Fréttablaðið - 14.04.2011, Síða 51
FIMMTUDAGUR 14. apríl 2011 5
„Eðlileg gerviaugnhár eru kostur sem æ
fleiri konur kjósa fyrir brúðkaup, ferða-
lög og lífið sjálft, því þannig eru þær
alltaf fínar og með sláandi flottan augn-
svip, án fyrirhafnar og þess að taka nokk-
urn tímann um maskara,“ segir Ágústa
Kristjánsdóttir snyrtifræðingur og eig-
andi Snyrtistofu Ágústu í Hafnarstræti,
en þar er heitasta fegrunarmeðferðin
nú stök, álímd gerviaugnhár sem gerir
konur íðilfagrar með draumkenndan
augnsvip við öll tækifæri, allan sólar-
hringinn.
„Það er útilokað að koma auga á að
augnhárin séu óekta því hvert hár er límt
ofan á náttúrulegt augnhár konunnar,
þétt upp við augnlokin, og útkoman gull-
falleg, uppbrett og þétt augnháralína,“
segir Ágústa sem tekur á móti konum á
öllum aldri í augnháralengingu, en hægt
er að velja úr mismunandi þykktum og
lengdum.
„Augnhárin má hafa árið um kring
en þá þarf að koma í uppfyllingu á eins
og hálfs mánaðar fresti sem er líftími
náttúrulegra augnhára sem losna eitt af
öðru í eðlilegum vaxtarhring augnhárs-
ins,“ segir Ágústa, en gerviaugnhárin
eru litekta og því óþarfi að mála þau, sem
sparar konum tíma, fyrirhöfn og snyrti-
vörukaup.
„Munurinn er mikill og margar okkar
viðskiptavina hafa skartað augnhára-
lengingum í nokkur ár. Þeim þykir nota-
legt að koma í meðferðina sem tekur um
tvo tíma, því nákvæmnisvinnan er mikil
en á móti kemur að okkur snyrtifræð-
ingum þykir vinnan skemmtileg og svip-
uð því að hekla eða prjóna á meðan við-
skiptavinurinn liggur undir hlýju teppi í
algerri slökun,“ segir Ágústa.
Öll efni til augnháralenginga hjá
Snyrtistofu Ágústu koma frá Lash Per-
fect og eru ofnæmisprófuð og í hæsta
gæðaflokki. thordis@frettabladid.is
Draumkennt augnaráð kvenna
Löng, hnausþykk og uppbrett augnhár eru prýði hverrar konu en ekki eru allar svo heppnar að hljóta slíka augnadýrð í vöggugjöf. Nú er
hægt að lengja og þykkja augnhár með eðlilegum gerviaugnhárum þannig að útkoman er náttúruleg og augnaráðið heillandi fagurt.
Hér má sjá fyrirsætuna áður en fölsku
augnhárin voru sett á.
Ágústa Kristjánsdóttir segir snyrtifræðinga njóta þess að lengja augnhár
kvenna því árangurinn sjáist strax og notalegt sé að dunda sér við verkið.
Endanleg útkoma er stórkostleg og augnhárin þykk, löng og fagurlöguð, en verkið tekur alls um tvo tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Slagorðið „demant-
ur varir að eilífu“ (a
diamond is forever)
notaði suður-ameríska
demantafyrirtækið De
Beers í frægri auglýs-
ingaherferð árið 1947.
Slagorðið var valið
auglýsingaslagorð
síðustu aldar. Margir
kannast einnig við það
sem titil kvikmyndar
um njósnarann James
Bond (Diamonds Are
Forever).
De Beers
kom þeirri
þumalputta-
reglu einnig
af stað að
trúlofunarhringur ætti
að kosta sem nemur
tveggja mánaða laun-
um vonbiðils.
www.visinda-
vefur.is
18/01/2011
File: 631028-2_ESC_NYTTLIF_ICELAND.pdf Trim HxW: 297mm x 220mm
Bleed HxW: 303mm x 226mmMedia/Insert: NYTTLIF_ICELAND
17:49
Kringlunni
Falleg snyrtitaska fylgir
hverju keyptu glasi
Kynning í Lyf og heilsu
Kringlunni 14-16 apríl
15%
kynningar-
afsláttur