Fréttablaðið - 12.05.2011, Page 2

Fréttablaðið - 12.05.2011, Page 2
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR2 DÓMSMÁL Starfsmaður í Lands- bankanum á að endurgreiða slita- stjórn bankans tæplega níutíu milljónir króna samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjaness. Starfsmaðurinn, Jón Þór Gunn- arsson, var forstöðumaður á fyr- irtækjasviði frá árinu 2004. Það ár gerði hann kaupréttarsamn- ing við bankann sem fól í sér að hann fékk rétt til að kaupa fimm milljónir hluta í bankanum á geng- inu sjö. Áunninn kaupréttur átti að safnast upp á næstu árum og kauprétturinn verða virkur 1. des- ember 2007. 24. september var svo gert samkomulag við hann um ein- greiðslu á kaupauka, og kauprétt- urinn þannig gerður upp. Þess- um samningi vildi slitastjórnin fá slitið. Stefndi sagðist hafa gengið eftir því ítrekað við bankann að kaup- réttarsamningurinn yrði gerður upp við hann frá því í desember 2007. Það hafi gengið svo langt að hann hafi ámálgað það að leita til dómstóla vegna þess. Greiðslan hafi verið hluti af launakjörum hans. Í dóminum kemur fram að Landsbankinn hafi aðeins verið skuldbundinn til að selja Jóni Þóri hlutabréf, en ekki greiða honum eingreiðslu. Héraðsdómur féllst á kröfur slitastjórnarinnar og dæmdi hann til að greiða 89,1 milljón króna auk dráttarvaxta. - þeb SKIPULAGSMÁL Borgaryfirvöld vinna nú að því að flytja högg- mynd Ásmundar Sveinssonar af Vatnsberanum úr Öskjuhlíð niður í miðbæ þar sem henni var upp- haflega ætlaður staður árið 1949. Þegar Vatnsberinn var pantað- ur hjá Ásmundi var listaverkinu ætlaður staður á horni Banka- strætis og Lækjargötu. Þegar höggmyndin var tilbúin spruttu hins vegar upp miklar deilur þar sem margir töldu myndina sem var gefin af konunni með vatns- föturnar einfaldlega ljóta. „Hún var sögð of digur, herðasigin og ekki nógu leggjalöng,“ segir í greinargerð umhverfis- og sam- göngusviðs um flutning styttunn- ar, sem endaði í Litluhlíð í Öskju- hlíð árið 1967 eftir að hafa fram að því staðið við vinnustofu lista- mannsins við Sigtún. „Nú skilur fólk almennt hvernig listamaðurinn túlkar erfiði alþýðufólks með því að láta átök- in og þyngslin umbreyta form- gerð líkamans,“ segir hins vegar í greinargerðinni. „Nú er lag að leiðrétta þetta og bjóða Vatnsber- ann heim í miðbæinn úr útlegð- inni,“ segir áfram í greinargerð- inni, þar sem stungið er upp á því að Vatnsberinn verði á miðju Austurstræti þar sem nú er ekið inn í götuna frá Lækjargötu „til að gefa í skyn að gatan sé fyrir fótgangandi“. Meirihlutinn í skipulagsráði hefur samþykkt flutning stytt- unnar fyrir sitt leyti en fulltrúar sjálfstæðismanna sátu hjá. Í menningar- og ferðamálaráði segist meirihlutinn ekki leggj- ast gegn hugmyndinni en vill að verkið sé fært frá götunni svo „það líti ekki út eins og vega- tálmi“. Sjálfstæðismenn í ráðinu sátu hjá og sögðu í bókun að þótt margt jákvætt væri við að flytja styttuna lægi ekki fyrir nógu greinargóð mynd af því hvar hún yrði staðsett og umhverfi í kringum hana háttað. Mörgum spurningum væri ósvarað. „Fram hefur komið að setja eigi styttuna niður til reynslu í eitt ár og því muni gefast tími til að endurskoða þá hluti betur síðar. Hins vegar telja fulltrúar Sjálfstæðisflokksins að vanda eigi til verksins nú, vilja sjá betur útfærðar hugmyndir ekki síst vegna þess að oft er hætta á því að bráðabirgðaframkvæmd- ir standi mun lengur óbreytt- ar en til stóð í upphafi,“ bókuðu sjálfstæðismenn í menningar- og ferðamálaráði. gar@frettabladid.is milljón er upphæðin sem for- stöðumað- urinn þarf að greiða til baka. Hún var sögð of digur, herðasigin og ekki nógu leggjalöng. ÚR GREINARGERÐ UMHVERFIS- OG SAMGÖNGUSVIÐS Vilja að Vatnsberinn verði í Austurstræti Höggmynd Ásmundar Sveinssonar, sem á sínum tíma var ætlað að standa á horni Bankastrætis og Lækjargötu en þótti of ljót og endaði í Öskjuhlíð, verður tekin í sátt og flutt í Austurstræti eftir 62 ára útlegð úr miðbænum. VATNSBERINN Í AUSTURSTRÆTI „Þar sem borgarstjóri hefur bæði óskað eftir styttu af konu í miðbæinn og lýst yfir áhuga á að færa Vatnsberann má hér alla vega slá þrjár flugur í einu höggi,“ segir í greinargerð umhverfis- og samgöngusviðs borgarinnar. SAMSETT MYND/VILHELM „Erpur, hvort ertu lige glad eða skide godt? „Ég er skide glad.“ Rapparinn Erpur Eyvindarson, eða Blazroca, hefur unnið mikið með norrænum röppurum upp á síðkastið. Í Fréttablaðinu í gær sagði að Erpur virðist orðinn þekkt nafn í norrænum rappheimi eftir að Kingsize, hiphop-tímarit Norður- landa, tók nýverið viðtal við hann. LÖGREGLUMÁL Banaslys varð á þjóðvegi 1 um Kambanes, milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvík- ur, á þriðjudagskvöld. Tilkynnt var um slysið um klukkan 21. Fólksbifreið fór út af veginum og hafði hún farið nokkrar velt- ur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ökumaðurinn, sem var einn í bifreiðinni, kastaðist út úr henni og lést skömmu síðar. Hann var á fimmtugsaldri og búsettur í Neskaupstað. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Rannsóknardeild lögreglun- nar á Eskifirði fer með rann- sókn málsins. - bj Banaslys á Austfjörðum: Maður á fimm- tugsaldri lést GRÆNLAND Bandaríkin sýna starfi Norðurskautsráðsins óvenju mik- inn áhuga núna, þegar Hillary Clinton utan- ríkisráðherra og Ken Salazar innanríkisráð- herra mæta til Grænlands á fund ráðsins í dag. Ráðherrarnir undirrita þar samkomulag um skipulag björgunarstarfa á Norður-Íshafi ásamt ráðherrum hinna aðildar- ríkja ráðsins, sem eru Ísland, Noregur, Svíþjóð, Finnland, Dan- mörk, Kanada og Rússland. Þetta er fyrsti samningur aðildarríkja ráðsins sem hefur lagalegt gildi í ríkjunum. Hann þykir ótvírætt merki þess að gildi norðurslóða vaxi nú ört. - gb Norðurskautsráðið á fundi: Bandaríkin sýna áhuga STRASSBORG Evrópuþingið hefur hert reglurnar um umgengni þingmanna og þrýstihópa. Allir þrýsti- hópar sem vilja fá aðgangskort að þinginu verða að skrá sig, og þingmenn sem bera aðalábyrgð á laga- frumvörpum verða að gera grein fyrir því hvaða þrýstihópa þeir hafi hitt á meðan gerð frumvarpa stóð. Sænskir þingmenn eru ekki vissir um að þessar reglur hefðu nægt til þess að koma í veg fyrir nýj- asta mútuhneykslið á þinginu, sem olli miklum titringi í mars síðastliðnum. Þá komu blaðamenn Sunday Times upp um þrjá þingmenn með falinni myndavél. Á upptökunum má sjá þingmennina, sem eru frá Austurríki, Slóveníu og Rúmeníu, ræða aðferðir og þóknun við blaða- mennina. Þingmennirnir töldu blaðamennina til- heyra þrýstihópi úr fjármálageiranum sem hefði áhyggjur af lagafrumvarpi um aukið bankaeftirlit. Austurríski þingmaðurinn sagði það engan vanda að hafa áhrif á nefndarmenn. Slóvenski þingmað- urinn ræddi þóknun upp á 100 þúsund evrur, eða rúmar 16 milljónir króna, að því er segir á vef Sænska dagblaðsins. Sá rúmenski sendi reikning upp á 12 þúsund evrur, eða um 2 milljónir króna. Hann kvaðst hvorki hafa gert neitt ólöglegt né það sem væri óeðlilegt í húsinu. - ibs Mútuhneyksli þriggja þingmanna á Evrópuþinginu olli miklum titringi: Tökin hert með nýjum reglum Á EVRÓPUÞINGINU Blaðamenn hafa afhjúpað mútuþægni þingmanna. NORDICPHOTOS/AFP Röng íþróttasíða var í Frétta- blaðinu í gær vegna mistaka í prentun. Íþróttasíðan sem var í blaðinu á þriðjudag birtist aftur í gær. Lesendur eru beðnir velvirð- ingar á þessu en jafnframt er bent á að rétta íþróttasíðu er að finna í vefútgáfu blaðsins á visir.is. Mistök í prentun: Röng íþrótta- síða í blaðinu Fyrrverandi forstöðumaður í Landsbankanum dæmdur í héraðsdómi: Greiði tugmilljóna kaupauka LANDSDÓMUR Furðulegt er að það hafi tekið saksóknara Alþingis sjö mánuði að skrifa upp þings- ályktunartillögu Alþingis nánast orðrétt. Þetta lét Geir H. Haarde, fyrr- verandi for- sætisráðherra, hafa eftir sér í hádegisfrétt- um Bylgjunn- ar í gær. Hann sagði jafn- framt að sér þætti með ólík- indum að forseti landsdóms léti viðgangast að málsmeðferðin hefði tafist svona lengi. Þá sagði hann að ákæran væri ein og hálf blaðsíða að lengd og sakarefn- in ekki rökstudd með neinum hætti. Geir telur að gefa hefði átt út ákæruskjalið í október, strax eftir ákæru Alþingis. - þeb Ákæra gegn Geir H. Haarde: Sakarefnin ekk- ert rökstudd GEIR H. HAARDE SAMFÉLAGSMÁL Innflytjendur geta nú sótt ráðgjöf og upplýsingar um réttindi sín og skyldur í Þjónustu- miðstöð Breiðholts í Mjódd. Boðið er upp á lögfræðilega ráðgjöf og almenna ráðgjöf, til að mynda um dvalarleyfi og ríkisborgararétt- indi, auk upplýsinga um menntun- armöguleika og frístundir. Túlkaþjónusta er í boði þegar þörf krefur. Reykjavíkurborg hefur boðið upp á sambærilega þjónustu í Þjón- ustumiðstöð Miðborgar og Hlíða á Skúlagötu 21. - ibs Þjónusta aukin í borginni: Auka á aðgengi innflytjenda HILLARY RODHAM CLINTON GRÆNLAND Samningur um björgunar- starf undirritaður í dag. 89,1 SPURNING DAGSINS 11 -0 56 8 / H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA ...hvert er þitt eftirlæt ...endilega f Hrísmjólkin frá MS fæ ljúffengum bragðtegu rifsberja- og hindberj og gömlu góðu kanils

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.