjóðir rétt að binda skýr ákvæði um mannréttindi og frið í stjórnarskrár sínar. Spilling, sem hefur með öðru lagt efnahag fullvalda ríkis í rúst, kallar með líku lagi á traustar girðingar. Stjórnarskrá þjóðar þarf að spegla liðna tíð, svo að fólkið geti ratað rétta leið til far- sældar í ljósi reynslunnar. Þorvaldur Gylfason prófessor Í DAG Spillingin, siðaveiklunin, býr í fúnum samfélagsinnviðum, sem hægt er að skipta út. Hér er að ýmsu að hyggja, þar á meðal undirstöðum stjórnskipunarinnar. Dagskrá og skráning á www.sa.is AÐALFUNDUR SAMTAKA ATVINNULÍFSINS 2011 FIMMTUDAGINN 7. APRÍL Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA OPIN DAGSKRÁ KL. 14-16. Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040 w w w .h ir zl an .i s kr. 37.900,- SKRIFBORÐ og bókahillur! T il bo ð Tilboð 56.900,- Fullt verð 77.900,- Tilboð 15.500,- Fullt verð 20.300,- T il bo ð kr. 14.500 kr. 25.400,- CD - og bókahillur í úrvali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.