Fréttablaðið - 14.04.2011, Blaðsíða 48
14. APRÍL 2011 FIMMTUDAGUR18 ● fréttablaðið ● brúðkaup
● KAUPMÁLAR DÝRARI EFTIR BRÚÐKAUP Kaupmáli er
nokkurs konar samningur milli hjóna. Tilgangur hans er að búa til sér-
eign, en það er eign sem annað hvort hjóna á og tilheyrir ekki félagsbúi
þeirra. Séreignin er þannig undanþegin skiptum ef til skilnaðar kemur.
Algengast er að kaupmálar séu gerðir um fasteignir.
Bæði má gera kaupmála fyrir og eftir brúðkaup. Mun hagstæðara er
þó að gera slíkan samning fyrir brúðkaup. Skráningargjald kaupmála er
6.600 krónur en síðan þarf að borga stimpilgjald. Þetta stimpilgjald er
aðeins 50 krónur ef kaupmálinn
er gerður fyrir hjónaband en
annars er það 0,4% af verðmæti
eignar sem verður séreign. Það
getur orðið dágóð upphæð
þegar um fasteign er að ræða en
taka skal fram að frá upphæðinni
má draga áhvílandi skuldir eins
og þær standa þegar kaupmál-
inn er gerður.
● BORGARALEG ATHÖFN Þeim sem ætla að ganga í hnappheld-
una stendur fleira til boða en kirkjuleg athöfn. Borgaraleg athöfn er val-
kostur sem nýtur vaxandi vinsælda, en í ár hafa 58 pör gift sig með þeim
hætti sem er um 20 prósenta aukning miðað við sama tíma í fyrra.
Eyrúnu Guðmundsdóttur, deildarstjóri sifja- og skiptadeildar hjá Sýslu-
manninum í Reykjavík, finnst erfitt að geta sér til um ástæðuna
fyrir þessari aukningu. Hins vegar leggi starfsmenn sig fram við
að gera stundina hátíðlega.
„Athöfnin fer fram á skrifstofu sýslumanns. Flestir
mæta í sínu fínasta pússi, oft með sínum nánustu og
kveikt er á kertum til að gera stundina sem hlýlegasta.
Sýslumaður eða fulltrúi hans leiðir athöfnina sem tekur
um fimm mínútur,“ lýsir hún og getur þess að áður
verði ákveðin formsatriði að vera frágengin.
„Brúðhjónin þurfa að skila inn fæðingarvottorði,
hjúskaparstöðuvottorði og ljósriti af skilríkjum viku
áður. Þá skila þau inn útfylltum eyðublöðum með
undirskrift svaramanna og vottar kvitta undir.“ Nánar á
www.syslumadur.is.
Brúðkaupsferðin er fyrir marga
það allra mest spennandi við
giftinguna. Að fara tvö ein til
fjarlægra landa og uppfylla
kannski gamlan draum um
að heimsækja ákveðið svæði
í leiðinni. Rómantískir staðir
eins og París, Feneyjar, Havaí
eða grísku eyjarnar njóta alltaf
jafnmikilla vinsælda en hér eru
nokkrar hugmyndir fyrir þau
sem vilja fara ótroðnar slóðir í
brúðkaupsferðinni.
Í SPOR VILLA OG KÖTU
Heimurinn bíður með öndina í
hálsinum eftir brúðkaupi Vil-
hjálms Bretaprins og Kate Middle-
ton og ferðaskrifstofan Royal
Scottish Tours hefur nýtt tæki-
færið og markaðssett brúðkaups-
ferðarpakka undir nafninu „Royal
Romance“, þar sem nýgiftum
býðst að upplifa hina rómantísku
hlið Skotlands og feta um leið í fót-
spor brúðhjónanna konunglegu,
allt frá St. Andrews, þar sem þau
hittust fyrst, til Edinborgar, með
viðkomu á ýmsum uppáhaldsstöð-
um Villa og Kötu.
FÖNGULEGAR VÍGTENNUR
Aukinn áhugi á vampírum og öllu
sem þeim tengist hefur fylgt í kjöl-
far Twilight-æðisins sem ýmsir
eru illa haldnir af. Er ekki kjörið
fyrir vampíruelskandi brúðhjón að
ferðast til Transylvaníu í Rúmeníu,
þar sem Drakúla greifi sjálfur lék
lausum hala samkvæmt goðsögn-
inni? Ferðamannaiðnaður í Tran-
sylvaníu hefur blómstrað undan-
farin ár, enda er þar að finna fjölda
gamalla kastala, gamla bæi sem
lítið hafa breyst í tímans rás, gaml-
ar kirkjur, stóra dularfulla skóga
og skíðahótel á heimsmælikvarða.
Vinsælustu bæirnir eru Sibiu og
Brasov, þar sem fróðleiksþyrstir
ferðalangar ættu að vera öruggir
um að finna eitthvað við sitt hæfi.
Konunglegir kastalar, va
rómantík eða borg syn
Las Vegas í Bandaríkjunum
Acapulco í Mexíkó
Transsylvania í Rúm-
eníu.
St. Andrews í Skotlandi
Glæsileg áklæði á veislustóla
Ásamt miklu úrvali af skreytingarvörum og öðrum
vörum sem tengjast þessum stóra degi.
SÓFALIST - S. 692 8022 www.sofalist.is - www.brudarskreytingar.is
gullsmidjan.is