Fréttablaðið - 14.04.2011, Side 64

Fréttablaðið - 14.04.2011, Side 64
14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR36 bio@frettabladid.is Bandaríski leikstjórinn Sid- ney Lumet andaðist í síðustu viku, 86 ára að aldri. Fjöl- margir kvikmyndagerðar- menn hafa vottað honum virðingu sína að undanförnu og látið í það skína að hann hafi verið í fremstu röð leik- stjóra. Sidney Lumet lést 9. apríl á Man- hattan-eyju í New York en hann, eins og Martin Scorsese og Woddy Allen, var mikill New York maður og valdi borgina yfirleitt sem sögusvið kvikmynda sinna. Þrátt fyrir að Lumet hefði verið til- nefndur til Óskarsverðlauna fimm sinnum hlaut hann aldrei gullstyttuna en þekktasta kvik- mynd hans, 12 Angry Men, er af mörgum talin ein besta kvikmynd sögunnar. Myndin situr í sjöunda sæti á lista yfir 250 bestu kvik- myndir allra tíma á imdb.com. Lumet var sérlega afkastamik- ill, hann leikstýrði fjörutíu kvik- myndum í fullri lengd og þær voru tilnefndar til fimmtíu Óskars- verðlauna. Vandamál Lumets, ef vandamál skyldi kalla, var að hann reyndist ekki nógu stöðug- ur, hann gat sent frá sér meistara- stykki en dottið niður þess á milli. Lumet hóf störf í kvikmyndageir- anum á sjötta áratug síðustu aldar eftir að hafa unnið í leikhúsi, hann var sjálfur sonur leikara og var alltaf mikils virtur meðal leikara og leikstjóra. New York lék stórt hlutverk í lífi hans og sjálfur sagð- ist hann ekki geta hugsað sér að gera kvikmynd í Los Angeles. „Ég hef ekkert á móti borginni, ég kann bara ekki við fyrirtækj- astaði,“ hafði New York Times eftir honum. Hann sagði jafn- framt að þótt kvikmyndir ættu að skemmta fólki vildi hann gera kvikmyndir sem gengu einu skrefi lengra í þeirri viðleitni. Fjöldi leikara og leikstjóra hefur vottað Lumet virðingu sína. Þar fremstir í flokki eru Woody Allen og Scorsese. „Það kemur mér alltaf á óvart hversu marg- ar yndislegar kvikmyndir hann gerði og hversu margir leikarar og leikkonur áttu sína bestu daga undir hans stjórn,“ hefur BBC- fréttavefurinn eftir Woddy Allen. „Hann var New York kvikmynda- gerðarmaður í hjarta sínu sem breytti og dýpkaði sýn okkar á borginni með kvikmyndum á borð við Serpico, Dog Day Afternoon og síðast en ekki síst Prince of City,“ hefur vefurinn síðan eftir Scorsese. Al Pacino, sem lék bæði í Ser- pico og Dog Day Afternoon, sagði að það væri erfitt að hugsa til þess að ekki ætti eftir að frumsýna fleiri kvikmyndir eftir Lumet. „Og þess vegna verðum við að hugsa vel um þær sem hann skildi eftir.“ freyrgigja@frettabladid.is KVIKMYNDAFÓLK SYRGIR LUMET SJÓNARSVIPTIR Sidney Lumet lést 86 ára að aldri á laugardaginn á Manhattan-eyju. Fjöldi kvikmyndagerðarmanna hefur vottað honum virðingu sína. NORDICPHOTOS/GETTY 12 Angry Men (1957): Af mörgum talin ein besta kvikmynd sögunnar en hún fjallar um átök í kviðdómi í viðkvæmu sakamáli. Serpico (1973) Al Pacino fer á kostum í hlutverki hins réttsýna lögreglumanns sem berst gegn spillingu. Dog Day Afternoon (1975) Enn og aftur sýnir Pacino stórleik. Hann leikur bankaræninga sem lendir í miðjum fjölmiðlasirkus. Network (1976) Einstök kvikmynd um firrtan heim bandarískra fjölmiðla með Robert Duvall og Faye Dunaway í fanta- formi. FJÖGUR MEISTARASTYKKI > CRUISE Í OBLIVION Tom Cruise er nú sagður vera í viðræðum við Joseph Kosinski um að leika í kvikmyndinni Oblivion, rómantískri vísinda- skáldsögukvikmynd. Disney hætti nýlega við að fram- leiða myndina en Universal er sagt fylgjast grannt með gangi mála. Enda trekkir Cruise að. Stórleikararnir Christian Bale og Sean Penn eru nú sagðir líklegast- ir til að hreppa aðalhlutverkin í spennutryllinum The Last Photo- graph. Þetta er gæluverkefni bandaríska leikstjórans Zach Sny- der sem gerði síðast hina arfaslöku Sucker Punch en hann mun einnig leikstýra næstu Ofurmennismynd. Upphaflega var talið að Bale hefði gefið hlutverkið frá sér en nú virðist handritið hafa vakið áhuga hans á nýjan leik. Myndin segir frá stríðsfrétta- ritara sem lifir af árás talibana á bandaríska hermenn í Afganistan. Bale á að leika stríðsfréttaritarann en Penn yrði þá fyrrverandi sér- sveitarmaður sem er fenginn til að bjarga fjölskyldumeðlimi sínum úr klóm hryðjuverkamanna og tekur Bale með sér þar sem hann veit hvernig þeir líta út. Saman tak- ast þeir á við óvinveitta ættbálka í þessu stríðshrjáða landi. Bale og Penn yrðu ansi magnað tvíeyki og það er eins gott að menn verði með allt á hreinu ef þeir tveir mæta á tökustað saman því þeir eru báðir þekktir fyrir að vera með ansi stuttan kveikiþráð. Ekki liggur fyrir hve- nær tökur gætu hafist en mynd- in hefur verið á flakki milli kvikmyndavera í Hollywood. Ef Snyder tekst að sýna fram á staðfestu Penn og Bale þarf hann þó ef laust e k k i a ð hafa miklar áhyggjur. - fgg Nóg er um að vera í íslensk- um kvikmyndahúsum um þessa helgi. Að venju má finna vandaðar kvikmyndir í Bíó Paradís en þar ber hæst frumsýning Boy, nýsjálenskr- ar kvikmyndar um Dreng, 11 ára gamlan strák sem hittir pabba sinn í fyrsta skipti. Og sá reynist vera allt öðruvísi en Drengur hafði gert sér í hugarlund um. Sambíóin frumsýna um helgina tvær kvikmynd- ir. Annars vegar hryllings- myndaútgáfuna af Rauð- hettu og úlfinum sem skartar Mamma Mía-stjörn- unni Amöndu Seyfried í aðal- hlutverki. Leikstjóri Twilight- myndaflokksins, Catherine Hardwicke, er konan á bak við myndina sem leikur sér með mýtuna í þessu sígilda ævintýri. Hin mynd Sambíó- anna er Chalet Girl en þær unglingsstúlkur sem eltu Ed Westwick á sínum tíma gætu rifjað upp hvernig hann lítur út því hjartaknúsarinn er í aðalhlutverki í myndinni ásamt Felicity Jones. Og svo er það páskamynd- in Rio um páfagaukinn Blu og ævintýraferð hans til Rio De Janeiro. Fjöldi stórstjarna talar inn á myndina en meðal þeirra má nefna Jesse Eisen- berg, Jamie Foxx og Anne Hathaway. - fgg Spennandi myndir frumsýndar RAUÐHETTA Amanda Seyfried, stjarnan úr Mamma Mía, leggur til atlögu við stóra, ljóta úlfinn. Sem er reyndar varúlfur, hungraður í mannakjöt. Skapbráðir snúa bökum saman SAMAN Bale og Penn yrðu ansi magnað tvíeyki en þeir eru nú orðaðir við kvikmyndina The Last Photograph eftir Zach Snyder. Dalahringur er nýr og bragðmildur hvítmygluostur. Lögun ostsins gerir það að verkum að hann þroskast hraðar en aðrir sambærilegir mygluostar á markaðnum. Gríptu með þér Dalahring í næstu verslun.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.