Fréttablaðið - 14.04.2011, Síða 22
22 14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR
Í febrúar voru 13.772 manns á atvinnuleysisskrá. Það er
hryggileg staðreynd og íslenskt
samfélag þolir það ekki til lengd-
ar. Atvinnuleysið er 9,3% meðal
karla, 7,8% meðal kvenna. Frá
hruni hafa fleiri störf tapast en
sem þessu nemur, allt að 20.000.
Muninn má að mestu skýra með
erlendu vinnuafli sem fór af landi
brott, en einnig sókn eftir aukinni
menntun. Nú hafa heyrst yfirlýs-
ingar sem helst má skilja sem svo
að ríkið hafi unnvörpum skorið
niður kvennastörf. Ekkert er fjær
sanni. Tölur yfir atvinnuleysi leiða
hið sanna í ljós.
Atvinnuleysið birtist
á einkamarkaðinum
Frá febrúar 2008 til febrúar 2010
misstu 13.640 manns atvinnuna,
8.416 karlar og 5.204 konur sam-
kvæmt Vinnumálastofnun. 97%
karlanna og 84% kvennanna komu
úr einkageiranum. Aðeins 7,9%
þessa mikla fjölda misstu starf
hjá ríki eða sveitarfélögum. Um
tveir af hverjum þremur ríkis-
starfsmönnum eru konur og er
hlutfallið enn hærra hjá sveitar-
félögunum. Því er ólíku saman að
jafna þegar horft er til einkageir-
ans eða hins opinbera. Í einkageir-
anum hafa verið hoggin djúp skörð
í heilar atvinnugreinar meðan tek-
ist hefur að verja störf hjá hinu
opinbera að mestu. Það hefur verið
stefna stjórnvalda að
reyna með öllum ráðum
að koma í veg fyrir upp-
sagnir þrátt fyrir að
niðurskurður hafi verið
óhjákvæmilegur.
2009 og 2010 fækk-
aði stöðugildum hjá
ríkinu um 545. Þar af
eru stöðugildi kvenna
475. Hvert tapað starf
er einu starfi of mikið.
Á L a ndspíta la num
einum hefur stöðugild-
um fækkað um 350 á
tveimur árum. Langt í
frá allir sem úr þessum
stöðugildum hafa horfið
lentu á atvinnuleysis-
skrá. Þannig láta árlega nokkrir
af störfum sökum aldurs, veikinda
og annars, en höfum í huga hinn
gríðarlega fjölda starfsmanna heil-
brigðisþjónustunnar. Við bætist að
sums staðar hefur þjónustuþáttum
verið útvistað með því skilyrði
að hluti þeirra sem þeim sinntu
áður yrði endurráðinn hjá nýjum
atvinnurekanda. Á Landspítalan-
um nemur fækkun stöðugilda af
þeirri ástæðu um 100 af 350 í allt.
Ríkisstjórnin hefur forgangs-
raðað störfum konum í vil. Minn-
ast má að við fjárlagagerð fyrir
árið 2011 stóðu uppsagnir um 634
kvenna á heilbrigðisstofnunum
víða um land fyrir dyrum. Fall-
ið var frá ríflega 80% þeirra. Á
móti hafa opinberar framkvæmd-
ir verið skornar niður eða þeim
frestað. Þar hafa karlastörf tap-
ast. Því má allt eins halda fram
að stjórnvöld hafi kosið að verja
störf kvenna hjá hinu opinbera á
kostnað starfa karla á einkamark-
aði, en á þeim bitnar niðurskurður
framkvæmda helst. Markmiðið er
ekki eitt og sér að verja kvenna-
störf, heldur ekki síður að verja
þau lífsgæði sem felast í almanna-
þjónustu.
Aukin eftirspurn
kemur öllum til góða
Í tölum yfir atvinnulausa eftir
atvinnugreinum frá febrúar 2008
til febrúar 2010 kemur fram að
yfir fimmtungur allra atvinnu-
lausra kvenna starfaði áður við
verslun og viðgerðir, ríflega tíundi
hluti við sérhæfða þjónustu á
einkamarkaði, tæplega tíundi hluti
við gisti- og veitingahúsastarfsemi
og álíka í iðnaði. Mannvirkjagerð
er langstærsta einstaka atvinnu-
greinin sem orðið hefur atvinnu-
leysinu að bráð, en um 20% karla
sem misstu vinnuna á þessu tíma-
bili störfuðu þar. Sú atvinnugrein
sem kemur næst þegar horft er til
karlanna er verslun og viðgerðir,
þá iðnaður og hráefnavinnsla og
loks leigustarfsemi og sérhæfð
þjónusta.
Ljóst er að ef hamla á gegn
atvinnuleysi nægir ekki að verja
störf ríkisstarfsmanna. Örva verð-
ur eftirspurn í hagkerfinu og koma
framkvæmdum af stað – þannig
skapast atvinna fyrir bæði karla
og konur. Á dögunum kynnti for-
sætisráðherra að um 2.200 störf
væru framundan þegar horft væri
til fjárfestinga á undirbúnings-
stigi hjá ríki og einkaaðilum, flest
tímabundin meðan framkvæmdir
vara, um fjórðungur framtíðar-
störf. Í tengslum við yfirstand-
andi kjarasamningagerð hefur
ríkisstjórnin lýst yfir að enn verði
bætt í. Í nafni kynjaðrar fjárlaga-
gerðar hafa ýmsir þóst geta fullyrt
að þessar aðgerðir myndu aðeins
gagnast körlum. Þetta er grunn-
hyggnisleg afstaða og með henni
er horft framhjá samspili ólíkra
atvinnugreina.
Mannvirkjagerð dregist saman
Ríkið hefur í grófum dráttum
þrjár leiðir til að hamla gegn
atvinnuleysi á einkamarkaði. Sú
sem mestu skiptir felst í að tryggja
góða efnahagsstjórn og hagstæða
umgjörð atvinnurekstrar og fjár-
festinga einkaaðila. Önnur lýtur
að örvun nýsköpunar og frum-
kvöðlastarfsemi, m.a. með styrkj-
um og rannsóknum. Sú
þriðja felst í að efna til
beinna verkefna, oftast
með útboðum á verk-
legum framkvæmdum.
Frá síðustu aldamót-
um hafa framkvæmdir
á vegum hins opinbera
numið að meðaltali 17%
af allri mannvirkjagerð.
Þar er átt við vegafram-
kvæmdir, nýbygging-
ar, gangnagerð, brúar-
smíði og viðhald þessara
mannvirkja. Frá hruni
hefur hlutdeild ríkisins
í mannvirkjagerð hald-
ist óbreytt, sem þýðir að
opinberar framkvæmd-
ir hafa dregist jafn mikið saman
og í samfélaginu öllu eða um tvo
þriðju miðað við árin 2005-2008
en um helming miðað við næstu
ár á undan. Vegna fjárskorts hefur
ríkið ekki með öflugum hætti beitt
því tæki sem opinberar fram-
kvæmdir geta verið til sveiflu-
jöfnunar.
Í fyrirtækjum á þessu sviði
starfa konur líka. Margfeldis áhrif
á önnur störf geta verið allt að
sexföld. Verkfræðingurinn, mat-
ráðurinn, launafulltrúinn, smið-
urinn, bókarinn og gröfumaður-
inn sem með þessu fengju aukin
verkefni myndu væntanlega öll
nota lungann af launatékkanum í
verslunum, til kaupa á þjónustu og
til að greiða af lánum. Innspýting
af fjármagni inn á vinnumarkað-
inn í heild eykur eftirspurn innan
þeirra atvinnugreina þar sem
atvinnuleysið er mest og þar starfa
bæði karlar og konur.
Nokkur orð um kynjaða hagstjórn
Það er eitthvað fráhrindandi við
það þegar einstaklingar með tak-
markaðan áhuga á kynjaðri hag-
stjórn og enn minni þekkingu
nota hugtakið sem slagvopn í
atlögum sem hafa allt annan til-
gang en að vinna þeirri aðferða-
fræði fylgis. Kynjuð hagstjórn
snýst ekki um að líta eingöngu
til hagsmuna kvenna. Hún snýst
um að skilja hvernig ákvarðan-
ir stjórnvalda hafa áhrif á bæði
karla og konur og ekki síst sam-
spil þar á milli þannig að fjár-
magni sé ráðstafað með hags-
muni beggja kynja í huga.
Ríkið hefur varið
störf kvenna
Jafnréttismál
Hildur
Jónsdóttir
Sérfræðingur
stjórnarráðsins í
jafnrétti kynjaFyrir stuttu var send kynning til leikskóla á Reykjavíkur-
svæðinu um mögulega fræðslu
til leikskólabarna um tré. Það
eru Náttúruskóli Reykjavíkur og
Grasagarður Reykjavíkur í Laug-
ardal sem standa saman að þessu
boði fyrir elstu leikskólabörn-
in. Áhuginn reyndist svo mik-
ill að færri komast að en vilja.
Börnunum er boðið að kynnast
trjánum, hvað þau verði gömul,
hvernig heyrist í þeim og hvern-
ig lykt sé af þeim, svo nokkuð sé
nefnt. Fræðslan er í tilefni af því
að nú er alþjóðlegt ár skóga.
Sameinuðu þjóðirnar hafa skor-
að á sem flesta í hverju landi fyrir
sig að koma á viðburðum sem
tengjast árinu, m.a. með því að
tengja viðburði á sínum vegum
við árið, og merki ársins er hannað
um þemað skógar fyrir fólk. Það
sýnir í hnotskurn fjölþætt gildi
skóganna fyrir lífríki og umhverfi.
Allir skógar, ræktaðir og órækt-
aðir, veita skjól og eru mikilvæg
búsvæði fjölmargra lífvera, þar
á meðal mannsins. Í skógum er
uppspretta matar og þeir varð-
veita gæði ferskvatns; þeir eru
mikilvægir fyrir jarðvegsvernd
og gegna mikilvægu hlutverki í að
viðhalda stöðugu loftslagi á hnatt-
ræna vísu og jafnvægi í umhverf-
inu. Úr skógum fáum við vistvænt,
endurnýjanlegt og endurvinnan-
legt byggingarefni og efnivið í
margs konar hönnun og nýsköp-
un. Þessir þættir og miklu fleiri
undir strika að skógar eru ómiss-
andi fyrir vellíðan og velferð fólks
alls staðar í heiminum.
Hvað vill þín stofnun, þitt
fyrirtæki, gera í tilefni af alþjóð-
legu ári skóga?
Hvað finnst þér um tré?
Skógrækt
Hulda
Guðmundsdóttir
skógarbóndi
Kynjuð hag-
stjórn snýst
ekki um að
líta eingöngu
til hagsmuna
kvenna.
Smið juvegi 76 Kópavogi S ími 414 1000 w w w.t engi . is
Baldur snes i 6 Akureyr i S ími 414 1050 t engi@t engi . is
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15
PÁSKATILBOÐ Í
TENGI
GILDIR ÚT APRÍL
HANDKLÆÐAOFNAR Á FRÁBÆRU VERÐI
23SF EM-30-W - 70X60 CM VERÐ KR. 15.093,-
23SF EM-60-W - 118X60 CM VERÐ KR. 18.111,-
23SF EM-60-W - 180X60 CM VERÐ KR. 27.167,-
GÆÐI,ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ- ÞAÐ ER TENGI