Fréttablaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 31. mars 2011 11 * Endurgreiðslan er 4,29% m.v. 232,9 kr. lítraverð á 95 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu hjá Shell og 3,46% m.v. 231,4 kr. lítraverð á 95 oktana bensíni hjá Orkunni. Sú endurgreiðsla jafngildir 10 kr. á lítra hjá Shell og 8 kr. á lítra hjá Orkunni. Ódýrara eldsneyti fyrir e-korthafa í dag Í dag er 10 króna endurgreiðsla á stöðvum Shell og 8 króna endurgreiðsla hjá Orkunni fyrir e-korthafa.* Einnig er sama endurgreiðsla af öllum vörum í verslun Endurgreiðsludagur e-kortsins Þú færð e-kortið í Arion banka. Farðu á arionbanki.is og kynntu þér kosti e-kortsins. Endurgreiðslan er greidd út með ávísun í byrjun desember ár hvert. ALÞINGI „Þetta er ævaforn mantra sem er til þess fallin að glæða með okkur hugrekki, eldmóð og staðfestu. Hún virkar í dagsins önn,“ segir listamaðurinn Þorlák- ur Kristinsson Morthens, betur þekktur sem Tolli. Hann gaf þingflokksformönnum á Alþingi í gær innpakkaða hljóð- upptöku af flutningi trúarleiðtog- ans Dalai Lama á möntru ásamt texta hennar, íslenskri þýðingu og merkingu. Mantran er úr Rigveda- ritunum, safni söngva frá því um 1500 til 500 fyrir Krist. Þetta eru elstu og helgustu rit Indverja. Tolli bendir á að flutningur Dalai Lama á möntrunni sé sér- stakur. Alla jafna flytji hann möntrur úr tíbetskum búddisma. Þessi er hins vegar á sanskrít. Það skilyrði fylgir möntrunni að hana má ekki selja. Hann segir möntruna leið til hamingju og kærleika. „Við getum stungið hausnum í sandinn og verið reið. Það er val. Ef þú velur leið fyrirgefningar og stígur inn í kærleikann muntu upplifa stór- kostlega hluti,“ segir Tolli. „Ég hef notað þetta og hún svínvirkar.“ - jab Tolli gaf þingflokksformönnum möntru sem á að leiða þá úr bölsýni í kærleika: Við höfum val út úr reiðinni Ég hugleiði hina guðlegu veru og gef mig á vald henni sem í býr viljastyrkur, þekking og athöfn, ég bið til hinnar guðlegu veru sem kemur fram í ilmi lífsblómsins og nærir að eilífu lífsins jurt. Megi lávarður lífsins losa mig undan áþján líkamlegra, sálrænna og andlegra skaðvalda líkt og natinn garðyrkjumaður. Megi lávarður ódauðleikans sem býr hið innra frelsa mig frá hrörnun dauðans og veikindum og sameina mig ódauðleikanum. Nánar má fræðast um möntruna á Facebook-síðunni Mantra Íslands. Mantran MANTRAN SKIPTIR UM HENDUR Listamaðurinn Tolli hefur ástundað búddisma um nokkurra ára skeið. Hann segir möntru sem hann gaf þingflokks- formönnum svínvirka. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Nær þrjátíu milljóna sekt Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann í sjö mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, og til að greiða rúmlega 28 milljóna króna sekt fyrir meiri háttar brot á skatta- og bókhaldslögum. Brotin voru framin í rekstri einkahlutafélagsins F.H. Verk þar sem maðurinn var framkvæmda- stjóri. DÓMSTÓLAR DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært konu fyrir ofbeldisverk og hótanir gagnvart starfskonu barnaverndarnefndar Reykja- nesbæjar á árunum 2008 og 2009. Konan reyndi að kasta skó og kertastjaka í starfskonuna, sem hafði haft afskipti af henni vegna skyldustarfa. Jafnframt reyndi hún að slá hana og klóra í andlit. Nokkru síðar sló konan starfs- konuna með krepptum hnefa í höfuð og handlegg þar sem þær voru í bifreið sem lagt var við þjóðveginn. Loks er konan ákærð fyrir að hrinda starfskonunni og hóta að láta berja hana. - jss Kona ákærð fyrir ofbeldi: Kýldi starfs- mann barna- verndarnefndar DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl- maður hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás. Manninum er gefið að sök að hafa kýlt annan mann í andlit og bringu og ýtt honum. Fórnarlamb- ið féll við það aftur fyrir sig og skall í jörðina. Hann hlaut blæð- ingar inn í bæði miðeyru, lömun hægra megin í andliti, áverka og blæðingar í heila, brot á höfuð- kúpu og heyrnarskerðingu. Maðurinn krefur árásarmann- inn um skaða- og miskabætur að upphæð ríflega fjórar milljónir króna. - jss Krafinn um fjórar milljónir: Höfuðkúpubrot- inn eftir árás BRETLAND, AP Læðan Smokey þykir líkleg til að fá nafn sitt skráð í Heimsmetabók Guinnes eftir að mal þessa breska hús- kattar mældist 73 desibel, sem er svipað og í venjulegri sláttuvél eða hárþurrku. Smokey er tólf ára gömul og segir eigandinn hana vera símalandi. „Henni tekst einhvern veginn að mala meira að segja þegar hún er að éta,“ segir Ruth Adams. Hljóðið er ekki ósvipað og í afar háværri kurrandi dúfu. Á Íslandi ber vinnuveitendum að útvega starfsfólki sem vinnur við hávaða sem nær 85 desibelum heyrnahlífar. - bj Köttur setur nýtt heimsmet: Malar jafn hátt og sláttuvél HÁVÆR Malið í Smokey er um sextán sinnum hærra en í öðrum húsköttum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.