Fréttablaðið - 14.04.2011, Blaðsíða 69
FIMMTUDAGUR 14. apríl 2011 41
Danskir tónlistargagnrýnend-
ur eru æfir yfir dagskrá Hróars-
kelduhátíðarinnar og segja hana
vægast sagt ömurlega. Danskt tón-
listaráhugafólk virðist vera þeim
sammála.
„2009 var allt í lagi, 2010 var
fyrir neðan meðallag en dag-
skrá hátíðarinnar í ár er von-
laus,“ skrifar tónlistargagnrýn-
andi Ekstrablaðsins, Thomas
Treo. Hann gefur dagskránni
tvær stjörnur af sex mögulegum
en samkvæmt netkosningu á vef-
síðu blaðsins verðskuldar dag-
skráin ekki einu sinni svo góða
dóma. Þeir sex þúsund sem taka
þátt lýsa yfir megnri óánægju og
þykir Hróarskelduhátíðin mega
muna fífil sinn fegurri. „Mér leið
eins og það væri verið að spá helli-
dembu alla dagana,“ skrifar Treo í
gagnrýni sinni. „Maður hefði þurft
að búa í helli til að hafa ekki séð
Iron Maiden á sviði,“ bætir Theo
við en bresku ellirokkarnir eru
eitt af aðalatriðunum ásamt The
Strokes, Arctic Monkeys og Kings
of Leon. Treo bendir á að fjölmörg
stór nöfn séu á tónleikaferðum um
Evrópu um svipað leyti og Hróars-
keldan fer fram en þau hafi hins
vegar ákveðið að sniðganga hátíð-
ina. Þar á meðal eru Paul Simon,
Metallica, Arcade Fire og Primal
Scream. „Og Bob Dylan, sem hefur
margoft verið gestur á Hróars-
keldu, ákveður að spila í Odense.“
Tónlistargagnrýnandi BT,
Steffen Jungersen, tekur undir
hvert orð hjá kollega sínum. „Ég
ætlaði að vera búinn að skrifa pist-
il um hátíðina mun fyrr en ég bara
trúði ekki mínum eigin augum.
Þetta er virkilega glatað,“ skrif-
ar Jungersen. Hann hefur jafn-
framt sömu áhyggjur af framtíð
Hróars keldu, hátíðir allt í kring
geti boðið upp á listamenn á borð
við Beyoncé og Coldplay en Danir
sitji uppi með Iron Maiden. - fgg
Óánægja með Hróarskelduhátíðina
GLATAÐ Hróarskelda býður upp á ansi
vonda dagskrá í ár að mati gagnrýnenda
dönsku blaðanna. NORDICPHOTOS/AFP
Bandaríska raunveruleikastjarn-
an Tori Spelling á von á sínu
þriðja barni með eiginmanni
sínum, Dylan McDermott. Spell-
ing, sem varð fyrst fræg í sjón-
varpsþáttunum Beverly Hills
90210, er nú orðin enn þekktari
vestanhafs fyrir að opinbera
einkalíf sitt í sjónvarpi. Það
má því eiga von á því að sjón-
varpsáhorfendur fái að fylgjast
með meðgöngu og fæðingu leik-
konunnar í næstu raunveruleika-
seríu um Spelling-fjölskylduna.
Barn númer
þrjú á leiðinni
BÆTA Í BARNASKARANN Tori Spelling
á von á sínu þriðja barni með Dylan
McDermott. NORDICPHOTOS/GETTY
Þýski plötusnúðurinn Stephan
Bodzin spilar á Nasa miðviku-
daginn 20. apríl. Hann er að
koma hingað í þriðja sinn.
Bodzin er þekktur fyrir að spila
mínímalíska teknótónlist. Aðrir
sem koma fram á Nasa eru
Oculus, Steffan J, Mr. Cuellar
og Balrock. Miðasalan er í
Mohawks í Kringlunni og kostar
2.500 krónur.
Til Íslands
í þriðja sinn
TIL ÍSLANDS Þýski plötusnúðurinn
Stephan Bodzin spilar hér í þriðja sinn.
Framleiðendur nýrrar Batman-
leiksýningar í Bretlandi hafa
lofað því að vandamálin við sýn-
inguna verði ekki þau sömu og í
söngleik um Köngulóarmanninn í
Bandaríkjunum sem ítrekað hefur
verið frestað. „Sú sýning er allt
öðruvísi en okkar. Einu líkindin
eru þau að bæði verkin fjalla um
ofurhetjur,“ sagði Anthony van
Laast, leikstjóri Batman Live, í
viðtali við BBC.
Verkið verður frumsýnt í Bret-
landi í júlí og fer síðan um Evrópu
og til Bandaríkjanna. Á meðal
þorpara sem koma við sögu í leik-
ritinu eru Jókerinn, Mörgæsin,
Gátumaðurinn og Kattarkonan.
Leikrit um
leðurblöku
www.austurindia.is
HOLI
hátíðarmatseðill
4.990 kr.
Hverfisgata 56, 101 Reykjavík
Sími: 552 1630
Opið:
sun.-fim. 18:00 - 22:00
fös. og lau. 18:00 - 23:00
FORRÉTTUR
Pollichatu-lax
Lax marineraður í blöndu af chillí,
kúmmíni, kóríander, túrmerik,
engiferi og hvítlauk.
Grillaður í bananalaufi
AÐALRÉTTIR
Barra-kebab
Lambafillet, marinerað í hvítlauk,
rauðu chillí, fenugreek og ferskri
myntu. Vinsælasti lambaréttur
Norður-Indlands
og
Murg Chili Hussainee
Einstök blanda af grænu chillí,
hnetum, sinnepsfræjum,
saffran og rjóma setur þennan
kjúklingarétt í sérflokk
og
Aloo Lucknowi
Hægeldaðar kartöflur í ljúffengri
blöndu af kúmmíni, kóríander,
fenugreek, engiferi og hvítlauk
MEÐLÆTI
Raitha
Salat úr heimalagaðri
jógúrt og gúrkum
og
Basmati-hrísgrjón
og
Naan-brauð
Gómsæti úr tandoori-ofninum
EFTIRRÉTTUR
Crème Brûlée
Indversk útgáfa af þessum klassíska
rétti með kókos- og engiferbragði
Frábær tilboð á drykkjum
Fimm rétta
HOLI-hátíð
á Austur-Indíafjelaginu
HOLI er án efa líflegasta og litríkasta hátíð Indverja. Þá fagna þeir vorkomunni og kveðja
vetrardrungann. Hvítklætt fólk, jafnt háir sem lágir, flykkist út á götur bæja og borga og baðar
hvað annað upp úr alls kyns litum og gleðin ræður ríkjum.
Um þessar mundir halda Indverjar Holi-hátíðina sína og Austur-
Indíafjelagið færir þér angan af gleðinni og litadýrðinni frá Indlandi
með ríkulegum hátíðarmatseðli í apríl á hreint frábæru verði: 4.990 kr.
Komdu og njóttu þess besta í indverskri matargerð.
Borðapantanir í síma 552 1630.
Opið alla páskana.
– gleði, litir og dásamlegur matur
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010