Fréttablaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 70
31. mars 2011 FIMMTUDAGUR46
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
„Þetta er alveg úr lausu lofti
gripið,“ segir Sölvi Blöndal tón-
listarmaður.
Vísir.is greindi frá því í gær að
hljómsveitin Quarashi væri að
íhuga endurkomu í sumar. Sagði
í frétt á vefnum að sveitin myndi
leika á tónleikum á útihátíð í júlí
sem kallast Besta hátíðin. Sölvi
Blöndal, sem var höfuðpaur sveit-
arinnar, kvaðst koma af fjöll-
um yfir þessum fréttum þegar
Fréttablaðið náði í hann í gær.
„Maður fer nú ekki að vekja upp
þennan dauða hest. Eins vænt
og mér þykir um Quarashi þá er
þetta ekki að fara að gerast.“
Sölvi er búsettur í Stokk-
hólmi en er í stuttri heimsókn á
Íslandi. Hann er menntaður hag-
fræðingur og hefur undanfarið
starfað í Seðlabanka Svíþjóðar.
„Ég er að vinna rannsóknar-
verkefni fyrir Seðlabankann í
Svíþjóð. Á kvöldin sinni ég svo
tónlistarþörfinni,“ segir Sölvi. Þó
að önnur verkefni hafi tekið við
síðan hann var í Quarashi seg-
ist Sölvi ekki geta sleppt því að
vinna að tónlist. „Ég er að vinna
með sænskri stelpu og það er von
á efni frá okkur með vorinu. Það
gæti komið lag í spilun í apríl eða
maí.“ - hdm
Fer ekki að vekja upp þennan dauða hest
QUARASHI ER HÆTT Sölvi Blöndal segir ekkert hæft í fréttum þess efnis að Quarashi
muni snúi aftur. Hann starfar nú hjá Seðlabanka Svíþjóðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fjöldi íslenskra hljómsveita, þar á meðal Amiina,
Eberg, Nóra og Rökkurró, kemur við sögu á tveimur
safnplötum til styrktar fórnarlömbum harmfaranna í
Japan.
Það er japanska útgáfufyrirtækið Rallye sem
stendur fyrir safnplötunum. Þær heita Pray for Japan
(with Music) Vol. 1 og Vol. 2. Sú fyrri er þegar komin
út á iTunes úti um allan heim og sú síðari kemur út 6.
apríl.
„Eigandi fyrirtækisins sendi út hjálparkall til að
geta gefið út þessa safnplötu og bað um tónlist. Við
erum búin að vera í svo miklu sambandi við Japana
og við vorum öll í sjokki eftir að jarðskjálftinn reið
yfir. Það vildu allir leggja sitt af mörkum í verk-
efnið,“ segir Jóhann Ágúst Jóhannsson, samstarfs-
aðili Amiinu. Hljómsveitin er einmitt nýbúin að skrifa
undir útgáfusamning við Rallye og kemur nýjasta
plata hennar, Puzzle, út í Japan í næsta mánuði. Rallye
hefur áður gefið út plötur með Eberg og Rökkurró í
Japan en núna er Amiina sem sagt að bætast í hópinn.
Á meðal annarra íslenskra flytjenda á plötunum eru
Hellvar, Kira Kira og 7oi sem samdi glænýtt lag fyrir
útgáfuna. Erlendar indísveitir á borð við Au Revoir
Simone og Kyte eiga einnig lög á plötunum. - fb
Styðja fórnarlömb á safnplötum
„Það borgar sig stundum að vera
pattaralegur,“ segir Víkingur Krist-
jánsson, sem leikur stórt hlutverk í
nýrri auglýsingu fyrir hina smá-
vöxnu bílategund BMW-bílarisans,
Mini Cooper. Auglýsingin var tekin
upp hér á landi fyrir skemmstu.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins sótti annar hver leikari á
landinu um að komast í umrædda
auglýsingu enda hafði sú saga geng-
ið fjöllum hærra í leikarabransan-
um að starfið væri vel borgað og
jafnvel talað um sjö stafa tölur í
því samhengi. Víkingur viðurkenn-
ir að hann hafi fengið ágætis laun
og bætir því við að félagar hans
í leikhúsinu hafi á tímabili hald-
ið að hann hefði orðið snögglega
ríkur á bílaauglýsingunni. „Svo
var nú ekki. En þetta var ágætlega
borgað.“
Tökurnar fóru fram vestur í
Dölum en það voru True North og
Eskimo sem aðstoðuðu útlendingana
hér á landi. Mikil leynd hvíldi yfir
tökunum enda var um að ræða 2012-
týpu og því má ekkert kvisast út.
„Öll myndataka var bönnuð á töku-
stað og það var einhver Þjóðverji
sem fylgdi bílnum við hvert fót-
mál og gætti þess að engar myndir
væru teknar.“ Þetta er reyndar ekki
í fyrsta skipti sem jafn háleynileg
auglýsing er tekin upp hér á landi
því í fyrra mætti Peugeot-fyrirtæk-
ið með sína nýjustu týpu hingað til
lands. Þá náði ljósmyndari mynd af
bílnum og fór sú mynd út um allan
heim.
Víkingur segir það hafa gengið
ágætlega að komast inn í Mini-bíl-
inn sem, eins og nafnið gefur til
kynna, er af smærri gerðinni. „Og
ég fékk ekkert mikið að keyra, það
var einhver fyrrverandi Íslands-
meistari í rallíi sem var fenginn til
þess. Ég settist aðallega upp í hann í
nærmyndatökum og fékk að þykjast
keyra hann.“
Þetta er í fyrsta skipti sem Vík-
ingur reynir fyrir sér í erlendri
auglýsingu og hann segir þetta hafa
verið skemmtilega reynslu. „Það var
gaman að sjá hvernig þetta virkaði.
Við vorum reyndar óheppnir með
veður seinni tökudaginn, þá snjóaði
alveg heilan helling en við græddum
auka tökudag í staðinn.“
freyrgigja@frettabladid.is
VÍKINGUR KRISTJÁNSSON: VEL GREITT FYRIR MINI COOPER
Lék aðalhlutverkið í
háleynilegri bílaauglýsingu
AMIINA Hljómsveitin Amiina á lag á safnplötu til styrktar
fórnarlömbum hamfaranna í Japan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÁGÆTLEGA BORGAÐ Víkingur Kristjánsson og Finnbogi Þorkell léku saman í Mini-auglýsingunni sem var tekin upp vestur í
Dölum. Mikil leynd hvíldi yfir auglýsingunni og voru allar myndatökur bannaðar á tökustað. Víkingur segir það hafa gengið
ágætlega að troða sér inn í bílinn og það hafi loksins borgað sig að vera svolítið pattaralegur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hljómsveitin Dikta fær góða dóma
á þýsku tónlistarsíðunni Pop100.
com fyrir plötu sína Get It Toget-
her sem kom út þar í landi fyrir
skömmu. Tónlistin er sögð ekki
jafnflott og Geysir eða Sigur Rós
en samt mjög góð.
„Diktu tekst að láta hvert einasta
lag hljóma eins og lítil sinfónía,“
skrifar gagnrýnandinn og líkir
hljómsveitinni við breskar sveit-
ir á borð við Snow Patrol, Travis
og Manic Street Preachers. Hann
bætir við að söngstíll Hauks Heið-
ars Haukssonar og James Dean
Bradfield úr síðastnefndu sveitinni
sé svipaður. „Eftir að hafa hlustað á
Get It Together er vel skiljanlegt af
hverju Dikta er vinsælasta hljóm-
sveit Íslands,“ skrifar hann.
Eins og lítil sinfónía
GÓÐIR DÓMAR Hljómsveitin Dikta fær
góða dóma á þýsku tónlistarsíðunni
Pop100.com fyrir sína nýjustu plötu.
„Það er helst Stundin okkar sem
ég horfi á með börnunum.“
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir.
TILBOÐ
opið alla laugardaga frá 11-14
RAUÐMAGI 890 KR/KG
FISKRÉTTUR DAGSINS 1390 KR/KG
LÚÐUSNEIÐAR 2390 KR/KG
ÞORSKHNAKKAR 1790 KR/KG
Sun 3.4. Kl. 15:00 Sun 10.4. Kl. 15:00 Sun 17.4. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Sun 3.4. Kl. 14:00
Sun 3.4. Kl. 17:00
Sun 10.4. Kl. 14:00
Sun 10.4. Kl. 17:00
Sun 17.4. Kl. 14:00
Sun 17.4. Kl. 17:00
Sun 1.5. Kl. 14:00
Sun 1.5. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Fös 1.4. Kl. 20:00 8. sýn
Lau 2.4. Kl. 20:00
Mið 13.4. Kl. 20:00
Fim 14.4. Kl. 20:00
Mið 27.4. Kl. 20:00
Lau 30.4. Kl. 20:00
Mið 4.5. Kl. 20:00
Fim 5.5. Kl. 20:00
Brák (Kúlan)
Ö
Lau 2.4. Kl. 20:00
Lau 9.4. Kl. 20:00
Sun 10.4. Kl. 20:00
Lau 16.4. Kl. 20:00
Sun 17.4. Kl. 20:00
Hedda Gabler (Kassinn)
Ö
U Ö
Fös 8.4. Kl. 20:00 Þri 12.4. Kl. 20:00 Fös 15.4. Kl. 20:00
U
Ö
Ö
U
Ö Ö
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Mið 6.4. Kl. 20:00
Fim 7.4. Kl. 20:00
Fös 8.4. Kl. 20:00
Lau 9.4. Kl. 20:00
Fös 15.4. Kl. 20:00
Lau 16.4. Kl. 20:00
Fim 28.4. Kl. 20:00
Fös 29.4. Kl. 20:00
Fös 6.5. Kl. 20:00
Ö Ö
Ö Ö
Ö Ö
U Ö Ö
Ö
U
Ö
Ö
U
Ö
Ö
U
U
U
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.